Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2020, Qupperneq 2
Sértrúarsöfnuður eða lyklapartí?
Svarthöfði elskar að setj-ast niður eftir langan vinnudag og skoða hvað
er í gangi í þjóðfélaginu. Það
sem Svarthöfði hatar samt er
þegar það er ekkert í gangi í
þjóðfélaginu. Einmitt núna þá
er gjörsamlega ekkert að ger-
ast á þessu pínkulitla og volga
skeri. Það gerist svo sem allt-
af eitthvað en það endar allt
svo fljótt. Eins og flugfreyju-
málið, Svarthöfði hefði verið
til í að sjá það rúlla áfram og
fá aðeins meiri spennu. Nú
er bara búið að leysa allt þar,
ekkert drama og þá er ekk-
ert til að vera spenntur yfir.
Alveg hreint frábært fyrir
flugfreyjurnar en fáránlega
leiðinlegt fyrir fólk eins og
Svarthöfða sem nærist á úlf-
úð og drama.
Það þarf bara eitthvað
virkilega áhugavert að gerast.
Eitthvað sem gerir Svart-
höfða kleift að demba sér
ofan í málið og vera ósam-
mála öllum og móðurömmu
þeirra líka.
Myndi það til dæmis drepa
Íslendinga að gera einhvern
stóran skandal, eitthvað sem
Svarthöfði getur fylgst alveg
rækilega með? Þið verðið
samt að skilja að Svarthöfði
vill ekki að neitt hræðilegt
gerist. En það væri samt fínt
að fá eitthvað til að tala um
í heita pottinum annað en
það hvað veðrið á Íslandi er
mismunandi. Það er eitthvað
sem varð þreytt áður en það
byrjaði.
Svarthöfði er alltaf að
pæla svo hann hefur ákveðið
að koma með nokkrar hug-
myndir. Til dæmis gæti eitt-
hvert fólk tekið sig saman og
stofnað eins og einn sértrúar-
söfnuð, eða jafnvel haldið
risastórt lyklapartí. Það væri
síðan líka gaman að fá eitt-
hvert klassískt pistlarifrildi,
Kári Stefánsson gæti kannski
reddað því. Það væri líka gam-
an ef einhver í ríkisstjórninni
myndi slíta stjórnarsamstarf-
inu, það er alltaf skemmtilegt
að fylgjast með kosningum.
Málið er að Svarthöfði er
ekki að biðja um mikið. Það
þarf bara eitthvað sem lætur
mann gleyma því að sumarið
er alveg að klárast og skamm-
degisþunglyndið fer að banka
upp á dyrnar eftir fáeinar
vikur. Það er nefnilega hræði-
lega stutt í það að allt verði
kalt, leiðinlegt og dapurt. Þá
er alltaf nóg í gangi en Svart-
höfði nær ekki að meta það
jafn vel því hann er djúpt
niðri, einn og einmana með
sínum eigin hugsunum. Það
er sama hvað Svarthöfði
gerir, hann nær aldrei að
sleppa frá sínum eigin óraun-
verulega raunveruleika. Þess
vegna vill hann að eitthvað
magnað gerist áður en hann
fellur ofan í hyldýpi síns eigin
sjálfs.
Það þarf bara einhver að
taka einn á sig fyrir liðið
og gera eitthvað áhugavert
sem þjóðin getur fylgst með.
Svarthöfði man gömlu góðu
dagana þegar fáránlegir
hlutir gerðust sí svona. Eins
og þegar einhver gaur sem
hét Almar ákvað að vera
nakinn í kassa fyrir framan
alla þjóðina. Sú umræða náði
ákveðnum hápunkti þegar
Almar ákvað eitt kvöldið að
svara kalli náttúrunnar og
kassamerkið #nakinníkassa
fór að trenda. Hvar er fólk
eins og Almar þegar maður
þarf á því að halda? n
SVART HÖFÐI
Aðalnúmer: 550 5060
Auglýsingar: 550 5070
Ritstjórn: 550 5070
FRÉTTA SKOT
550 5070
abending@dv.is
Nú(nú) er nóg komið
V
ilhjálmur Bjarnason, fyrrverandi þing-
maður, fór hörðum orðum um smálána-
fyrirtækin á dögunum í aðsendri grein
í Morgunblaðinu þar sem hann sagði
meðal annars: „Það ættu að verða örlög
lögsmámenna, sem notfæra sér neyð
og bágindi annarra við innheimtu smálána, að fara í
hið neðra og brenna þar vítislogum á teinum og rotna
svo í mógröf, til efsta dags, og ná aldrei augliti guðs.“
Ansi harkaleg orð.
Flestum finnst þau hins vegar eiga fullkomlega rétt
á sér. Smálán eru smánarblettur á samfélaginu. Þeir
sem nýta sér þessi lán eru í flestum tilvikum fólk sem
hefur enga aðra leið til að verða sér úti um pening og
áttar sig ekki á þeim vítahring sem það getur lent í
með töku þeirra.
Við höfum heyrt dæmi af andlega veiku fólki sem
hefur tekið smálánin og lent í skuldasúpu.
