Íþróttablaðið - 01.04.1991, Side 59
Jóhann V. Hróbjartsson varð stiga-
hæsti spjótkastari landsins síðastlið-
ið sumar. Hann er líka lipur með
knöttinn.
ÓGILT MEÐ
REIMINNI
Unnar Garðarsson, frjálsíþrótta-
maður í HSK, hefur skipt yfir í ÍR.
Unnar hefur keppt í spjótkasti og
kringlukasti í gegnum tíðina en
reyndar aldrei einbeitt sér að annarri
greininni fremur en hinni. Ef hann
gerði það kæmist hann líklega í
fremstu röð. Hann er öflugur spjót-
kastari og hefur kastað lengst rétt
tæpa 70 metra í keppni. Eitt sinn náði
hann mjög góðu kasti, sem var
greinilega yfir 70 metra, og leit því út
fyrirað langþráðu takmarki væri náð.
En viti menn. Hann var með frekar
langar reimar í skónum sínum og
steig svo nálægt línunni að hann
gerði kastið ógilt með reiminni. Ekki
er öll vitleysan eins. Gamla reimin
lak yfir línuna. Það fylgir ekki sög-
unni hvort Unnar hafi kastað berfætt-
ur í næstu atrennu!
Jóhann V. Hróbjartsson, spjótkast-
ari í USVS, sem varð stigahæsti spjót-
kastari landsins síðastliðið sumar, var
á tímabili að velta því fyrir sér að
skipta yfir í HSK og koma þar með í
staðUnnars. Ekkert verðuraf þessum
félagaskiptum og mun Jóhann því
kasta fyrir USVS næsta sumar. Þess
mátil gamansgetaað Jóhann er mjög
liðtækur knattspyrnumaður og leik-
inn með knöttinn. Hann hefur náðað
halda bolta á lofti með 2500 snert-
ingum án þess að missa hann í jörð-
ina. Geri aðrir betur!
ER KNATTSPYRNUFERLI INGVARS
GUÐMUNDSSONAR í VAL LOKIÐ?
Allt útlit er fyrir það að einn af
máttarstólum Vals í knattspyrnu und-
anfarin ár, Ingvar Guðmundsson,
leiki ekki knattspyrnu framar. Eins og
mörgum er kunnugt var Ingvar frá
keppni nánast allt síðastliðið sumar
utan þess að leika gegn KR í 1. deild
og skora tvö mörk. Ingvar fór tvívegis
í uppskurð í fyrra vegna rifins liðþófa
en fékk engan bata. Eftir að giktar-
læknir skoðaði Ingvar og tók myndir
af hnénu á honum kom í Ijós að báðir
liðþófarnir í öðru hnénu voru farnir
og brjóskið dautt. Beinin hafa því
verið að nuddast saman og eru tölu-
vert skemmd. Að sögn giktarlæknis-
ins hefði mátt sjá þetta fyrir á mynd-
um ef nógu snemma hefði verið
hugsaðfyrir því — og koma í vegfyrir
skaðann. Núna snýst málið um að
koma Ingvari í aðgerð til þess að
hanngeti gengiðóhaltur íframtíðinni
en líklega sparkar hann ekki bolta í J.
deild framar. Þetta eru grátlegar frétt-
ir fyrir knattspyrnumann sem hafði
alla burði til þess að ná langt.
íþróttafólk!
GRÆNMETI ER GÓÐMETI
- OG ÍSLENSKT ALBEST
Sölufélag garðyrkjumanna
Leikur Ingvar Guðmundsson aldrei
knattspyrnu framar?