Íþróttablaðið - 01.10.1989, Page 49
mennska ríkir á íslandi er þetta sam-
komulagmilli félagannagjörsamlega
út í hött. Félög mega ekki slá eignar-
rétti sínum á leikmenn svo framar-
lega sem þeir fá engar greiðslur frá
sínum félögum. Mér finnst það oft
gleymast í umræðunni um þessi mál
hvað leikmaðurinn er búinn að gera
fyrir félagið. Stjórnarmenn segja
alltaf; Hvað erum við ekki búnir að
gera fyrir ykkur? Stjórn íþróttafélaga á
að vinna fyrir félagið og leikmenn en
leikmenn ekki fyrir stjórnarmenn.
Mér finnst mjög eðlilegt að félögin
reyni að fá eitthvað fyrir sinn snúð
þegar leikmenn fara erlendis en það
má ekki ganga út í öfgar. Það þýðir
ekki að reyna að reka handknattleiks-
deild með þvíað selja leikmenn. Mér
finnst það t.d. mjög ósanngjarnt af
HSÍ að krefjast þess af öllum þeim
sem fara erlendis, að þeir skuldbindi
sig til þess að leika með landsliðinu
þegar HSÍ hentar. HSÍ semur orðið
beint við erlend félög um þetta. Þeir
eru í raun að skylda alla leikmenn
sem fara erlendis að leika með lands-
liðinu hvort sem þeir hafa áhuga á
því eða ekki. Menn verða að fá að
ráða þessu sjálfir."
„Menn hafa hreinlega
neitað að fara út á
völl í seinni hálfleik
eftir hörkulegt tiltal
frá Bogdan"
— Hefurðu verið sáttur við þróun-
ina í landsliðsmálunum frá því þú
varst fyrst valinn í landsliðið?
„Ég er mjög sáttur við þann tíma
sem landsliðinu ergefinn. Menn hafa
haft mikinn áhuga á að vera með
landsliðinu því það hefur verið að ná
góðum árangri í gegnum tíðina.
Landsliðsmálin hafa verið í góðum
höndum og menn hafa fórnað ýmsu
til þess að geta tekið þátt í undirbún-
ingi landsliðsins. Þeir, sem spiluðu til
að mynda í Þýskalandi fyrir Ólymp-
íuleikana í Seoul, skiptu allir um fé-
lög til þess að geta tekið þátt í loka-
undirbúningnum. Það má alltaf deila
um það hvort landsliðið leiki of
marga eða offáa leiki fyrirstórmóten
að mínu mati var álagið fyrir Ólymp-
íuleikanafull mikið af hinu góða. Það
Kristján steig á svið þegar Gummersbach varð vestur-þýskur meistari og
kyrjaði íslenska söngva fyrir leikmenn og aðstandendur liðsins.
skilaði sér þó að mfnu mati í Frakk-
landi."
— Hvernig upplifðir þú sigurinn í
Frakklandi?
„Það var alveg meiriháttar tilfinn-
ing að hlaupa tii leiks gegn Póllandi
því stemningin í höllinni var raf-
mögnuð. Við vorum staðráðnir í því
að njóta þess að spila handbolta og
veltum okkur lítið upp úr því hvort
sigur ynnist eða ekki. Við fréttum af
íslendingum, sem streymdu til París-
ar, og það var okkur gífurleg hvatn-
ing. Leikgleðin var í fyrirrúmi og
þegar sigurinn var í höfn ætlaði ég
ekki að trúa því. Það verður að viður-
kennastað gamla gæsahúðin tókyfir-
höndina þegar við stóðum uppi sem
sigurvegarar."
— Varstu sáttur við endurráðningu
Bogdans eftir B-keppnina?
„Já, ég var það en ráðningin kom
mér samt á óvart. Ég bjóst við því að
Tiedemann yrði þjálfari. Núna get ég
ekki sagt annað en að Bogdan hafi
verið besti kosturinn."
— Hvern hefðir þú viljað fá sem
landsliðsþjálfara ef Bogdan hefði
ekki komið til greina?
„Ég hefði kosið þann þjálfara sem
gerði Júgóslava að heimsmeisturum
árið 1986. Þó þarf sá þjálfari ekki
endilega að hafa verið rétti maðurinn
fyrir ísland."
— Hefur þú lent upp á kant við
Bogdan?
„Nei, ekki verulega en þó höfum
við oft rifist á æfingum, í leikhléi og
eftir leiki. Stundum hef ég hreinlega
orðið brjálaður út íhann því mér hef-
ur fundist hann oft ganga of langt í
svívirðingum. Það hefur sem betur
fer alltaf bráð af. Hann er alltaf upp á
móti einhverjum leikmönnum og
flestir okkar hafa einhvern tíma hótað
að hætta þegar ástandið hefur verið
sem verst. Égheldaðfólkgeri sérekki
grein fyrir því hve heitar umræður
Kristján í leik með Teka á Spáni.
49