Morgunblaðið - 04.01.2020, Page 1

Morgunblaðið - 04.01.2020, Page 1
ÍÞRÓTTAFÓLK SEM SKARAÐI FRAM ÚR Á LIÐNU ÁRI MYNDRÆN PLATA VEKUR EFTIRTEKT TÓNLISTARHÓPURINN HLÖKK 45VERÐLAUN VÍÐA UM LAND 12 Jólasveinarnir kvöddu mannabyggð í Vest- mannaeyjum heldur snemma þetta árið því ÍBV hélt þrettándagleði sína í gærkvöldi, þremur dögum fyrir síðasta dag jóla. Úti- skemmtun á þrettándanum á sér langa hefð í Eyjum en í nokkur ár hefur verið haldin hátíð sem nær yfir heila helgi, einskonar bæjarhátíð sem dregur að sér fjölda fólks. Það voru ekki aðeins Kertasníkir og hinir jólasveinarnir sem kvöddu í gær heldur komu álfar og tröll og skemmtu sér með hátíðargestum. Að vanda voru sungnir álfasöngvar. Eyjamenn halda þrettándagleði heila helgi Morgunblaðið/Óskar Pétur Friðriksson Kertasníkir kvaddi mannabyggð í Eyjum aðeins of snemma Ferðaskrifstofan Heimsferðir hef- ur samið við ítalska flugfélagið Neos um að sinna flugi til allra áfangastaða fyrirtækisins í sumar. Mun Neos því sinna um 80% af ferð- um Heimsferða. Nær samningurinn til 34 þúsund flugsæta eða 68 þús- und flugleggja. Í sumar munu Heimsferðir bjóða upp á vikulegar ferðir til Veróna á Ítalíu, auk ferða til Krítar, Króatíu, og þriggja áfangastaða á Spáni. Í tengslum við samstarfið við Neos hafa Heimsferðir selt 2.000 flug- sæti til ítalskra ferðaskrifstofa og er sú ráðstöfun talin auka líkurnar á frekari straumi ferðamanna frá Ítalíu hingað til lands. »20 Heimsferðir semja við ítalskt flugfélag Baldur Arnarson baldura@mbl.is Karl Sigurðsson, sérfræðingur hjá Vinnumálstofnun (VMST), áætlar að allt að 9.400 manns verði á atvinnu- leysisskrá í ár þegar mest lætur. Til samanburðar eru nú um 7.600 manns á atvinnuleysisskrá. Spár um hagvöxt á þessu ári hafa verið endurmetnar til lækkunar. Nú síðast spáði Arion banki 0,6% hag- vexti í ár. Samkvæmt VMST munu þá aðeins verða til 400-500 störf á þessu ári en það er langt undir nátt- úrulegri fjölgun á vinnumarkaði. Fjölgun annað árið í röð Af þeim sökum er útlit fyrir að fólki á atvinnuleysisskrá muni fjölga. Með því yrði þetta annað árið í röð þar sem atvinnuleysið eykst. Vegna minna vinnuframboðs mun samkeppni um störf harðna. Nýlegt dæmi er að 80 manns sóttu um starf kynningarfulltrúa hjá fyrirtæki á höfuðborgarsvæðinu. Ingólfur Bender, aðalhagfræðingur Samtaka iðnaðarins, segir stefna í 1% hagvöxt í ár. Niðurstaðan muni að hluta ráð- ast af viðbrögðum stjórnvalda. Karl segir minna framboð af störf- um jafnan hafa leitt til brottflutnings fólks frá landinu. Fleiri munu verða án vinnu  Áætlun VMST bendir til að lítil fjölgun starfa í ár leiði til meira atvinnuleysis  Kólnun á vinnumarkaði gæti birst í auknum brottflutningi fólks frá landinu í ár Minni yfirvinna í boði » Yfirvinna hefur í gegnum tíðina verið hátt hlutfall heildarlauna á Íslandi. » Dregið hefur úr yfirvinnu í byggingariðnaði undanfarið og það haft áhrif á laun. MÚtlit fyrir aukið … »6 Jarðfræðingurinn Arnþór Óli Ara- son hefur gengið 43 þúsund kíló- metra á sautján árum. Samsvarar það rúmlega ummáli jarðar um mið- baug og er hann því kominn á annan hring umhverfis hnöttinn. Arnþór hefur gengið af ástríðu í mörg ár, sérstaklega eftir að hann fór á eftirlaun fyrir fimm árum. Hann gengur mest um Reykjavík og Reykjanesskagann en einnig víðar um landið. Þá gengur hann töluvert víðar um Evrópu. Hann er mikill ná- kvæmnismaður og skráir ferðir sín- ar í tölvu, merkir inn á kort og útbýr myndabækur um leiðirnar. Árið 2007 setti Arnþór sér það takmark að ganga allar götur Reykjavíkur og lauk því verkefni fyrir nokkru. „Ég bíð eftir að nýjar götur verði göngufærar og fer þá af stað,“ segir hann. Arnþór samsinnir því að hann sé líklega eini maðurinn sem gengið hefur allar götur Reykjavíkur- borgar. »SunnudagsMogginn Gengið allar göturnar  Göngugarpur kominn á annan hring um hnöttinn Morgunblaðið/Ásdís Göngugarpur Arnþór Óli Arason merkir göngurnar inn á landakort. Tilraunir til margvíslegra fjársvika á netinu sem beindust gegn viðskipta- vinum Landsbankans voru 76% fleiri í fyrra en árið 2018, að sögn Her- manns Þórs Snorrasonar, sérfræð- ings á fyrirtækjasviði Landsbank- ans. Hann sagði að netsvik af ýmsu tagi færðust stöðugt í vöxt. Netsvik eru flokkuð niður og á fyrrnefnd aukning við átta stærstu flokkana. Landsbankinn styðst við sömu flokkun og notuð er í ná- grannalöndunum. Reglulegir fundir eru haldnir með samstarfsbönkum í öðrum löndum. Fjárfestasvik eru umfangsmesti flokkurinn og fjölgaði slíkum tilvikum þar sem verið var að blekkja viðskiptavini Landsbankans í fyrra um 152% frá árinu 2018. „Ljóst er að íslenska lögreglan þarf að búa yfir nægilegum styrk og tæknilegri getu til að rannsaka net- og tölvuglæpi. Geta hennar til þess er í dag lítil,“ segir í nýrri stefnu- miðaðri greiningarskýrslu embættis ríkislögreglustjóra. »22 Tilraunum til netsvika fjölgaði um 76% 2019 L a u g a r d a g u r 4 . j a n ú a r 2 0 2 0  Stofnað 1913  3. tölublað  108. árgangur 

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.