Íþróttablaðið - 01.10.1989, Blaðsíða 58
ÚTLENDINGARNIR
— erlendu leikmennirnir í úrvalsdeildinni í körfubolta
Það þóttu mikil tíðindi á síðasta
áratug þegar íslensk körfuboltalið
tóku að et'la mátt sinn með því að
ráða til sín einn og einn erlendan
leikmann. Sumir þessara aufúsugesta
vöktu ekki aðeins athygli í íþrótta-
heiminum heldureinnig íbæjarlífinu
í Reykjavík og á Suðurnesjum og
vakti dökkur hörundslitur þeirri eftir-
tekt. Menn átta sig kannski ekki á því
í fljótu bragði en svo gríðarlega hratt
breytist bæjarbragurinn í höfuðborg-
inni frá nesjamennsku til siðmenn-
ingar að fyrir aðeins 10 til 15 árum
(upp úr 1975) taldist það ennþá til
undra og stórmerkja að blámaður
gengi hér um götur. Og ekki dró það
úr undruninni að hann væri höfðínu
hærri en hávaxnir eyjaskeggjar.
Kjaftakerlingar stungu saman nefjum
með forvitnisvip blönduðum vand-
lætingu, smástelpur flissuðu og
skræktu ef þær komu of nálægt
furðuverunni og ef atvikið bar til að
kvöldlagi þeyttu bílabullur horn í
Bankastræti á meðan sauðdrukknir.
gelgjulegir farþegar ráku hausana út
um gluggana og öskruðu á eftir gest-
inum dökkléita svo bólugrafin andlit
þeirra afskræmdust.
Meðal körfuboltaunnenda þótti
framganga þessara manna í leikjum
ganga giildrum næst og ftestii áhori-
enda höfðu nokkurn tímann séð ann-
að eins.
Síðan hurfu erlendu leikmennirnir
úr boltanum hérna en ávallt hefur
rnikið verið rætt um og deilt hvort
„erlend áhrif" séu æskileg í körfu-
boltanum. Liklega eru fleirí á því að
svo sé og skv. nýjum reglum hefja nú
í vetur hvorki fleiri né færri en 10 nýir
erlendir leikmenn að spila í úrvals-
deildinni, einn hjá hverju liði. Hérer
um að ræða 9 Bandaríkjamenn og
einn Rússa. Telja má sem betur tér
öruggt að hörundslitur þeirra verður
ekki umræðuefni fólks nú líktog á 8.
áratugnum heldur mun áhugi íþrótta-
unnenda eingöngu beinast að getu
þeirra í boltanum. Leikur þeirra mun
jafnframt ekki vekja sömu undrunína
og áður þar sem fslendirigum hefur
farið fram í körfubolta síðustu árin
líkt og í flestum íþróttum auk þess
semæ fleiri hafa kynnst töfratiíþrifum
leikmanna í úrvalsdeildinni banda-
rísku þar sem við höíum raunar átt
einn fulltrúa, Pétur Cuðmundsson.
Engu að síðureru erlendu leikmenn-
irnir í ár allír mjög sterkir á íslenskan
mælikvarða og munu án efa hat'a góð
áhrif á úrvalsdeildina sem hugsan-
lega hefur staðið nokkuð í skugga
handknattleiksins síðustu árin,
a.m.k. utan Suðurnesja, íþróttablað-
inu þótti við hæfi að forvitnast lítið
eitt um hagi þessara manna og kynna
þá fyrir unnendum íþróttarínnar.
KR-ANATOLY
KOVTOUN
Anatoly Kovtoun er eini leikmað-
urinn sem ekki kemur frá Bandaríkj-
unum, Hann er frá þorgínni Simtéro-
pol í Sovétríkjunum og á glæstan feril
að baki í heimalandi sínu. Kovtoun er
jafnframt fyrsti Sovétmaðurinn sem
leíkur með íslensku liði. Hann hefur
þrisvar orðið Sovétmeistari með liði
sínu Stroitel, nú síöast í vor. Þá státar
hann at emum Evrópumeislaratitli
unglingalanclsliða en þann titif vann
hann 1980. Kovtoun hefur leikið tvo
A-landsleiki með liði Sovétmanna og
fjölda B-landsleikja. Siðustu árin hef-
ur hann verið f 20 manna landsliðs-
hópi Sovétríkjanna. Hann er m.a.
góð langskytta og varð 6. stigahæsti
kórfuboltaleikmaöurinn á síðasta ári
í 3. stiga skotum.
Kovtoun er 28 ára gamall, ógiftur
og barnlaus. Hann er 2' »■ t m hái <>g
vegur 100 kg. Hann kom hingað til
lands seinni hluta sl. sumarsog líst að
sögn frábærlega á landið og er mjog
hamingjusamur hér. Er ekki talið
ólíklegt að hann ílendist á íslandi.
Honum líst ágætlega á íslenskan
körfubolta, segir tæknilega getu ís-
lenskra leikmanna góða en honum
þykir þeir nokkuð lágvaxnir. Ko-
vtoun er bílaáhugamaður mikill og
mun áhuginn fremur beinast að vest-
rænum bílum en göntlu góðu Löd-
unni. Að ööru leyti snýst lít' hans að
mestu um íþróttír.
GRINDAVIK - JEFF NULL
Bandaríkjamaðurinn Jeff Null er
24 ára gamall, 197 cm á hæð og veg-
ur90 kg, Hann hefur leikið með Lock
Haven University sem er í 2. deild
bandaríska háskólaboltans. ffyrra lék
hann með liði í Luxemborg. jeff Null
er álitinn snöggur, sterkur og hittinn
leikmaður, enda telst hann ekki mjög
hávaxinn miðað við það sem gengur
og gerist í þessum efnum þó að óneit-
anlega sé hann ekkert peð. Jeff Null
telur íslenskan körfuknattleik mun
betri en þann sem Luxemborgarar
bjóða upp á og að ieikmenn hér séu
líkamlega sterkir og spili fast. Hins
vegar t’innst honum íslenskir kört'u-
boltamenn full lágir í loftinu.
Jeff Null er einhleypur. Hann er
með háskólagráðu í kennslufræðum
og hefur áhuga á frekara námi í
þeim fræðum þegar hann hef-
ur lagt körfuboltann á hill-
una. Helstu áhugamál
hans eru poppt-
ónlist og svo
vitanlega