Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.10.1989, Blaðsíða 53

Íþróttablaðið - 01.10.1989, Blaðsíða 53
Kristján ásamt félögum sínum í Gummersbach eftir að titillinn var í höfn. alltaf á íslandi. Þá kemurenginn ann- arstaðuren Hafnarfjörðurtil greina." — Finnst þér gaman að vera þú? „Já, það verður að segjast eins og er. Þegar ég lít í kringum mig og sé hversu margir eiga erfitt tel ég mig vera lukkunnar pamfíl. Eg hef mikla þörf fyrir að láta eitthvað gott af mér leiða í framtíðinni og eru góðgerðar- leikir þar inni í myndinni. Eg reyni oft að setja mig í spor annarra og þá kemst ég að því hversu áhyggjulausu lífi ég lifi. Hver eru mín vandamál samanborið við vandamál annarra? Engin. Þegar ég slasaðist í vetur i leiknum með Teka, þá fyrst gerði ég mér grein fyrir því hve stutt er á milli lífsogdauða. Ég varheppinn þvíslíkt höfuðhögg hefði getað dregið dilk á eftir sér." — Hvað gerir þig hamingjusam- an? „Það er svo ákaflega margt sem gerir mig hamingjusaman og ánægð- an. Góðir tímar með Þorgerði, fjöl- skyldusamkomur á Klettahrauninu og auðvitað skapa glæstir sigrar sæluástand." Þorgerður og Kristján hafa verið gift í tvö ár en þau hittust fyrst á skemmtistaðnum Óðali á þjóðhátíð- ardaginn. „Við sáumst annað slagiðá böllum og lagði ég inn mikilvæga punkta," segir Kristján og hlær. „Síð- an þróaðist þetta smám saman en ætli ég hafi ekki átt frumkvæðið að frekara sambandi." Kristján á sér mörg önnur áhuga- mál fyrir utan handboltann enda hef- ur honum verið margt til lista lagt í gegnum tíðina. Því hefur verið fleygt að hann sé nokkuð lipur íveggtennis, golfi, badminton og tennis. „Ég get ekki sagt að ég sé lipur í þessum greinum en ég hef gaman af öllum boltagreinum. Golfið er ágæt til- breyting frá hasarnum f handboltan- um og ég spila stundum með Sigga Sveins., Palla Ólafs., föður mínum og mági. Annars er búið að smita mig af hestamennsku því faðir Þorgerðar er á kafi í hrossunum. Sjálf eigum við hjónin tvo reiðhesta og þrjú folöld. í sumar riðum við ásamt fleirum, sem kalla sig „Útlaga" um óbyggðir landsins í viku og var það einstök upplifun." — Þorgils Óttar, félagi þinn, segist alltaf tapa fyrir þér í veggtennis og badminton. Er það rétt? „Það er alveg á hreinu að Þorgils á að halda sig við handboltann." Þetta sagði Kristján með bros á vör og bætti við: „Ég segi ekki orð um það meira." Samvinna Kristjáns og Þorgils Ótt- ars hefur verið rómuð í gegnum tíð- ina og er oft hrein unun að upplifa þann skilning sem augsýnilega virð- ist ríkjaá milli þeirraá handboltavell- inum. Skyldu þeir hafa æft sendingar sín á milli eitthvað sérstaklega eða þekkja þeir bara svona vel hvor á annan? „Samvinna okkar á vellinum hefur einfaldlega þróastá þessa lund. Hlut- irnir gerast bara ósjálfrátt því við þekkjum vel hreyfingar hvors annars. Oft nægir okkur að líta hvor á annan og þá vitum við hvað gerist næst." Kristján segist hafa færst töluvert í aukana upp á síðkastið hvað eldhús- störfum viðkemur en pastaréttir eru hans fag. Um stjórnmál vildi hann síst ræða því hann vildi sem minnst blanda sér í afskipti af þeim. „Auðvit- að hef ég ákveðnar skoðanir á því ástandi sem ríkir á íslandi. Ég er t.d. andvígur núverandi ríkisstjórn en fylgjandi hersetu í landinu. En ég er ekki flokksbundinn. Mér finnst þau mál oft sem stjórnmálamennirnir eru að rffast um oft hjákátleg. Skyldu þeir ekkert hafa neitt betra að gera við sinn dýrmæta tíma? „Það freistar stundum að fara út í pólitík" — Gætirðu hugsað þér að fara út í pólitík? „Það freistar stundum en ég er mjög tvístígandi íþeim málum." Aðspurður um þann stjórnmála- mann sem Kristján hefur mest dálæti á í dag nefndi hann Davíð Oddsson. Kristján segist alls óhræddur við stríð því hann telur mikið jafnvægi vera á milli heimsálfanna. En hvernigskyldi hann sjá sjálfan sig f ellinni? Kristján hlær, klórar sér í kollinum en segir svo ígríni: „Ætli ég verði ekki eldfjörugtgamalmenni, eltandi ungl- ingsstúlkur út um allartrissur. Nei, ég vona bara að ég verði við hestaheilsu og lifi þægilegu lífi. Hingað til hefég veriðeinstaklega heppinn og kannski er ég því innst inni hræddur við að bakslagið komi einhvern tímann." — Ertu skapmaður? „Ég er frekar rólegur að eðlisfari en þegar mér er nóg boðið banka ég harkalega íborðið. Þaðerum aðgera að hemja sig en ekki á kostnað hreinskilninnar. Þó má oft satt kyrrt Hggja." Þegar viðtalið var á enda tók ég eftirarmbandsúrinu sem Kristján bar. Það var engu líkara en hann hefði fiskað það upp úr einhverjum leik- tækjakassa og gefið um það bil tíu krónurfyrir það. Hann sýndi mér úrið og sagði að á skífunni væri mynd af galdrakarlinum íOz. „Égfékkúriðað gjöf þegar ég var á ferð um Banda- ríkin. Mig langaði ítyggjókúlu í sjálf- sala en því miður fékk ég þetta forláta úr," sagði Kristján brosandi og hristi plastúrið á handleggnum. Að lokum spurði ég hann að því hvað hann hefði dreymt um að verða þegar hann var lítill strákur. „Flugið heillaði mig mjög mikið og sérstaklega flug- mannsbúningurinn. Ég lofaði mömmu meira að segja því að fljúga einhvern tímann með hana um loftin blá. Það loforð verður eflaust ekki efnt." 53
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Íþróttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.