Íþróttablaðið - 01.04.1991, Side 47
MÓTHERJI GURRÝJAR
HANNA KATRÍN FRIÐRIKSEN
LEIKMAÐUR VALS:
Guðríðurertvímælalaustein besta
handknattleikskona íslands fyrr og
síðar. Hún hefur verið áberandi í ís-
lenskum kvennahandbolta í mörg ár
og virðist eiga nóg eftir. Styrkur Gurr-
ýar gegnum árin hefur aðallega legið
í því hversu góð skytta hún er og enn
virðist engin líklega til þess að ógna
stöðu hennar þar. Leikstíll hennar
hefur reyndar breyst og nú síðari árin
er hún orðin mjög góður varnarmað-
ur, en á þann þátt lagði hún minni
áherslu áður.
Gurrý er líka þannig skapi farin að
hún leikur alltaf best þegar mikið
liggur við og vegur keppnisskap
hennar þungt. Það hefur oft gerst
þegar framundan er mikilvægur leik-
ur hjá Fram að andstæðingarnir hafa
talað um að Gurrý sé ekki í formi —
hún hafi ekki leiki vel í síðustu leikj-
um. Gurrý getur átt sína lélegu leiki
einsogaðrir. Þeireru þófáirogþegar
mikið liggurvið klikkar hún ekki. Það
er bara óskhyggja andstæðinganna.
Óslitin sigurganga Fram undanfar-
in ár er að mestu leyti tveimur leik-
mönnum Fram að þakka — Gurrýog
Kolbrúnu markverði. Islenskur
kvennahandbolti er slakur miðað við
það sem best gerist í heiminum. Með
leikjum sínum með landsliðinu og í
Evrópuleikjum með Fram má segja
að Gurrý hafi virkilega sýnt hvað í
henni býr gegn sterkum mótherjum.
Fyrir tveimur árum lék Fram Evrópu-
leik gegn sovésku liði sem var og er
meðal sterkustu félagsliða heims.
Sovéska liðið vann örugglega en
Gurrý var besti leikmaður vallarins
og gerði mörg glæsileg mörk með
uppstökkum fyrir utan. Það þarf varla
að taka það fram að sovésku stúlk-
urnar voru flestar tæpir tveir metrar á
hæð.
Það er engin spurning að Gurrý er
erfiðasti andstæðingur minn í hand-
boltanum gegnum árin. Það eru ef-
laust margar sem hafa þá sögu að
segja en einu sinni heyrði ég Gurrý
viðurkenna að hún legði sig alltaf
meira fram gegn Val en öðrum lið-
um. Og þá er ekki að sökum að
spyrja. í mikilvægum leikjum er oft
meiri pressa á Gurrý en öðrum því
þjálfarar og meðspilarar treysta mjög
á að hún bjargi málunum. Ég lék
lengi með Gurrý í í landsliðinu og
verð að segja að það er ólíkt þægi-
legra að hafa hana sem meðspilara
en mótherja.
Það er ekki einfalt mál að telja up
galla Gurrýar sem handknattleiks-
konu. Það má kannski árétta að varn-
arleikurinn var ekki hennar sterkasta
hlið fyrir nokkrum árum en í dag er
hún að mínu mati jafnvíg í vörn og
sókn. Gurrý átti það til áður að vera
svolítil prímadonna. Ég man að þegar
ég var að byrja að leika gegn henni
var alltaf uppálagt af þjálfurum að
koma Gurrý í fýlu. Þar með væri hún
úr leik. Hún er líka skapstór á vellin-
um og á það til í hita leiksins að
skamma meðspilara sína óspart ef
henni finnstástæða til. Þetta hefurþó
allt breyst með árunum. Leikstíll
Gurrýjar hefur líka breyst því að hún
leggur nú meiri áherslu á að leika
meðspilara sína uppi, en það er al-
gengt með reynslumeiri leikmenn.
Það er akkur fyrir íslenskan kvenna-
handbolta að hafa Gurrý áfram í bar-
áttunni en sem mótherji vona ég að
hún fari nú að hætta þessu og snúa
sér að hannyrðum!"
GUÐMUNDUR
HRAFNKELSSON,
LANDSLiÐS-
MARKVÖRÐUR í
HANDBOLTA
Ætlar þú að skipta
um félag að
keppnistímabilinu
loknu, Guðmundur?
(Bergsveinn Bergsveinsson hefur
verið aðalmarkvörður FH í vetur
þótt Guðmundur sé aðalmark-
vörður landsliðsins)
Guðmundur Hrafnkelsson,
landsliðsmarkvörður.
„Ég hef alls ekkert ákveðið í
þeim efnum og ætla ekki að hugsa
um það fyrr en keppnistímabilinu
lýkur. Ég vil ekki fyrir nokkra
muni láta slíkar hugleiðingar
trufla mig núna þegar baráttan er í
algleymingi. Nei, éggetekki svar-
að því að svo stöddu hvort félag-
askipti koma til greina."
47