Morgunblaðið - 04.01.2020, Qupperneq 20

Morgunblaðið - 04.01.2020, Qupperneq 20
BAKSVIÐ Gunnlaugur Snær Ólafsson gso@mbl.is Ferðaskrifstofan Heimsferðir hefur gengið frá samningi við ítalska flug- félagið Neos, sem mun sinna flugi til allra áfangastaða ferðaskrifstofunn- ar í sumar og samtals 80% af öllum ferðum Heims- ferða á árinu. Nær samningur- inn til 34 þúsund sæta, eða 68 þús- und leggja, og kemur vél Neos til Íslands 21. mars og verða í sumar vikulegar ferðir til Veróna á Ítalíu auk ferða til Krítar, Króatíu, Ítalíu, Malaga, Alicante og Tenerife. Þá hafa Heimsferðir einnig gert samning um sölu á tvö þúsund sætum til ítalskra ferðaskrifstofa næsta sumar og er talið að þetta geti opnað fyrir mögulegri fjölgun ítalskra ferðamanna til Íslands. Samningurinn er ekki sá fyrsti sem ferðaskrifstofan gerir við flugfélagið, útskýrir Tómas J. Gestsson, fram- kvæmdastjóri Heimsferða. „Fyrsti samningurinn við Neos var gerður fyrir tæplega ári og það gekk vel hjá okkur í sumar. Þeir eru áhugasamir um frekari samvinnu á næstu miss- erum og vilja helst auka þetta ár frá ári. Þessi samningur er aðeins stærri en í fyrra, en við viljum ekki fara of geyst í þetta heldur skref fyrir skref.“ Hann segir Neos mjög spennt fyrir Íslandi og að félagið hafi áhuga á því að fljúga meira til Íslands með ítalska farþega í framtíðinni. Neos skilur vel þarfir ferðaskrif- stofa enda er félagið í eigu stærstu ferðaskrifstofu Ítalíu, Alpitours, svarar Tómas er hann er spurður hvers vegna þetta flugfélag hafi orðið fyrir vali Heimsferða. „Þótt þeir séu einnig í áætlunarflugi eru þeir skiln- ingsríkir og hafa mikla þekkingu á ferðaskrifstofumarkaðnum. Þess vegna erum við mjög ánægð með þá og ég á von á því að þetta samstarf haldi áfram.“ Hann segir Heimsferðir hafa verið í viðræðum við önnur félög, meðal annars Smartwing (áður Travel Ser- vice), en það félag hefur verið í sam- starfi við ferðaskrifstofuna í um sex- tán ár. „En þeir voru ekki eins sveigjanlegir. Vildu að við værum alla daga vikunnar með vélina. Okkur fannst það heldur mikið. Eftir fall Primera air vildum við fara varlega af stað.“ Fjóra daga í viku Tómas segir Heimsferðir einnig nota önnur flugfélög á árinu, sérstak- lega vegna borgarferðanna. Mun Smartwings fljúga til Prag og Brat- islava í vor, en Icelandair og Nor- wegian mun sinna sérferðum ferða- skrifstofunnar. „Norwegian er að fljúga fyrir okkur í janúar, febrúar og mars til Gran Canaria og Tenerife. Neos tekur við í mars og flýgur fyrir okkur til Gran Canaria, Alicante og til Suður-Spánar með golffarþega. Síðan hefjast borgarferðir í apríl og er meðal annars flogið til Mílanó, Split, Lissabon og fleiri borga í vor,“ útskýrir framkvæmdastjórinn. Það er í sumar (júní, júlí, ágúst og fram í september) sem hlutverk Neos verður mest áberandi að sögn Tóm- asar. Þá mun flugfélagið þjónusta Heimsferðir fjóra daga í viku. „Vélin kemur til landsins á mánudagskvöld- um og við fljúgum henni hérna hjá okkur þriðjudag, miðvikudag, fimmtudag og föstudag,“ segir Tóm- as, en um er að ræða Boeing 737-800 vél með 186 sæti. „Flugfélögin hafa mikið notað slíkar flugvélar fyrir okk- ur í gegnum árin. Þetta eru vélar eins og Primera var með og Norwegian hefur verið með fyrir okkur til Gran Canaria.