Íþróttablaðið


Íþróttablaðið - 01.10.1989, Page 55

Íþróttablaðið - 01.10.1989, Page 55
Niðurstöður á vali „Dómara ársins" að mati fyrirliða 1. deildar liðanna voru þannig: t. Cuðmundur Haraldsson 33 stig 2. Gylfi Orrason 15 stig 3. Óli Ólsen 8 stig 4. -5. Guðmundur Maríusson 7 stig 4.-5. Eyjólfur Ólafsson 7 stig 6. Sveinn Sveinsson 6 stig 7. -8. Ólafur Lárusson 5 stig 7.-8. Bragi Bergmann 5 stig 9. Ólafur Sveinsson 3 stig 10. Ágúst Guðmundsson 1 stig (Taka ber fram að 19 dómarar dæmdu leiki í 1. deildinni sl. sumar.) Gylfi Orrason kemur vel út úr könn- uninni þrátt fyrir að vera nýliði sem dómari í 1. deild. Hann nýtur virð- ingar meðal leikmanna og mættu margir reyndari dómarar taka hann sér til fyrirmyndar. Fyrirfram ákveðin skipting leikja milli dómaranna var eftirfarandi: Milliríkjadómurunum fjórum, þeim Eyjólfi Ólafssyni, Guðmundi Har- aldssyni, Sveini Sveinssyni og Óla Ólsen, var úthlutað sex leikjum hverjum. Nýliðunum, þeim Gylfa Orrasyni, Gunnari Ingvasyni og Ágúst Guðmundssyni, var úthlutað fjórum leikjum hverjum og þeim dómurum sem ekki voru skráðir milliríkjadómarar eða voru ekki að byrja var úthlutað fimm leikjum hverjum. „Dómari ársins", Guðmundur Haraldsson, boðaði forföll í einum þeirra leikjasem hann dæmdi ídeild- inni og dæmdi því 5 leiki. Það hlýtur að teljast synd að svo góður dómari sem Guðmundur er skuli aðeins dæma 5 leiki af þeim 90 sem háðir eru í 1. deildinni á hverju tímabili, í stað þess að dæma a.m.k. 10-12 leiki á ári. Gylfi Orrason stóð sig vafalítið best þeirra nýliða sem í deildinni dæmdu. Hann lét ávallt knattspyrn- una sitja í fyrirrúmi í stað þess að dæma þannig að leikurinn snérist í kringum hann sjálfan. Það verður því gaman að fylgjast með Gylfa í fram- tíðinni því hann er nú þegar orðinn einn þesti dómari landsins eins og niðurstöður könnunarinnar gefa vís- bendingu um. 55

x

Íþróttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Íþróttablaðið
https://timarit.is/publication/1455

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.