Íþróttablaðið - 01.10.1989, Síða 66
„LIÐ ÁRSINS"
2. DEILD
— Valið af þjálfurum 2. deildar liðanna
Eftirtaldir leikmenn
fengu stig:
Markverbir:
Þorvaldu r Jónsson Leiftri: {6Í:J
Elríkur Þorvarðarson UBK (2)
Jón Ottí Jónsson Stjörnunni (1) ;
Císli Heiðarsson Víði (tj
Varnarmenn:
Daníel Einarsson Víði (6)
Ólafur ÓJafsson Setfossi (6! :
Birgir Sigfússon Stjörnunni (4)
Gústaf Ómarsson Leiftri (3)
Ólafur Adolfsson Tindastóli jj);;
Friðrik Sæbjörnsson Selfossi (T)
Sigurbjörn Jakobsson Leiftri (í);:
Sveinn Jónsson Selfossi (1)
Bjarni Benediktsson Stjörnunni (1)
Guðmundur Garðarsson Leiftri (1)
Miðvallarleikmenn:
Árni Sveinsson Stjömunni (9):
Htynur Stefánsson ÍBV (8)
Sveinbjörn Hákonarson Stjörnunni (8)
Sigurlás; Þorleifsson ÍBV (5):
Jón Brági Arnarsson ÍBV (4)
Hafsteinn jakobsson Leiftri (3):
Ingi Sigurðsson ÍBV ÖJj v
Bergur Ágústsson ÍBV (1)
Guðmundur Guðmundsson UBK (1)
Arnar Grétarsson UBK (Í); j;
Ingólfur Ingöifsson Stjörnunni (í) :
Ragnar Gíslason Stjörnunni (1}:
Vilberg Þorvaidsson Víði llílj
Njáil Eiðsson Einherja (1)
Halldór Guðmundsson Leiftri (í)
Einar Einarsson Selfossi (1)
Kristján Oigeirsson VöJsungi (1)
Sóknarleikmenn:
Eyjólfur Sverrisson Tindastóli (10)
Grétar Einarsson Víðí (5):
Valdimar Kristófersson Stjornunni (5) ::
Jón Þórirjónsson UBK (4)
íþróttablaðið stóð nú í haust fyrir
vali á „Liðum ársins" í 1. og 2. deild,
annað árið í röð. „Lið ársins" í 2.
deild var valið þannig að þjálfari
hvers 2. deildar liðs stillti upp sterk-
asta byrjunarliði deildarinnar að
hans mati og réð svo samanlagður
stigafjöldi ieikmanna því hverjir
komust í „Lið ársins" í 2. deild.
Þeir, sem völdu „Lið ársins" í 2.
deild voru eftirtaldir: Jóhannes Atla-
son þjálfari Stjörnunnar, Sigurlás
Þorleifsson þjálfari ÍBV, Óskar Ingi-
mundarson þjálfari Víðis, Guðmund-
ur Helgason þjálfari UBK, Hörður
Hilmarsson þjálfari Selfoss, Theodór
Guðmundsson þjálfari ÍR, Gústaf
Ómarsson þjálfari Leifturs, Bjarni Jó-
hannsson þjálfari Tindastóls, Ivan
Varlamoff þjálfari Völsungs og Njáll
Eiðsson þjálfari Einherja.
Alls hlutu 35 leikmenn stig í þessu
vali. Stjarnan úr Garðabæ, sigurveg-
ari 2. deildar, átti flesta fulltrúa eða
alls 8, sex leikmenn Leifturs fengu
atkvæði, fimm leikmenn ÍBV, fjórir
leikmenn úr Víði, UBK og Selfossi,
tveir leikmenn Tindastóls, einn leik-
maður Völsungs og Einherja en eng-
inn leikmaður úr ÍR fékk atkvæði að
þessu sinni.
Atkvæ&i til liðanna skiptust þann-
'8:
1. Stjarnan 30 stig
2. ÍBV 20 stig
3. Leiftur 15 stig
4. -5. Tindastóll 13 stig
4.-5. Víðir 13 stig
6. Selfoss 9 stig
Samantekt: Lúðvík Örn Steinarsson
7. UBK 8 stig
8. Einherji 1 stig
9. Völsungur 1 stig
10. ÍR 0 stig
Sá leikmaður, sem hlaut flest stig,
var leikmaður Tindastóls, Eyjólfur
Sverrisson. Eyjólfur fékk einstaklega
glæsilega kosningu þar sem hann
hlaut 10 stig af 10 mögulegum og er
hann annar leikmaðurinn sem nær
þessum glæsta áfanga í vali á liði árs-
ins í 2. deild. í fyrra fékk Ólafur Jó-
hannesson 10 stig, en hann var ekki
langt frá því að vera valinn í „Lið
ársins" í 1. deild að þessu sinni. Eyj-
ólfur varð markahæsti leikmaður 2.
deildar með 13 mörk og einnig átti
hann eftirminnilegan leik með lands-
liði skipuðu leikmönnum 21. árs og
yngri þegar hann skoraði 4 mörk í
einum og sama leiknum gegn Finn-
um en þeim leik lauk einmitt 4-0.
Eyjólfur var einnig valinn í „Lið árs-
ins" í annarri deild í fyrra og er hann
eini leikmaðurinn sem hefur verið
valinn tvisvar.
Stjörnumennirnir, Árni Sveinsson
og Sveinbjörn Hákonarson, hlutu
einnig mjög glæsilega kosningu svo
og Eyjamaðurinn Hlynur Stefánsson
sem hlaut átta stig.
Það er fátt, sem kemur á óvart, við
þessar niðustöður nema ef vera
skyldi að næstmarkahæsti maður
deildarinnar, Eyjamaðurinn Tómas
Ingi Tómasson, fékk ekki neitt stig en
annars koma niðurstöðurnar varla á
óvart miðað við framgöngu þessara
leikmanna á nýliðnu sumri.
66