Íþróttablaðið - 01.10.1989, Síða 65
Þessum strákum í meistaraflokki FH í handbolta er spáð íslandsmeistaratitlinum á keppnistímabilinu. Þorgils Óttar
Mathiesen er í fyrsta skipti þjálfari meistaraflokks og verður spennandi að sjá hvort hann leiðir liðið sitt til sigurs í
vetur.
eignast sinn eigin heimavöll í glæsi-
legu íþróttahúsi í Garðabæ og kemur
heimavöllurinn eflaust til með að
verða Stjörnunni happadrjúgur í vet-
ur. Valsmenn eru ávallt sterkir, en
þeir urðu þó fyrir mikilli blóðtöku
fyrir tímabilið því þrír sterkir leik-
menn, þeir Sigurður Sveinsson, Geir
Sveinsson ogjúlíus Jónsson, héldu í
víking í atvinnumennsku. En maður
kemur í manns stað og koma Vals-
menn örugglega til með að verða
með mjög sterkt lið.
Hvað önnur lið áhrærir eru þau
nokkuð óskrifuð blöð. Víkingar
verða eflaust með skemmtilegt lið, en
þeim hefur bæst góður liðsauki í
þeim Birgi Sigurðssyni og Hrafni
Margeirssyni. KR-ingar urðu fyrir
mikilli blóðtöku þegar Alfreð Gísla-
son hélt utan í atvinnumennsku en
liðið er ungt og efnilegt og á eflaust
eftir að geragóða hluti í vetur. ÍBV og
Grótta eru með mikil stemmningslið
sem eru óútreiknanleg, geta tapað á
móti slakari liðum en unnið sterkari
liðin á góðum degi.
Það þykir nokkuð Ijóst að það
verður hlutskipti KA, ÍR og HK að
verma neðstu sætin. Baráttan milli
þessara liða verður eflaust gríðarlega
hörð og eru leikmenn allra liðanna
örugglega staðráðnir í því að halda
sæti sínu í deildinni, láta allar hrak-
spár lönd og leið og lenda ofar en
nokkurn grunaði.
Hvað sem öllum spádómum líður
á mótið eflaust eftir að verða mjög
spennandi og verður gaman að fylgj-
ast með framvindu handboltans í vet-
ur. Landsliðsins bíður erfitt verkefni
sem er úrslit heimsmeistarakeppn-
innar í Tekkóslóvakíu og eru leik-
menn flestra 1. deildar liðanna vafa-
Iftið á þeim brókunum að standa sig
sem best með sínum félagsliðum og
eygja þannig möguleika á því að
komast í hóp þeirra leikmanna sem
verja munu heiður íslands í Tekkó-
slóvakíu í upphafi næsta árs.
Herra Permanent
Rakarastofan Klapparstíg
Klapparstíg 29 S: 12725
65