Íþróttablaðið - 01.10.1989, Blaðsíða 50
hafa verið um Bogdan. Það hefur
komið fyrir oftar en einu sinni að
menn hafa hreinlega neitað aðfara út
á völlinn eftir hörkulegt tiltal Bogd-
ans í leikhléinu. Sem betur fer hefur
tekist að tala þá menn til. Það er því
margt sem gerist á bak við tjöldin."
— Ertu sáttur við Jón Hjaltalín sem
formann HSÍ?
„Jón hefur gert kraftaverk á mörg-
um sviðum og er það hluti af árangri
landsliðsins. Hann er hugmyndarík-
ur og ákveðinn en stundum þarf að
bremsa hann af."
— Hvernig leggst heimsmeistara-
keppnin í Tékkóslóvakíu í þig?
„Eg er hóflega bjartsýnn fyrir
heimsmeistarakeppnina í febrúar því
mér finnst undirbúningur hafa verið í
lágmarki og þeir landsliðsmenn, sem
leika á Spáni, geta því miður ekki
tekið mikinn þátt í honum."
Aðspurður rifjar Kristján upp
stærstu stundirnar á keppnisferlinum
og kemur heimsmeistarakeppnin í
Sviss 1986 þá fyrst upp í huga hans.
„Sjötta sætið í Sviss er ofarlega í huga
mér. Sérstaklega vegna þess að ég lék
mjög vel í þeirri keppni. Fyrsti ís-
landsmeistaratitillinn með meistara-
flokki FH er eftirminnilegur og sömu-
leiðis sigur Gummersbach í Vestur-
Þýskalandi. Og stóra stundin í Frakk-
landi verður alltaf ofarlega á blaði."
Kristján hafnaði í 3. sæti í kjöri
íþróttamanns ársins á íslandi í kjölfar
heimsmeistarakeppninnar í Sviss ár-
ið 1986 og var hann inntur eftir því
hvort honum hafi fundist að hann
hefði einhvern tímann átt skilið að
hreppa titilinn? „Ég hef aldrei verið
svekktur yfir því að hafa ekki verið
valinn, en að mínu mati komst ég
næst þvíeftirHM íSviss 1986. Þaðár
voru mörg glæst afrek unnin á ýms-
um sviðum og varð Eðvarð Þór sund-
maður fyrir valinu."
Eins og öllum er kunnugt er Krist-
ján að hefja sitt annað keppnistíma-
bil með Teka á Spáni. í liðinu eru
fimm spænskir landsliðsmenn auk
Kristjáns og Mats Olsens markvarðar
sem erfrá Svíþjóð. „Handboltinn er á
gífurlegri uppleið á Spáni og fær
mikla umfjöllun í fjölmiðlum. Á
Spáni eru 5 dagblöð sem skrifa ein-
göngu um íþróttir, og þau eru mjög
gagnrýnin. Ég finn lítið fyrir því að
vera útlendingur en hugsanlega fæ
ég að kenna á því ef mér gengur illa.
Yfirhöfuð hefégfengiðjákvæða um-
fjöllun. Ég er þokkalega bjartsýnn
fyrir komandi tímabil og við stefnum
vitaskuld á titil."
— Hverniggengurlífiðfyrirsighjá
ykkur á Spáni?
„Við förum á fætur um áttaleytið,
fáum okkur góðan morgunmat og
síðan dríf ég mig á æfingu sem stend-
ur yfir frá klukkan 10:00-12:00.
Seinni æfingin byrjar oftast klukkan
19:00 en á milli æfinga fer ég oftast í
50