Morgunblaðið - 04.01.2020, Page 18
18 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2020
TORMEK Brýnsluvélar
s Tormek T-4
Verð 58.500
s Tormek T-8
Verð 97.900
Allar stýringar fyrirliggjandi
Laugavegi 29 | sími 552 4320 | verslun@brynja.is | brynja.is
Opið
virka
daga
frá 9
-18
lau f
rá 10
-16
SVX-150:
Skærastýring
Verð 7.980
HTK-706:
Aukahlutasett fyrir hnífa, skæri o.fl.
Verð 21.950
Tormek T-2
Atvinnu eldhúsbrýni
Verð 108.730
SVD-186:
Stýring fyrir tréskurðar- og rennijárn
Verð 11.980
SVM-140:
Hnífastýring
Verð 7.740
SVA-170:
Axarstýring
Verð 2.420
SVM-00:
Stýring fyrir tálguhnífa
Verð 4.980
SE-77:
Stýring fyrir hefiltennur og sporjárn
Verð 9.530
Vefverslun brynja.is
NÝTT
Dalvegi 10-14, 201 Kópavogi - Sími: 555-1212 - handverkshusid.is
Opið frá kl. 8 - 18 virka daga og 12 - 16 laugardaga
VILTU LÆRA SILFURSMÍÐI,
TÁLGUN EÐA TRÉRENNSLI?
Fjölmör
stuttnáms
í handve
g
keið
rki.
Skráning og upplýsingar á
www.handverkshusid.is
Lögreglan á Suðurnesjum fékk
nokkrar tilkynningar um áramótin
vegna „óæskilegrar meðferðar á
flugeldum“, eins og það er orðað í
dagbókinni. Í Sandgerði köstuðu
unglingar flugeldum inn í anddyri
fjölbýlishúss. Lögregla fór á stað-
inn en þá voru þeir á bak og burt.
Í Njarðvík voru unglingar
staðnir að því að sprengja flug-
elda inni í nýbyggingu. Þeir ætl-
uðu að forða sér þegar þeir urðu
lögreglu varir en það tókst ekki.
Lögreglumenn ræddu við þá um
atvikið og höfðu jafnframt tal af
forráðamönnum þeirra. Þá var til-
kynnt um pilta að kasta flugeldum
í íþróttahús. Þeir náðu að komast
undan á hlaupum.
Eldur kom svo upp í bílskúr í
Keflavík. Grunur leikur á að hann
hafi kviknað út frá flugeldi sem
lenti á skúrnum.
Auk þessa kviknaði í pítsukassa
sem skilinn hafði verið eftir á
eldavél í íbúðarhúsnæði í Keflavík.
Einhverjar skemmdir urðu af
völdum reyks.
Unglingar köstuðu
flugeldum inn í hús
Ríflega 100 hross fórust í hamfara-
veðrinu sem gekk yfir Norðurland
vestra í desember sl. Í yfirliti frá Mat-
vælastofnun, MAST, kemur fram að
þetta séu mestu afföll á hrossum í ára-
tugi og svari til um 0,5% þeirra 20
þúsund hrossa sem talið er að hafi
verið á útigangi á þessu landsvæði.
Hross fórust á 46 bæjum, þar af 61
á 29 bæjum í Austur-Húnavatnssýslu,
20 hross á 9 bæjum í Vestur-Húna-
vatnssýslu og 22 hross á 8 bæjum í
Skagafirði. Oftast var um að ræða eitt
til fjögur hross á hverjum bæ, sem
gerir að meðaltali tvö hross á bæ.
Matvælastofnun segir dreifinguna
endurspegla að afföllin verði ekki rak-
in til óviðunandi aðbúnaðar eða undir-
búnings á einstaka bæjum en ljóst
megi vera að veðrið kom mishart nið-
ur á svæðum innan landshlutans.
Samkvæmt upplýsingum frá
MAST voru hrossin á öllum aldri; 29
folöld, 34 trippi og 30 hryssur, en
einnig drápust 15 hestar, flestir full-
orðnir. Hryssurnar voru sömuleiðis í
flestum tilfellum í eldri kantinum og
því má segja að elstu og yngstu
aldurshóparnir hafi orðið verst úti í
óveðrinu.
„Algengast var að hross hefði hrak-
ið undan veðri í skurði, girðingar eða
aðrar hættur en einnig fennti hross
sem stóðu í skjóli, þ.m.t. hross sem
rekin höfðu verið sérstaklega í skjól
og gefið þar. Dæmi voru um tveggja
metra snjódýpt niður á hræin, en
gríðarlegir skaflar mynduðust hvar
sem skjól var að finna. Almennt séð
var harðara á hrossum á jörðum
nærri ströndinni á meðan hross sem
stóðu hærra í landinu sluppu mun
betur, líklega vegna þess að þar var
kaldara og ekki hlóðst á þau ís með
sama hætti,“ segir í yfirliti MAST.
Stofnunin bendir á að afar óvenjulegt
sé að saman fari svo hart norðan
áhlaup með mikilli úrkomu og hita-
stigi við frostmark. Veðurskilyrðin
hafi leitt til þess að slydda hafi lagst á
hrossin og frosið þar. Hrossin hafi
orðið klömbruð og þung, sem hafi
gert þeim erfiðara fyrir að standa af
sér þá langvarandi stórhríð sem á eft-
ir fylgdi þar sem veðurhæðin náði
styrk fellibyls á köflum.
„Skjól kom ekki að gagni þar sem
aðstæður voru verstar og átti það
jafnt við um manngerða skjólveggi og
náttúrulegt skjól. Hross voru alla
jafna í góðu standi fyrir áhlaupið enda
hafði haustið verið hagfellt hrossum á
útigangi,“ segir MAST.
Yfir 100 hross fórust
í óveðrinu á 46 bæjum
Mestu afföll á hrossum í áratugi, segir Matvælastofnun
Hross í hamfaraveðri
» Yfir 100 hross drápust á 46
bæjum.
» Það gera um 0,5% af þeim
hrossum sem voru á útigangi á
Norðurlandi vestra.
» Af þessum hrossum voru 29
folöld og 30 hryssur.
Ljósmynd/Landsbjörg
Hamfaraveður Björgunarsveitarmenn aðstoðuðu bændur við að grafa
hross úr fönn. Nú liggur fyrir að yfir 100 hross drápust í hamfaraveðrinu.