Íþróttablaðið - 01.10.1989, Síða 63
bolta, og er kunnugt um velgengni
íslenska landsliðsins. Chris Barnes
hefur háskólagráðu í viðskiptafræði
og ætlar að starfa á því sviði íframtíð-
inni.
REYNIR SANDGERÐI -
DAVID GRISSOM
David Grissom þjálfari og leik-
maður Reynismanna er 25 ára gam-
all. Hann er sléttir tveir metrar á hæð
og 103 kg að þyngd. Grissom er mjög
sterkur líkamlega en þó ekki riðvax-
inn eins og tölurnar gefa kannski til
kynna. Hann kemur frá Texas, lék
síðustu árin með 1. deildar liðinu Old
Domanion University í Northfolk
Virginia. Þar lagði Grissom stund á
íþróttafræði en laukekki námi. Gris-
som er einhleypur. Hann hefur aldrei
áður leikið erlendis og þykir því mjög
spennandi að koma hingað. Hann
heillast af ferðalögum og þykir mjög
spennandi að kynnast íslandi einmitt
vegna þess hve margt hér er ólíkt því
sem hann hefur áður átt að venjast.
Utan ferðalaga snúast áhugamál
Grissoms aðallega um fþróttir. Hann
er hóflega bjartsýnn á gengi Reynis í
vetur og skoðar málin í Ijósi þess að
góðir hlutir gerist hægt. Hann segir
liðið þurfa tíma til að þroska sinn
góða efnivið.
ÞÓR AKUREYRI - DAN
KENNARD
Dan Kennard er 27 ára gamall og
lék síðast með 1. deildar liði Liþerty
University of Virginia og átti þar mik-
illi velgengni að fagna. Áður hafði
hann m.a. leikið með Independence
University of Kansas en þá náði það
lið næstbesta árangri allra skólaliða í
landinu. Kennard er 203 cm á hæð
og þyngd hans er í augnablikinu uni
97 kg en stundum hefur hann verið
allt að 102 kg. Kennard hallast að því
að núverandi þyngd sín sé heppilegri
þar sem hann sé sneggri en hann hafi
hins vegar verið sterkari þegar hann
var 102 kg. Hann fitnar ekkert þegar
hann þyngist heldur þyngir hann sig
kerfisbundið með lyftingum. Kenn-
ard hefur lagt stund á stjórnmála-
fræði og er útskrifaður í greininni.
Hann hefur einnig sinnt félagsstarfi í
stjórnmálum og fer raunar ekki leynt
með skoðanir sínar. Hann er gall-
harður hægri maður, mikill aðdáandi
Reagans og Bush og hlynntur frjálsu
framtaki og öflugum hervörnum.
Meðal þeirra íþrótta, sem Kennard
hefur áhuga á, utan körfuknattleiks
eru amerískur fótbolti, tennis og síð-
ast en ekki síst hafnabolti sem hann
hrífst jafnvel meira af en körfubolta.
Hann æfði raunar hafnabolta á árum
áður og þótti vel liðtækur. Stundum
sér hann eftir því að hafa ekki tekið
hafnaboltann fram yfir körfuboltann.
Kennard er giftur og á einn son, eins
árs gamlan. Konan hans heitir Janet
en hún kemurtil landsinssíðarívetur
og mun búa hér. Dan Kennard er
náttúruunnandi og er yfir sig hrifinn
af íslenskri náttúrufegurð. Hann kann
einnig vel að meta hreina loftið sem
hér er. Þá segist hann vera hrifinn af
íslenskri húsagerðarlist og segir stíl-
inn vera einstæðan og frumlegan.
Síðast en ekki síst segir hann að hon-
um finnist fólkið hér vera nákvæm-
lega eins og hann hafði heyrt að það
væri áðuren hann kom, vingjarnlegt
og hjálpsamlegt.
EIGINHANDARÁRITUN KRISTJÁNS
Nú gefst lesendum IÞRÓTTA-
BLAÐSINS kostur á að eignast
mynd af landsliðsmanninum Kri-
stjáni Arasyni og með eiginhand-
aráritun hans. Kristján hefur
verið einn sterkasti handknatt-
leiksmaður heims um nokkurra
ára bil og verður það örugglega
áfram í nánustu framtíð. Sendu
inn nafn þitt og heimilisfang fyrir
15. nóvember næstkomandi, en
með því móti átt þú þess kost að
detta í lukkupottinn. Dregin
verða út 14 nöfn og verða þau
birt í næsta tölublaði ÍÞRÓTTA-
BLAÐSINS. Eins og áður sagði fá
hinir heppnu senda mynd af Kri-
stjáni Arasyni ásamt eiginhand-
aráritun. Skrifið nafn og heimilis-
fang og sendið íþróttablaðinu.
Utanáskriftin er: ÍÞRÓTTA-
BLAÐIÐ, Ármúla18,108 Reykja-
vík.
63