Morgunblaðið - 04.01.2020, Qupperneq 8
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2020
Í nýrri Hagsjá Landsbankans erfjallað um launa- og kaupmátt-
arþróun síðustu ára og er óhætt að
segja að þær tölur sýni stórbætt
kjör almennings hér á landi á liðn-
um áratug.
Kaupmáttur núer 26%
hærri en hann var
hæstur fyrir fall
bankanna, sem
var um mitt ár
2008.
Þessi þróun á sér stað þrátt fyrirbankafallið, sem hafði vita-
skuld neikvæð áhrif, og lýsir gríð-
arlegum árangri á síðustu árum.
Í Hagsjánni kemur einnig framað ekki séu mikil merki launa-
skriðs um þessar mundir og tekið
er fram að spenna á vinnumarkaði
hafi farið minnkandi eins og sjáist
til dæmis á auknu atvinnuleysi og
minni atvinnuþátttöku.
Þetta er það neikvæða við þærmiklu launahækkanir sem orð-
ið hafa á síðustu árum. Þó að mikl-
ar launahækkanir séu fagnaðar-
efni hafa þær í raun verið umfram
það sem atvinnulífið getur staðið
undir.
Afleiðingar þessa koma fram ífækkun starfsfólks með marg-
víslegri hagræðingu, auknum fjár-
festingum í tækni sem dregur úr
þörf á vinnuafli og jafnvel flutningi
á störfum út fyrir landsteinana.
Um leið og því er fagnað aðlaunahækkanirnar hafa ekki
brotist út í aukinni verðbólgu er
nauðsynlegt að huga að þessum af-
leiðingum. Þær eru áminning um
að í þessu eins og flestu er sígandi
lukka best.
Kaupmátturinn
og lukkan sígandi
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Umsóknarfrestur um þátttöku í hönnunarsam-
keppni um brú yfir Fossvog er liðinn.
Allar þátttökuóskir voru rafrænar og voru opn-
aðar í viðurvist fulltrúa Borgarlínunnar, Kópa-
vogsbæjar og Reykjavíkurborgar. Mjög góð þátt-
taka var í útboðinu og bárust óskir frá 17
hönnunarteymum, að því er fram kemur á vef
Vegagerðarinnar. Óskir um þátttöku bárust bæði
frá innlendum og erlendum verkfræði- og arki-
tektastofum. Í flestum teymum er um að ræða
samstarf innlendra og erlendra aðila.
Matsnefnd mun nú fara yfir umsóknirnar og
velja fimm teymi til að taka þátt í hönnunarsam-
keppninni. Gert er ráð fyrir að niðurstaða liggi fyr-
ir um miðjan janúar og að hönnunarsamkeppnin
hefjist í framhaldinu. Þau fimm hönnunarteymi
sem verða valin munu fá greitt fyrir sitt framlag í
samkeppninni. Að lokinni samkeppni er gert ráð
fyrir að samið verði við sigurvegarann um fulln-
aðarhönnun nýrrar brúar yfir Fossvog.
Nýja brúin verður hluti af fyrsta áfanga upp-
byggingar vegna Borgarlínu milli Hamraborgar í
Kópavogi og Hlemms.
Á brúnni verður gert ráð fyrir hjóla- og göngu-
stíg ásamt akreinum fyrir almenningssamgöngur
sem tengjast stíga- og gatnakerfi Kópavogsbæjar
og Reykjavíkurborgar. Ekki er gert ráð fyrir al-
mennri umferð ökutækja. sisi@mbl.is
Margir vilja hanna Fossvogsbrú
Fossvogsbrúin Hugmynd að útliti. Hönnunar-
teymi verður falin endanleg útfærsla brúarinnar.
Dómsmálaráðuneytið hefur með
auglýsingu í Lögbirtingablaðinu í
gær auglýst laust til umsóknar
embætti dómara við Landsrétt. Um
er að ræða dómaraembætti sem
losnaði þegar Ingveldur Einars-
dóttir var skipuð dómari við Hæsta-
rétt.
Á skömmum tíma hefur dóms-
málaráðuneytið auglýst þrjú emb-
ætti landsréttardómara. Fram kem-
ur þar að ráðuneytið hyggst hraða
ráðningarferlinu.
Stefnt er að því að skipa í emb-
ættið í stað Ingveldar hið fyrsta
eftir að dómnefnd um hæfni um-
sækjenda um dómaraembætti hefur
lokið störfum, segir í auglýsingunni.
Enda hefur Ingveldur nú þegar
hafið störf við Hæstarétt. Umsókn-
ir skulu berast dómsmála-
ráðuneytinu eigi síðar en 20. janúar
2020. Til þess að hraða afgreiðslu
umsókna og bréfaskiptum er áskilið
að umsóknir og fylgigögn berist
dómsmálaráðuneytinu með rafræn-
um hætti.
Skömmu fyrir jól auglýsti dóms-
málaráðuneytið tvö embætti lands-
réttardómara laus til setningar.
Umsóknarfrestur er til 6. janúar
næstkomandi. Sett verður í þau
embætti eins fljótt og auðið er eftir
að nefnd um hæfni umsækjenda um
embætti dómara skilar umsögn
sinni, að því er fram kom í auglýs-
ingu.
Hjörtur O. Aðalsteinsson, dóm-
stjóri við Héraðsdóm Suðurlands,
og Björg Thorarensen, prófessor
við Háskóla Íslands, hafa verið sett
tímabundið í embætti landsréttar-
dómara frá 1. janúar 2020 til 30.
júní í sumar, samkvæmt tillögu
hæfnisnefndar.
sisi@mbl.is
Ráðningarferli dómara
við Landsrétt hraðað
Morgunblaðið/Hanna
Þrjú dómaraembætti auglýst laus