Íþróttablaðið - 01.10.1989, Page 70
stigs námskeiði á Akureyri 22.-23.
september sl. Kennarar voru Guð-
mundur Ólafsson, Anton Bjarnason,
Kristín Sigfúsdóttir og Magnús Ólafs-
son. Tuttugu manns sóttu námskeið-
ið.
* Fræðslunefnd ÍSÍ gekkst fyrir
grunnstigsnámskeiði í byrjun sept-
ember. Kennarar voru Anton Bjarna-
son og Olga Lísa Garðarsdóttir. 20
manns sóttu námskeiðið, þar af
komu 18 frá fimleikafélögunum.
* Fræðslunefnd ÍSÍ gekkst fyrir A-
stigs námskeiði um miðjan septem-
bermánuð. Kennarar voru Guð-
mundur Ólafsson, Anton Bjarnason
og Andrés Kristjánsson. 20 manns
sóttu námskeiðið.
FRÆÐSLGMÁL
Námskeið í íþróttasálfræði -
hvar voru þjálfararnir?
Fræðslunefnd ÍSÍ gekkst fyrir nám-
skeiði fyrir byrjendur í íþróttasálfræði
dagana 29. og 30. september sl.
Kennari á námskeiðinu var prófessor
A. Morgan Olsen sem kennir við
Iþróttaháskólann í Osló. Hann hefur
hlotið alþjóðlegar viðurkenningar
fyrir störf sín á sviði íþróttasálfræðinn-
ar og fyrir rannsóknir í keppnissál-
fræði. A námskeiðinu var farið í eftir-
talda þætti:
— Sálfræðileg úrlausnarefni
— Sálfræði íþróttaiðkunnar
— Þjálfunarsálfræði
— Keppnissálfræði
— Sálfræði íþróttastarfsins
— Sálfræði einstakra íþrótta-
greina
— Framþróun íþróttasálfræði
og 2. deild í handknattleik og knatt-
spyrnu, sóttu ekki námskeiðið betur
en raun varð á. Það verður að segjast
eins og er að allmargir þjálfarar, t.d. á
fyrmefndum stigum, eru ekki vel
ÁTAK í
ALMENNINGSÍÞRÓTTOM Á
SOÐORLANDI
Héraðssambandið Skarphéðinn
Þátttakendur á sálfræðinámskeiðinu ásamt prófessor A. Morgan Olsen,
Hannesi Þ. Sigurðssyni formanni fræðslunefndar ÍSÍ og Karli Guðmundssyni
fræðslustjóra ÍSÍ. Á myndina vantar Guðna Kjartansson og Guðmund Ólafs-
son frá KSÍ.
Hátt í 20 manns sóttu námskeiðið
sem þótti takast vel. Samt sem áður
vöknuðu spurningar varðandi þátt-
töku þjálfara á námskeiðinu. Hvar
voru þeir? A námskeiðinu var meiri-
hluti þátttakenda ungt og áhugasamt
fólk sem hafði þó litla reynslu. Nú er
vitað mál að hinn sálræni þáttur í
keppni og þjálfun á hinum ýmsu stig-
um íþróttastarfsins getur verið afger-
andi á úrslitastundum og vilja margir
fræðimenn meina að góð sálfræði-
þekking þjálfara á slíkum stundum sé
í raun punkturinn yfir i-ið. Þess vegna
vekur það furðu að þjálfarar, t.d. í 1.
menntaðir faglega séð og hefðu því
getað bætt miklu við kunnáttu sína.
Námskeið fyrir skotmenn
Prófessor A. Morgan Olsen hélt
einnig námskeið fyrir Skotsamband
íslands í hugrænni þjálfun fyrir skot-
menn og var það vel sótt. Yfir tuttugu
skotmenn hlýddu á A. Morgan Olsen
og þótti námskeiðið takast mjög vel.
A- stigs- og
grunnstigsnámskeið ÍSÍ.
* Fræðslunefnd ÍSÍ gekkst fyrir A-
mun standa fyrir átaki í almennings-
íþróttum á Suðurlandi ívetur. Trimm-
nefnd ÍSÍ mun aðstoða HSK-menn í
átakinu sem vonandi heppnast vel.
Akveðið hefur verið að eitt tölublað af
blaði HSK-manna „Skarphéðni"
verði helgað almenningsíþróttum.
Ráðstefna um almenningsíþróttir
verður haldin á Hótel Örk þ. 18. nóv-
ember nk. Þar sem lærðir sem leikir
munu flytja erindi. Bæklingum frá ÍSÍ
um almenningsíþróttir verður dreift í
öll hús á Suðurlandi og reynt verður
eftir fremsta megni að opna umræð-
una um gildi almenningsíþrótta.
70