“ Heimsferðir auka samstarf við ítalska flugfélagið Neos Ljósmynd/Neos Flug Heimsferðir hafa farið varlega af stað í samstarfinu við Neos, en flugfélagið vill fljúga meira til Íslands.  Mun sinna 80% af flugi Heimsferða  2.000 sæti seld til ítalskra ferðaskrifstofa Tómas Gestsson 20 FRÉTTIRViðskipti | Atvinnulíf MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2020 HAGI ehf Stórhöfða 37 • 110 Reykjavík • S. 414-3700 • hagi@hagi.is • Hagi ehf HILTI Hágæða vinnuföt í miklu úrvali Sérmerkjum fyrir fyrirtæki Verkfæri og festingar Mikið úrval af öryggisvörum Nú fástS s vinnuföt í Rafstilling ehf Dugguvogi 23, 104 Reykjavík, sími 581 4991, rafstilling@rafstilling.is Opið mán.-fim. 8-12 og 13-18, fös. 8-14 Hröð og góð þjónusta um allt land Áratug a reynsla Startar bíllinn ekki? Við hjá Rafstillingu leysum málið 4. janúar 2020 Gengi Kaup Sala Mið Dollari 121.64 122.22 121.93 Sterlingspund 160.68 161.46 161.07 Kanadadalur 93.6 94.14 93.87 Dönsk króna 18.219 18.325 18.272 Norsk króna 13.815 13.897 13.856 Sænsk króna 12.974 13.05 13.012 Svissn. franki 125.36 126.06 125.71 Japanskt jen 1.1168 1.1234 1.1201 SDR 168.3 169.3 168.8 Evra 136.12 136.88 136.5 Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 165.9418 Hrávöruverð Gull 1520.55 ($/únsa) Ál 1799.5 ($/tonn) LME Hráolía 66.41 ($/fatið) Brent ● Bandaríski raf- bílaframleiðandinn Tesla afhenti 112 þúsund bíla á fjórða fjórðungi ársins 2019 sem er það mesta sem fyrirtækið hefur gert í einum árs- fjórðungi. Í frétt Bloomberg segir að fyrirtækið hafi alls afhent 92.550 bíla af gerðinni Mod- el 3 og 19.450 af gerðunum Model S og Model X. Fyrra afhendingarmet, sem sett var á 3. ársfjórðungi 2019, nam 97 þúsund bílum. Samtals námu afhend- ingar fyrirtækisins á árinu 2019 367.500 sem er 7.500 einingum meira en fyrirtækið gerði ráð fyrir í lægri vik- mörkum sínum fyrir árið. Tesla afhenti auk þess 7 þúsund fleiri bíla en það framleiddi á ársfjórðungnum. Eftir að markaðir voru opnaðir í gær hækkuðu bréf félagsins fljótt, um 5,5%, upp í 454 bandaríkjadali á hvert bréf, en samtals hækkuðu hlutabréf félagsins um 26% á árinu 2019. Tesla skilaði að auki nokkuð óvæntum hagnaði á þriðja ársfjórðungi líkt og greint var frá í októbermánuði. Ekki hefur verið gefið út hvenær fyrir- tækið mun kynna afkomu sína fyrir fjórða fjórðung ársins 2019. Metfjórðungur hjá raf- bílaframleiðandanum Elon Musk, forstjóri Tesla. STUTT ● Bréf Icelandair Group lækkuðu um 3,9% í Kauphöll Íslands í gær. Námu við- skipti með bréf félagsins rúmum 57 millj- ónum króna. Þá lækkuðu bréf Arion banka um 2,7% í ríflega 426 milljóna króna viðskiptum. Þá lækkuðu bréf Brims um rúmlega 1,1% í takmörkuðum við- skiptum upp á ríflega 8 milljónir króna. Bréf Marels lækkuðu um 1,1% í tæplega 116 milljóna króna viðskiptum. Mest hækkuðu bréf Sýnar um 1,24%, ríflega 76 milljónir króna. Þá hækkuðu Heima- vellir um tæp 0,9% í afar takmörkuðum viðskiptum upp á rúmar 7 milljónir króna. Verð á bréfum Origo, VÍS, Festar, TM og Skeljungs hreyfðust hins vegar ekki. Lítil viðskipti voru með bréf Origo og Skeljungs en veltan með bréf Festar nam 251 milljón, VÍS 63 milljónum og TM tæp- um 54 milljónum. Icelandair og Arion banki lækkuðu mest

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.