Dagblaðið Vísir - DV - 24.07.2020, Blaðsíða 18
18 FRÉTTIR 24. JÚLÍ 2020 DV
Jón Þór
Stefánsson
jonthor@dv.is
Í síðustu viku fjallaði ég um för mína í hið margumtal-aða kynlífsherbergi. Við-
brögðin sem ég fékk við þeirri
grein voru afskaplega jákvæð.
Þess vegna spurði yfirmaður
minn hvort ég hefði ekki
áhuga á að fara aftur í svona
áhugaverðan rannsóknarleið-
angur. Það fannst mér vera
góð hugmynd. „En hvað viltu
þá gera í þessari viku?“ spurði
yfirmaður minn. Ég hugsaði
mig um. „Tja, ég væri alveg
til í að fara í nudd.“
Þar með var það ákveðið.
Ég var að fara í nudd, en ekki
bara eitthvert hefðbundið og
venjulegt nudd. Nei, ég fór í
súkkulaðinudd. Lengi hafði
mér fundist gott að borða
súkkulaði en aldrei hafði mig
grunað að einhvern tímann
yrði ég nuddaður upp úr því.
Sá möguleiki er nefnilega í
boði í Laugar Spa.
Mögulega versta
martröð nuddarans
Mér tókst þó eflaust að klúðra
nokkurn veginn öllu sem ég
átti að gera. Ég mætti of seint,
án sundfata og handklæða-
laus. Auk þess hafði ég ekki
verið að slaka neitt sérstak-
lega mikið á fyrr um daginn,
en ég kom beint úr vinnunni
og var auðvitað enn í vinnunni
– nýbúinn að drekka nokkra
kaffibolla og orkudrykk. Ekk-
ert af þessu hafði verið tekið
fram við bókun og ég auðvitað
bara nýgræðingur í súkku-
laðinuddi. Ég óttaðist að vera
martröð nuddarans: Seinn,
sundfatalaus og stífur vegna
koffínneyslu.
Úr móttöku Laugar Spa var
mér fylgt inn í lítið herbergi
með nuddbekk og sturtuað-
stöðu. Þarna inni voru kerta-
ljós og þægileg tónlist í gangi.
Ég var skilinn eftir, en ekki
fyrr en mér hafði verið sagt
að ég skyldi klæða mig úr föt-
unum og klæða mig í einnota
nærbuxur, eins konar papp-
írs-þveng sem hægt væri að
henda þegar hann væri útat-
aður í súkkulaði, og leggjast
á magann á nuddbekknum.
Þessum leiðbeiningum fylgdi
ég nákvæmlega. Ég ætlaði
ekki að gera fleiri mistök.
Súkkulaðisósa
Þetta nudd var í rauninni alls
ekkert ólíkt því sem ég hef
áður kynnst. Í þetta skiptið
var það hins vegar eins konar
súkkulaðisósa sem var notuð
í stað nuddolíu, en hún er jú
reyndar bæði þykkari og heit-
ari en þessi hefðbundna nudd-
olía. Þá finnur maður einnig
sterka lykt af súkkulaði með-
an á nuddinu stendur. Sjálft
nuddið hefur tekið um það bil
klukkutíma og það var mjög
notalegt og gott allan tímann.
Að nuddinu loknu spurði
ég nuddarann: „Hvers vegna
súkkulaði? Hefur það einhver
sérstök áhrif?“ Hann sagði
mér að í súkkulaði væri mikið
um andoxunarefni sem færu
mjög vel með húðina. Nú hef ég
einnig eitthvað reynt að gúggla
mig til um þetta og svo virðist
vera að súkkulaði hafi góð og
róandi áhrif á líkama og sál.
Ég get ekki lagt mat á sann-
leiksgildi þessara upplýsinga
enda enginn sérstakur hafsjór
af fróðleik um hvað sé gott
fyrir húðina og hvað ekki. En
súkkulaði er gott. Eflaust allra
meina bót.
Forvarnarauglýsing
fyrir brúnkukrem
Ég leit í spegil eftir nuddið
og komst að því að ég leit út
eins og forvarnarauglýsing
fyrir brúnkukrem. Því dreif
ég mig í sturtuna. Í dágóðan
tíma var niðurfallið einn stór
drullupollur. Það var á meðan
ég reyndi að skola alla króka
og kima vel og vandlega. Það
sem ég óttaðist nefnilega hvað
mest fyrir þessa ferð mína
var að súkkulaðið myndi ein-
hvern veginn festast við
húðina á mér og ég þyrfti að
kaupa nýtt lak á rúmið mitt
daglega í nokkrar vikur. Ég
var svo lengi í sturtunni að
nuddarinn var farinn að hafa
áhyggjur af mér.
Úr sturtunni fór ég síðan
í sjálft baðhúsið, eða spa-ið,
sem er að mínu mati einstak-
lega vel hannað og flott. Alls
konar gufuböð, laugar, vaskar
og aðrar græjur sem ég mæli
eindregið með. Eftir baðhúsið
klæddi ég mig aftur í og fór
út. Þá var komið að því að gera
upp. 15.990 krónur er lítið verð
fyrir mann sem lætur vinnu-
veitandann borga fyrir sig.
Minni samskipti
við hundinn
Þegar ég keyrði heim til mín
komst ég ekki hjá því að finna
smá súkkulaðilykt. Hún var
greinilega ekki horfin þrátt
fyrir þessa löngu og ströngu
sturtu mína. Þegar ég kom
heim tók elskulegi hundurinn
minn á móti mér. Hann er
líkt og margir aðrir hundar
einstaklega hugulsamur, því
vildi hann fá að kyssa mig og
sleikja. Mér var þó illa við
það að þessu sinni, enda al-
talað að súkkulaði sé hundum
stórhættulegt. Seinna sama
dag fór ég aftur í sturtu en
alltaf fann ég súkkulaðilykt-
ina.
Þó svo að súkkulaðið hafi
góð áhrif á líkamann og að
nuddið hafi verið æðislegt,
þá verð ég samt að spyrja
að leikslokum. Er ekki bara
betra að halda áfram að borða
súkkulaði og nota olíur í nudd-
ið eins og það hefur verið? n
Þessar myndir eru nær raunveruleikanum. Svona leit ég út þegar ég kom úr nuddinu. Mér var úthlutað þessum pappírsnærbuxum. MYNDIR/JÞS
Súkkulaðinudd er gjarnan auglýst með svona myndum. MYNDIR/GETTY
SEIÐANDI SÚKKULAÐINUDD
ÓTTAÐIST AÐ ENDA SEM VERSTA
MARTRÖÐ SÚKKULAÐINUDDARANS
Í vikunni fór ég í súkkulaðinudd í Laugar Spa. Það var einstök upplifun, en síðan þá
hef ég verið duglegur að fara í sturtu og átt í minni samskiptum við hundinn minn.