Íþróttablaðið - 01.10.1989, Page 69
Héraðssamböndin
Á landinu eru 28 íþróttabandaiög
og héraðssambönd.
íþróttabandalag Reykjavíkur - ÍBR-
er langstærsta héraðssambandið
með 32.363 iðkendur eða um 33% af
öllum íþróttaiðkendum á landinu.
Minnsta héraðssambandið er Hérað-
ssamband Bolungarvíkur með 407
iðkendur.
Fjöldi íþrótta- og
ungmennafélaga.
Á árinu 1988 var 351 íþróttafélag
starfandi á ísiandi. Þessi félög skiptust
í 230 deildir eða samtals 584 starfs-
einingar.
Stærsta félagið
Knattspymufélag Reykjavíkur -KR-
stórveldið í Vesturbænum er stærsta
félag landsins með 5192 skráða fé-
lagsmenn og 3624 iðkendur. Tennis-
og badmintonfélag Reykjavíkur-
TBR- er næststærsta félag landsins
sé tekið mið af skráðum félagsmönn-
um. Hins vegar eru flestir iðkendur
skráðir ÍTBR eða 5145.
Skipting á milli kynja 1987 og
1988.
Hlutfall á milli kynja í íþróttum
breytist lítið á milli áranna 1987 og
1988. Á árinu 1988 voru 35% iðk-
enda konur en 65% karlar.
Á mynd 2 má sjá nánari skiptingu á
kynjum eftir aldri.
HEILDARREKSTRAR-
KOSTNAÐCIR
ÍÞRÓTTAHREYFINGARINNAR
1988.
Heildarrekstrarkostnaður íþrótta-
hreyfingarinnar varð rúmlega 1,4
milljarðar króna og jókst um 400
milljónir króna frá árinu 1987.
Margar fróðlegar tölur koma fram
við skoðun kostnaðarliða og munu
einstaka kostnaðarliðir verða kynntir.
Húsaleiga og húsaleigustyrkur.
Húsaleiga nam um 140 milljónum
króna á síðasta ári. Styrkir bæjar-og
sveitarfélaga námu um 115 milljón-
um króna.
Iðkendur íþrótta 1987 og 1988.
Vaxtagjöld voru tvöfalt hærri en
framlag ríkisins á fjárlögum til
ÍSÍ!
Vaxtagjöld námu rúmlega 47 millj-
ónum króna á árinu 1988 en námu
rúmlega 21 milljón á árinu 1987.
Þetta er rúmlega 45% hækkun á milli
ára. Vaxtakostnaður er því rúmlega
tvöfalt hærri en framlag ríkisins til ÍSÍ
á fjárlögum 1988! Vaxtagjöld námu
um 3,4% af heildarkostnaði 1988.
Laun innlendra og erlendra
þjálfara
Laun innlendra þjálfara námu um
135 milljónum á árinu 1988 sem er
um 9,7 % af heildarkostnaði. Laun
erlendra þjálfara námu um 30 mill-
jónum sem eru um 2% af heildar-
kostnaði.
Stjórnunarkostnaður
Stjórnunarkostnaður nam um 130
milljónum á árinu 1988. Eykst hann
um 65% á milli áranna 1987 og
1988. Þetta hlýtur að teljast óeðlileg
hækkun á milli ára sé tekið tillit til
heildarrekstrarkostnaðar áranna
1987 og 1988.
Ferðakostnaður
Ferðakostnaður innanlands nam
um 130 milljónum króna sem er
9,4% af heildarkostnaði. Ferðakostn-
aður erlendis nam um 76 milljónum
króna og eykst um 10 milljónir á milli
áranna 1987 og 1988. Hlutfall ferða-
kostnaðar erlendis er um 5,5% af
heildarkostnaði.
Iþróttabandalag Reykjavíkur 45
ára
ÍBR hélt upp á 45 ára afmæli sam-
bandsins 31. ágúst sl. Eins og áður
hefur komið fram er ÍBR stærsta hér-
aðssambandið á landinu og var
stofnað 1944. f hófi sem ÍBR hélt í
tiiefni þessara tímamóta afhenti for-
seti ÍSÍ, Sveinn Björnsson, IBR grafík-
listaverk að gjöf.
Ari Guðmundsson formaður ÍBR
veitir grafíklistaverkinu „Hlaupið"
viðtöku á 45 ára afmæli ÍBR.
Fimm valinkunnir íþróttaforystu-
menn fengu gullmerki ÍBR fyrir störf
sín innan ÍBR og íþróttahreyfingar-
innar. Það voru þeir Sveinn Björns-
son forseti ÍSÍ, Hannes Þ. Sigurðsson
varaforseti ÍSÍ, Ellert B. Schram for-
maður KSÍ, Sveinn Jónsson formað-
ur KR og Júlíus Hafstein fyrrverandi
formaður ÍBR og formaður íþrótta-
og tómstundaráðs Reykjavíkurborg-
ar.
69