Íþróttablaðið - 01.10.1989, Blaðsíða 72
Sovétríkjanna og hefur sá samningur
skilað miklum árangri fyrir íslenskt
íþróttalíf.
MENNTAMÁLARÁÐHERRA í
HEIMSÓKN
Svavar Gestsson, ráðherra íþrótta-
mála, mun heimsækja skrifstofu ÍSÍ
mánudaginn 9. október. Hann mun
hitta framkvæmdastjórn ISI og ræða
ýmis mál varðandi íþróttastarfið og
skoða Iþróttamiðstöðina í Laugardal.
Afmæli og viðurkenningar
* Ellert B. Schram, hinn ötuli og
vinsæli formaður KSI, varð fimmtug-
ur þriðjudaginn 10. október sl. A
fundi framkvæmdastjórnar ISI 28.
september sl. var einróma samþykkt
að sæma Ellert heiðursorðu ÍSÍ, sem
er æðsta viðurkenning sem hægt er
að hljóta innan íþróttahreyfingarinn-
ar, fyrir frábær störf innan íþrótta-
hreyfingarinnar.
* Nýtt og stórglæsilegt íþróttahús
var vígt í Garðabæ 30. september sl. í
ræðu sem Sveinn Björnsson forseti
ÍSÍ flutti við vígsluathöfn hússins
greindi hann frá þeirri ákvörðun
framkvæmdastjórnar ÍSI að veita
bæjarstjórnunum í Garðabæ og í
Mosfellsbæ viðurkenningar fyrir mikil
og góð störf í sambandi við uppbygg-
ingu íþróttamannvirkja. Til hamingju
Garðbæingar og Mosfellsbæingar!
* Nýr og glæsilegur íþróttavöllur
var vígður í Mosfellsbæ 23. septem-
ber sl. Völlurinn kemur til með að
gjörbreyta allri aðstöðu frjálsíþrótta-
fólks á höfuðborgarsvæðinu. Til
hamingju Mosfellsbæingar!
* Clngmennafélag Keflavíkur varð
60 ára 30 september sl. Jón Ármann
Héðinsson mætti í afmæliskaffi á
vegum félagsins þar sem mikið fjöl-
menni var samankomið.
Aveidum
Áskriftarsími
82300
Hverabakarí
Heiðmörk 35,
810 Hveragerði
© 98-34179
Útsölustaðir:
Höfn, Selfossi,
Hagkaup, Reykjavík,
Mikligarður, Reykjavík,
KRON, Eddufelli,
Verslunin Hveragarður, Hveragerði,
Verslunin Kjarabót, Selfossi.
72