Íþróttablaðið - 01.10.1989, Page 79
HRAKAGLEYPIR
Eins og flestum er kunnugt léku
Skagamenn í Evrópukeppni félags-
liða gegn FC. Liege frá Belgíu á dög-
unum. Skagamenn töpuðu báðum
leikjunum naumlega en markvörður
Liege er víst hinn furðulegasti ná-
ungi. Hann þykir góður markvörður
en er alveg óður í veðmál og á það til
að taka upp á hinum ótrúlegustu
hlutum. Einhverju sinni hræktu allir
leikmenn liðsins f glas og var afrakst-
urinn svo mikill að glasið varð nánst
fullt af grænu ólystugu slími. Síðan
hétu þeir allir sem einn að borga
markverðinum einhverja smá upp-
hæð ef hann myndi drekka hrákinn
úr glasinu. Vinurinn lét ekki segja sér
þaðtvisvar heldur þambaði innihald-
ið með bestu lyst og græddi þar með
nokkrar krónur. Hann hefur það líka
fyrir sið að bíta alla nýja leikmenn
sem koma til félagsins en sökum við-
kvæmni er ógjörningur að láta upp
hvaða hluti líkamans það er sem
hann bítur í!
Michael Laudrup hefur slitið sam-
skiptum við sambýliskonuna.
MARADONA KVÆNIST
það heilaga. Hann á tvær dætur me?
Gianninu sem er 5 mánaða gömul. Dilgo ogCl
dia hafa verið saman frá því þau voru unglingar
ætla að gita sig 7. nóvember næstkomandi. M:
ára gamall sonur hennar sé sonur Maradonæ Þi
73 langan tíma
fara íblóðprufi
111
iiÍiSÍiÍi!
SSÍSÍSÍÍS
’
iiiiiiii
LAUDRUP A
KVENNAFARI
Michael Laudrup, danski lands-
liðsmaðurinn í knattspyrnu, er nú
skilinn við Tinu, sambýliskonu sína.
Laudrup lék á Ítalíu í nokkur ár, m.a.
með Juventus en hann leikur nú með
Barcelona á Spáni. Laudrup og Tina
höfðu verið saman í næstum 10 ár og
eiga tæplega árs gamlan son. Micha-
el kynntist spænskri stúlku á frönsku
Ríveríunni í sumar og ákvað í kjölfar
þess að skilja við Tinu og hefja bú-
skap með hinni nýju kærustu. Þessi
konuskipti Laudrup's hafa komið
vinum og vandamönnum hans og
Tinu mikið á óvart og þeir eru sann-
færðir um að þau muni taka saman
aftur fyrr en varir. Tina er nú í Kaup-
mannahöfn ásamt syninum.
EITT ROLEX TAKK!
Knattspyrnumaðurinn sem staldraði við í Amsterdam á
dögunum hugði sér gott til glóðarinnar þegar hann sá
glæsilegt Rolex-úr í útsýnisglugga verslunar þar í borg.
Hann sá töluna 837 á verðmiðanum og var snöggur að
reikna hvað það gerði í íslenskum krónum. „Tæplega
24.000.- krónur fyrir Rolex er ekki hátt verð," hugsaði
hann með sér og arkaði brosandi inn í búðina í íþrótta-
skónum sínum.
„Ég ætla að fá þetta Rolex-úr sem er í glugganum,"
sagði pilturinn við afgreiðsludömuna. Hún virti hann fyrir
sér dágóða stund, fannst klæðaburður hans ekki gefa í
skyn að hann ætti mikla aura en sótti þó dýrgripinn.
„Hvernig hefurðu hugsað þér að borga úrið?" spurði
stúlkan þegar hún var búin að sækja úrið og gerði sig
líklega til þess að pakka því inn. Strákurinn dró nokkra
hollenska hundraðkalla upp úr vasanum og sagðist ætla
að borga með þeim og afganginn með Visa. Stúlkan varð
tortryggin enda ekki vön að selja dýrt Rolex-úr á þennan
máta. „Ertu viss uni að þetta sé úrið sem þú vilt?" spurði
hún undrandi.
„Já," svaraði strákurinn. „Kostar það ekki 837 gyllini?"
Nú sá afgreiðslustúlkan hvar hundurinn lá grafinn.
„Nei, elsku vinur. Þettaer bara númer á úrinu. Úrið kostar
30.000 gyllini."
Strákurinn stakk hundraðkallinum eldsnöggt í vasann
og lét Visakortið hverfa. Hann var snöggur að reikna og
þegar hann komst að þvf að úrið kostað tæplega
900.000,- íslenskar krónur þakkaði hann pent fyrir og
brosti. „Ætli ég haldi ekki bara áfram að hringja í 04."
Strípulitanir
Hárgreiðslustofan Klapparstíg
Klapparstíg 29 S: 13010