Morgunblaðið - 04.01.2020, Qupperneq 14
2.870.000kr.
VIVARO VAN
Listaverð 3.890.000 kr.
Tilboðsverð
án vsk. 3.742.000kr.
VIVARO COMBI - 9 manna
Listaverð 4.990.000 kr.
Tilboðsverð
án vsk.
TILBOÐ Á OPEL ATVINNUBÍLUM FRAMLENGT TIL 31. JANÚAR
Frábær vinnukraftur!
Birtm
eð
fyrirvara
um
verð-og
textabrengl.
2.145.000kr.
COMBO CARGO
Listaverð 2.990.000 kr.
Tilboðsverð
án vsk.
benni.is ReykjavíkKrókhálsi 9
590 2000
Reykjanesbæ
Njarðarbraut 9
420 3330
Opið virka daga frá 9 til 18
Laugardaga frá 12 til 16
Verið velkomin í reynsluakstur
14 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2020
Umferðin á hringveginum á ný-
liðnu ári fór vaxandi frá árinu á
undan eða alls um 2,4% á milli ára.
Þetta var þó mun minni aukning
umferðar en á árunum þar á undan
þegar umferð um hringveginn jókst
um fimm til 14 prósent frá ári til
árs.
Þetta kemur fram í nýrri saman-
tekt Vegagerðarinnar. Í seinasta
mánuði ársins dróst umferð á
hringveginum raunar saman um
eitt prósent miðað við umferðina í
desember árið áður þegar tölur á
16 lykilteljurum Vegagerðarinnar á
hringveginum eru skoðaðar. Mest
dróst umferðin saman um Norður-
land eða um 8,2% í desember sl.
„Umferðin jókst hins vegar aðeins
á tveimur landsvæðum eða yfir
teljara á og í grennd við
höfuðborgarsvæðið en þar jókst
umferðin um 1,4% og um Vest-
urland um 0,2%.
Trúlega stafar þessi samdráttur
af, að stórum hluta, vondu veðri í
desember á síðasta ári,“ segir í um-
fjöllun á vef Vegagerðarinnar um
samdráttinn sem varð í umferðinni
í desembermánuði.
Fram kemur að þegar litið er á
þróun umferðarinnar á hringveg-
inum yfir allt síðasta ári kemur í
ljós að þá mældist samdráttur í
þremur mánuðum frá árinu á und-
an, eða í mars, september og des-
ember. „Mest jókst umferðin í febr-
úar eða um 15,8% en mestur
samdráttur varð í mars eða 4,1%
samdráttur.“
Þegar árið er gert upp í heild
jókst umferðin um lykilsniðin 16
um 2,4% eins og fyrr segir. Sam-
dráttur varð í fyrra á tveimur land-
svæðum eða um 2,3% á Austurlandi
og um 1,5% á Suðurland. „Mest
jókst umferðin, hins vegar, um
Vesturland eða um 5,2%.“
Bent er á að eins og vænta hafi
mátt var mest ekið á föstudögum
en minnst á þriðjudögum. „Umferð-
in jókst alla vikudaga miðað við ár-
ið á undan, hlutfallslega mest á
sunnudögum eða 4,3% en minnst á
miðvikudögum eða 0,9%,“ segir þar.
Umferðin jókst í fyrra en
hægt hefur á vextinum
Samdráttur á hringveginum á Austurlandi og Suðurlandi
Umferðin á hringveginum 2017-2019
Breyting á umferð milli ára í desember og allt árið*
Desembermánuður,
breyting milli ára
Samtals allt árið,
breyting milli ára
Landsvæði 2017-2018 2018-2019 2017-2018 2018-2019
Suðurland 5,1% -6,8% 7,4% -1,5%
Höfuðborgarsvæðið 2,4% 1,4% 4,3% 3,5%
Vesturland 6,5% 0,2% 3,4% 5,2%
Norðurland 1,3% -8,2% 2,5% 0,1%
Austurland 4,5% 4,8% 6,8% -2,3%
Samtals 3,4% -1,0% 4,6% 2,4%
*Umferð yfir 16 lykilteljara á hringvegi. Heimild: Vegagerðin.
Mikil og vaxandi óánægja er meðal fé-
lagsmanna innan stéttarfélaga á al-
menna markaðinum sem enn eiga
ósamið við ríki og sveitarfélögin en
samningar þeirra
hafa verið lausir í
meira en níu mán-
uði.
,,Það er alveg
ótrúlegt að það
skuli ekkert hreyf-
ast hjá sveitar-
félögunum og rík-
inu. Það er
kominn mikill
kurr í fólk, sem
kallar orðið eftir
því að stéttarfélögin fari að stíga fram
og vill bara að farið verði í aðgerðir.
