Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2020, Page 16
16 FRÉTTIR 24. JÚLÍ 2020 DV
Úr varð lagaleg deila milli
íslenskra stjórnvalda og smá-
lánafyrirtækja um hvort ís-
lensk lög giltu um starfsem-
ina eða dönsk. Ef starfsemi
smálánafyrirtækjanna lyti
dönskum lögum væru fyrri
úrskurðir íslenskra stjórn-
valda og eftirlitsaðila sem
og fordæmi fyrri dóma á Ís-
landi einskis virði. Á þetta
reyndi aldrei. Neytendastofa
úrskurðaði að íslensk lög giltu
um útlán „dönsku“ fyrirtækj-
anna og staðfesti áfrýjunar-
nefnd neytendamála þá niður-
stöðu fyrr á þessu ári.
Fregnir af andláti
smálána stórlega ýktar
Í júlí 2019 var tilkynnt í fjöl-
miðlum, „okurlán Kredia
Group heyra sögunni til“.
Sagði Ondrej Smokal, forstjóri
Kredia Group, sem átti og rak
Hraðpeninga, Kredia og 1909,
að dagar okurlána væru liðnir
og þeir væru hættir að inn-
heimta vexti umfram hámarks
ÁHK. 50% hámark ÁHK hef-
ur síðan verið lækkað í 35%
auk stýrivaxta og innheimta
lána sem brjóta það ákvæði
bönnuð með lögum. Hámarks-
kostnaður sem leggja má á lán
á Íslandi í dag miðað við nú-
verandi stýrivexti er því 36%
á ári. Enn fremur virðast
fyrirtækin dönsku hafa hætt
starfsemi.
Ef vefsíður þeirra eru heim-
sóttar í dag vísa þær allar á
enn eitt fyrirtækið, „Núnú
lán“, til heimilis að Kalkofns-
vegi 2. Svo vill til að skrifstofa
Torgs, sem meðal annars rek-
ur DV, er einnig til heimilis að
Kalkofnsvegi 2. Það var því
hægðarleikur blaðamanns að
komast að því að heimilisfang-
ið er einungis enn ein skelin.
Þar er enga fjármálastarfsemi
að finna.
Eigandi 68% hlutar Núnú
láns ehf. er Leifur Haraldsson,
sami maður og kom fram fyrir
hönd fyrsta íslenska smálána-
fyrirtækisins, Kredia ehf. Á
heimasíðu Núnú lána stendur:
„Þú getur sótt um 12.000 kr.
- 24.000 kr. lán á heimasíðu
okkar sem skammtíma lausn
á fjárhagslegum erfiðleikum.“
Þannig er ljóst að hámarks-
lán er talsvert lægra en verið
hefur, en hins vegar er ekki að
sjá á heimasíðunni að hámark
sé á fjölda lána. Þannig gæti
Núnú veitt einstaklingi oftar
en einu sinni 24.000 króna
lán. Færi hins vegar svo að
lántakandi stæði ekki undir
endurgreiðslu lánanna, mætti
innheimta innheimtukostnað
á hvert lán fyrir sig. Á þessa
innheimtuaðferð, þ.e. að inn-
heimta mörg lítil lán með
þessum hætti hefur ekki reynt
á fyrir dómi, enn þá.
Samkvæmt heimildamanni
DV má vænta þess að smá-
lánafyrirtækin séu ekki hætt
klækjabrögðum sínum. Nú sé
eflaust tekið við breytt við-
skiptamódel þar sem pening-
um er aflað með öðrum leið-
um. Þó ljóst sé að Núnú starfi
samkvæmt íslenskum lögum
og veiti lán á áðurnefndum há-
marksvöxtum og kostnaði þá
beinast nú augu eftirlitsaðila
að innheimtuaðferðum. Þá
sérstaklega að kostnaði við
innheimtuaðgerðir sem getur,
eins og áður sagði, orðið um-
talsverður. Um innheimtu-
kostnað gilda aðrar reglur og
önnur lög.
Löginnheimta lögmanna
eftirlitslaus með öllu
Á þessar reglur hefur ekki
reynt í samhengi smálánafyr-
irtækjanna. Er það, að sögn
Breka Karlssonar, að hluta
til vegna þess að um löginn-
heimtu lögmanna gilda víðar
reglur og er eftirlitið ekki á
forræði neins opinbers aðila.
Aðeins Lögmannafélagið hef-
ur eftirlit með starfsemi ein-
stakra lögmanna. Þannig fell-
ur innheimta lögmanna ekki
undir leyfisskylda starfsemi
og er ekki háð neinu eftirliti
eða leyfisveitingu stjórnvalds.
Almenn innheimta ehf.
hefur undanfarið séð um inn-
heimtu á lánum smálánafyrir-
tækjanna og hefur legið undir
ámæli fyrir harkalegar inn-
heimtuaðferðir. Úrskurðaði
meðal annars úrskurðarnefnd
lögmanna í maí á þessu ári að
háttsemi eiganda stofunnar
væru „aðfinnsluverð“. Meira
getur Lögmannafélagið ekki
gert utan þess að svipta um-
ræddan lögmann lögmanns-
réttindum sínum, en því úr-
ræði er afar sjaldan beitt.
Umboðsmaður Alþingis, Neyt-
endasamtökin og fleiri aðilar
hafa gert alvarlegar athuga-
semdir við þetta fyrirkomulag.
Almenn innheimta sinnir sinni
innheimtu í gegnum Sparisjóð
Strandamanna á Hólmavík, en
aðrir bankar hafa úthýst inn-
heimtustarfsemi fyrir smá-
lánafyrirtækin.
Eigandi Almennrar inn-
heimtu ehf., lögmaðurinn Gísli
Kristbjörn Björnsson, vildi
ekki tjá sig um málið við DV.
Viðmælendur DV eru á einu
máli um að stríðinu við smá-
lánafyrirtækin sé ekki lokið
og að næsti bardagi verði
um innheimtuaðferðir þeirra
og álagðan kostnað vegna
þeirra. n
VAFASÖM SMS
SMS-sendingar smálánafyrir-
tækja voru umdeild en Póst- og
fjarskiptastofnun úrskurðaði þau
ólögleg. Augljóst var að þeim var
beint að ungu fólki og voru send-
ingarnar sérstaklega áberandi til
dæmis í vikunni fyrir verslunar-
mannahelgi og dagana fyrir frí-
daga.
Í UPPHAFI OG ENDI
Leifur Alexander Haraldsson
kom að Kredia í upphafi smálána-
faraldursins á Íslandi. Fyrirtæki
Leifs keypti svo aftur Kredia á
þessu ári en sagðist vera á leið í
kreditkortabransann undir nafn-
inu Núnú lán. Núnú lán starfar nú
sem smálánafyrirtæki til heimilis
að Kalkofnsvegi 2. Skrifstofur
DV eru í því húsi, og þar er Núnú
lán hvergi sjáanlegt. Blaðamaður
hringdi í þjónustuver Núnú láns,
en sá sem svaraði gat engar upp-
lýsingar veitt.
MYND/AÐSEND
Má vænta þess
að smálánafyrir-
tækin séu ekki
hætt klækja-
brögðum sínum.
MYND/SKJÁSKOT
Sæktu Fréttablaðsappið frítt!
BYRJAÐU DAGINN MEÐ
FRÉTTABLAÐINU
Lestu Fréttablað dagsins í snjalltækinu þínu, hvar og hvenær sem er!