Íþróttablaðið - 01.10.1989, Blaðsíða 78
SCIREALÁTINN
Einn virtasti knattspyrnumaður ítaliu fyrr og síðar, Geatano Scirea
og aðstoðarþjálfari Juventus, fórst í bílslysi í Póllandi fyrir rúmum
mánuði. Scirea, sem var aðeins 36 ára gamall þegar hann dó, var
margfaldur landsliðsmaður en hann lagði skóna á hilluna eftir að hafa
leikið gegn Val í Evrópukeppni meistaraliða árið 1986. Þá var hann
fyrirliði ítalska landsliðsins. Scirea brá sértil Póllandstil þess aðfylgjast
með leikmanni sem Juventus hafði áhuga á. Hann var farþegi í bíl með
bílstjóra ogtúlki. Bílstjórinn varað takaframúr þegar hann skall framan
ábíl sem kom úr gagnstæðri átt. Við áreksturinn sprakk bílIinn í loft upp
vegna þess að hann var með fulla bensínbrúsa í skottinu. í Póllandi er
svo langt á milli bensínstöðva að flestir bifreiðaeigendur eru ávallt með
birgðir af bensíni í bílunum.
Þar sem Scirea var svo dáður og elskaður af öllum olli dauði hans
mikilli sorgáftalíu. Þegarúrslitakeppni heimsmeistarakeppninnar hefst
á Ítalíu á næsta ári verður nýr leikvangur tekinn í notkun í Torino sem
rúmar 80.000 manns. Flestirfjölmiðlarogknattspyrnuáhugamenn vilja
nú láta völlinn heita „Scirea-leikvanginn" en yfirvöld hafa ekki enn
tekið ákvörðun þar að lútandi. Það væri þó vel við hæfi að mati flestra.
SONUR SCIREA
Riccardo Scirea 12 ára einkasonur I í Póllandi fyrir skömmu, virðist ætla
hins dáða Gaetano, sem lést íbílslysi I aðfeta ífótsporföðursíns. Hann leik-
Geatano Scirea var um langt skeið
einn besti knattspyrnumaður ítala og
fyrirliði landsliðsins. Hann lést í bíl-
slysi fyrir skömmu.
ur með drengjaliði Juventus en í það
voru valdir20efnilegustu drengirnir í
íþróttaskóla Juventus. Riccardo vek-
ur mikla athygli í leikjum drengja-
liðsins fyrir frábæra hæfileika með
knöttinn og segja fróðir menn að
hann muni áreiðanlega verða einn
sterkasti leikmaður Juventus innan
fárra ára.
3 í einu
vagn,
burðarrúm
og kerra
Varðan h.f.
Grettisgötu 2A. Sími 19031
78