Samningar hafa verið lausir frá því í
vor en á sama tíma og allt er að hækka
þá standa launin eftir. Sveitarfélögin
eru t.d. að hækka gjaldskrár og annað
en geta ekki lokið samningum við
verkalýðshreyfinguna. Þetta leggst af
Vilja að farið verði í aðgerðir
Þolinmæðina að þrjóta gagnvart sveitarfélögum og ríkinu að sögn formanns
Framsýnar Sumir sem bíða án samninga hafa ekki fengið launahækkun frá 2018
töluverðum þunga á ákveðna hópa
sem hafa ekki fengið neinar leiðrétt-
ingar,“ segir Aðalsteinn Á. Baldurs-
son, formaður Framsýnar. Félags-
menn hans sem eru án samninga við
sveitarfélög eru aðallega konur í
umönnunar- og aðhlynningarstörfum
og hafa margar þeirra ekki fengið
neina launahækkun allt frá 1. júlí árið
2018.
Langur tími á milli funda
,,Það er bullandi óánægja og full
ástæða til að hafa áhyggjur af þessu.
Menn hafa haft marga mánuði til að
ljúka þessu en það sér ekki enn til
lands,“ segir Aðalsteinn. Hann gagn-
rýnir sérstaklega það áhugaleysi sem
hann segir einkennandi meðal ýms-
issa viðsemjenda, langur tími líði á
milli funda og lítill áhugi virðist fyrir
því að ganga í það verk að endurnýja
kjarasamninga. Segist hann þeirrar
skoðunar að verkalýðshreyfingin geti
ekki beðið lengur og setja eigi stefn-
una á aðgerðir í febrúar til að knýja á
um lausn. Ekki sé hægt að búa við það
ástand að fólk fái ekki launahækkun í
heilt ár eða í enn þá lengri tíma á sama
tíma og ríki og sveitarfélög eru að
hækka gjaldskrár og ýmsa þjónustu.
Fram kom fyrir áramót á vef
Starfsgreinasambandsins að það væri
Aðalsteinn Á.
Baldursson
algerlega óboðlegt fyrir félagsmenn
að viðræður hefðu staðið frá vormán-
uðum án niðurstöðu. SGS, Efling og
sveitarfélögin funduðu hjá Ríkissátta-
semjara 19. des. og er næsti fundur
boðaður 13. janúar. Beðið er niður-
stöðu vinnuhóps um málefni vakta-
vinnufólks. omfr@mbl.is
Morgunblaðið/Kristján
Ríkissáttasemjari Framundan eru annir hjá sáttasemjara. Boðað hefur
verið til 10 sátta- eða vinnufunda í kjaradeilum alla virka daga næstu viku.
Styrkir til náms í
hafrétti
Hafréttarstofnun Íslands er rannsókna- og
fræðslustofnun á sviði hafréttar við Háskóla Íslands
og er meginmarkmið stofnunarinnar að treysta
þekkingu á réttarreglum á sviði hafréttar.
Að stofnuninni standa Háskóli Íslands, utanríkis-
ráðuneytið og atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytið.
Hafréttarstofnun auglýsir hér með til
umsóknar styrki til þátttöku í
sumarnámskeiði Ródos-akademíunnar í
hafrétti 28. júní - 17. júlí 2020.
Umsóknir sendist Tómasi H. Heiðar, forstöðumanni
stofnunarinnar, með tölvupósti,
tomas.heidar2016@gmail.com, fyrir 20. janúar 2020.
Nánari upplýsingar: www.hafrettarstofnun.hi.is.
Félag háskólakennara og samn-
inganefnd ríkisins undirrituðu í
gær nýjan kjarasamning. Um
1.200 félagsmenn eru í Félagi há-
skólakennara og er það fjórða fjöl-
mennasta aðildarfélag Bandalags
háskólamanna. Samningurinn er
afturvirkur og er gildistími hins
nýja samnings frá 1. apríl 2019 til
31. mars 2023.
Ekki verða veittar nánari upp-
lýsingar um samninginn fyrr en
síðar en boðað hefur verið til
kynningarfunda fyrir félagsmenn í
Háskóla Íslands í næstu viku og
atkvæðagreiðsla um kjara-
samninginn hefst strax í kjölfar
fundanna.
Félagið var ekki í samstarfi við
önnur BHM-félög við samnings-
gerðina. 14 aðildarfélög BHM eru
enn með lausa samninga. Sjö að-
ildarfélög BHM hafa undirritað
kjarasamninga við ríkið. Fimm
þeirra voru samþykktir en einn
felldur.
Ríkið semur
við háskóla-
kennara