Fíklar hafa nýtt smálánin til að verða
sér úti um næsta skammt. Hand-
rukkarar í undirheimum hafa líka
nýtt sér þennan möguleika. Nú er
ekki bara hægt að neyða fólk með
ofbeldi til að taka út úr hraðbanka
til að borga skuldina sína, heldur
er hægt að neyða fólk til að taka
smálán í gegnum snjallsímann.
Einstaklingar með þroska-
skerðingu hafa tekið lánin í
góðri trú, aðeins til þess að fá
mörg hundruð prósenta vexti
í bakið.
Eins og fram kemur í ítar-
legri umfjöllun í blaðinu
vísa vefsíður allra eldri
smálánafyrirtækjanna
á Núnú lán, sem stofnað
var á þessu ári, en
eigandi fyrsta íslenska
smálánafyrirtækisins
er meirihlutaeigandi
í Núnú, sem er eitt
um hituna í dag. Það
var síðan áhugaverð
tilviljun að Núnú
lán séu á vef sínum
skráð til húsa í sömu
byggingu og DV. Blaðamaður fann hins vegar enga
slíka starfsemi í húsinu.
Nú vill svo til að fjallað hefur verið um smálánafyr-
irtækin árum saman en lítið virðist breytast. Lögum
er breytt eitthvað örlítið en fyrirtækin halda ótrauð
áfram, breyta skilmálum sínum örlítið og ráðast í
málamyndunargjörninga með flýtigjöld og rafbækur.
Svona hefur þetta gengið. Stundum virðist hreinlega
eins og áhugi stjórnvalda sé ekki einlægur í þessum
málum.
Á dögunum auglýsti stjórnarþingmaður eftir
reynslusögum þeirra sem hefðu lent í klóm smálána
og ætlaði aldeilis að láta til sín taka. DV reyndi dögum
saman að ræða þetta við þingmanninn en alltaf var
hann of upptekinn.
Í fréttaskýringaþættinum Kveik í fyrra var ítarlega
fjallað um smálánafyrirtækin og þar meðal annars
rætt við sparisjóðsstjóra Sparisjóðs Strandamanna,
eina fjármálafyrirtækisins sem aðstoðar smálána-
fyrirtækin við greiðslumiðlun.
Þá sagðist hann íhuga að loka á smálánafyrirtækin.
Það hefur enn ekki verið gert. ASÍ og Neytenda-
samtökin létu hins vegar verkin tala fyrr á árinu og
stofnuðu sérstök baráttusamtök gegn smálánastarf-
semi sem hafa það að markmiði að aðstoða þolendur
smálánastarfsemi og girða fyrir það að slík starf-
semi fái þrifist. Samkvæmt könnun aðildarfélaga ASÍ
meðal félagsmanna sinna geta 25% þeirra sem lenda
í skuldavanda rakið orsökina til smálána. Við megum
engan tíma missa. Nú(nú) er nóg komið. n
Smálán eru
smánarblettur á
samfélaginu.
UPPÁHALDS
ÚTGÁFUFÉLAG: Torg ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Helgi Magnússon FORSTJÓRI OG ÚTGEFANDI: Jóhanna Helga Viðarsdóttir
RITSTJÓRI: Þorbjörg Marinósdóttir, tobba@dv.is FRÉTTASTJÓRI: Erla Hlynsdóttir, erlahlyns@dv.is AUGLÝSINGAUMSJÓN: Ruth Bergsdóttir, ruth@dv.is
PRENTUN: Torg prentfélag DREIFING: Póstdreifing | DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. DV, Kalkofnsvegi 2, 101 Reykjavík Sími: 550 7000.
Olga Björt Þórðardóttir er
ritstjóri og útgefandi bæjar-
blaðsins Hafnfirðings. Hún
velur uppáhaldsnúvitundar-
staði sína, vegna þess að
núvitund hefur bjargað geð-
heilsu hennar undir álagi og í
kjölfar áfalla.
1 Álftanesfjara
Það eru einhverjir töfrar
við að horfa á öldurótið og
fallegt sólarlag, hvort sem
það er flóð eða fjara og sama
hvaða árstíð er.
2 Hvaleyrarvatn
Þessi náttúruperla í Hafnar-
firði hefur allt sem þarf til
að ná góðri upplifun; göngu-
leiðir umhverfis vatnið og
í skóginum, vaða berfætt,
synda eða sigla, eða bara
grilla og njóta með fjölskyldu
og vinum.
3 Helgafell
Eftir að hafa reynt aðeins á
sig á leið upp á Helgafell er
einstök tilfinning að finna
sér stað fyrir einveru í friði á
toppnum (þar er nóg pláss!),
setjast niður í endorfínvímu
og þakka fyrir heilsuna, lífið
og fólkið sitt.
4 Hellisgerði
Ótrúlega fallegur og kyrr-
látur staður með álfahólum
og Álfabúð í gömlu húsi.
Þarna finnst mér notalegast
að finna einhvern stað til að
setjast í grasið og rýna í nátt-
úrufegurðina, blómin og trén
í kringum mig – gjarnan með
myndavélina með mér.
NÚVITUNDAR-
STAÐIR
2 EYJAN 24. JÚLÍ 2020 DV