Morgunblaðið - 04.01.2020, Síða 31
MINNINGAR 31
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2020
Elsku afi minn,
nú ertu kominn í
sumarlandið til
hennar Jórunnar
þinnar.
Mikið afskaplega
er sárt að hugsa til þess að eiga
ekki eftir að hitta þig aftur yfir
kaffibolla, eða í yndislegu mat-
arboðunum sem þú og við vor-
um dugleg að plana saman á
Kjalarnesinu.
En ég er þakklát fyrir að
hafa haft þig í lífi mínu öll mín
33 ár og þykir yndislegt að
Hreinn Jónsson
✝ Hreinn Jónssonfæddist 12. jan-
úar 1943. Hann lést
8. desember 2019.
Útför Hreins fór
fram í kyrrþey.
stelpurnar mínar
fengu tækifærið að
kynnast þér og
muna vel eftir afa
á Kjaló.
Ég mun sakna
þín og sakna þess
að koma til þín í
heimsókn á Kjalar-
nes og spjalla og
flissa yfir lúmska
húmornum sem þú
hafðir, elsku afi
minn.
Ég mun halda í allar þær
minningar sem ég á um þig frá
Þverá og Kjalarnesinu.
Minningin þegar þú gafst
mér sykurmola með smá kaffi í
á Þverá, augljóslega að stelast
því mamma og amma máttu alls
ekki sjá til, finnst mér lýsa þér
vel; afskaplega rólegur en húm-
oristi og stríðinn.
Setning sem ég mun alltaf
tengja við þig er „viltu ekki fá
þér meira?“ eða „má ekki bjóða
ykkur meira“ því það þekkja
það flestir sem komu til ykkar
Jórunnar og maður fór aldrei
svangur heim.
Elsku afi minn, takk fyrir
allt og skelltu kossi á Jórunni
frá okkur.
Þín
Hafdís Björk Jónsdóttir.
Okkur langar að skrifa örfá
orð til viðbótar til minningar
um föður okkar Hrein Jónsson
og konu hans, Jórunni Vang
Lárusdóttur.
Þau leiðu mistök urðu við
skrif æviágrips pabba að þar
kom ekki fram að hann ann-
aðist Jórunni síðustu árin á
heimili þeirra í langvinnum
veikindum hennar, af einstakri
ástúð, þar til hún lagðist inn á
Vífilsstaði þar sem hún dvaldi
til æviloka, 31. desember 2016.
Skömmu eftir að pabbi
kvaddi vorum við að leitast við
að finna einhvern kveðskap eft-
ir hann og fannst eins og okkur
hefði verið vísað að kíkja í
bókahillu í svefnherberginu.
Þar fannst þessi vísa sem
hann hafði hripað aftan á um-
slag og finnst okkur að hún
verði að fylgja:
Gestir skópu gleðifund,
glæstrar konu minni.
Eiga slíka aftanstund,
allra gleður sinni.
Pabbi og Jórunn kynntust
árið 1995 og eftir nokkurra ára
sambúð á Þverá í Blönduhlíð
fluttu þau suður á Kjalarnes,
þar sem þau bjuggu sér fallegt
heimili og sóttu bæði vinnu í
Reykjavík.
Þar var alltaf gott að koma
og iðulega einhverju gómsætu
skellt á grillið, sama hvernig
viðraði. Þau voru dugleg að
ferðast og gera ýmislegt sér til
skemmtunar, sem þeim hafði
ekki verið auðið með bústörf-
unum. Meðal annars komu þau
sér upp glæsilegu hjólhýsi í
Þjórsárdal þar sem þau dvöldu
eins mikið og hægt var.
Á einu ferðalaginu höfðu þau
gist hjá vinafólki og skildi
pabbi eftirfarandi vísu eftir á
bjórflösku sem þakkir fyrir
gestrisnina:
Ótal margt fær aldrei séð,
úti döggin grætur.
Bjórinn allra bætir geð
bjartar sumarnætur.
Pabbi trúði því að eitthvað
tæki við eftir að jarðneskri vist
lýkur og var afar næmur á slíka
hluti.
Það gerum við líka og vitum
að þau eru nú sameinuð á ný
eftir þriggja ára aðskilnað og
laus við alla þá líkamlegu kvilla
sem hrjáðu þau síðustu árin.
Hvílið í friði elsku pabbi og
Jórunn og takk fyrir allt.
Sjáumst einhvern tímann.
Þangað til biðjum við að heilsa.
Til óskalandsins fljúgum við saman
frjáls og ein.
Þar fáum við öllu jarðnesku böli að
gleyma.
Á vegi þínum á jörð er steinn við
stein.
Í stjörnuborgum söngvanna áttu
heima.
Þú elskar ljóðin, lifir í anda hans.
Ég lofsyng nafn þitt, helga þér ver-
öld mína.
Mín vígða brúður, drottning míns
draumalands.
Í drottins nafni krýp ég við fætur
þína.
Með þig í faðminum flýg ég burt í
nótt.
Nú finn ég gleðinnar töfra um hjart-
að streyma.
Að elska er að hafa eld til guðanna
sótt
og opnað þeirra fegurstu sólar-
heima.
Þó jörðin sé frosin og fokið í hin
gömlu skjól,
þá fylgir þeim gæfa, sem treysta á
ástina og vorið.
Með einum kossi má kveikja nýja
lífsins sól.
Eitt kærleiksorð getur sálir til himins
borið.
(Davíð Stefánsson)
Fyrir hönd barna Hreins og
fjölskyldna,
Arnfríður Hanna
Hreinsdóttir.
✝ Einar Kjart-ansson fæddist í
Þórisholti í Mýrdal 3.
desember 1930.
Hann lést á Heil-
brigðisstofnun Suð-
urlands á Selfossi 24.
desember 2019. Ein-
ar var sonur
hjónanna Þorgerðar
Einarsdóttur (1901-
2003) og Kjartans
Einarssonar (1893-
1970), fjórði í röð sjö systkina.
Þrjú eru látin; Borghildur, Einar
Sigurður og Ingveldur Guðríður.
Sigurgeir, Kristinn Matthías og
Kjartan lifa bróður sinn.
10-14 ára gekk Einar í Reyn-
isskóla og 11 ára vann hann við
vegalagningu hjá breska setulið-
inu. Sem ungur maður starfaði
hann m.a. við fiskverkun í Vest-
mannaeyjum, verslunarstörf á
Minni-Borg og við vöruflutninga
hjá Ólafi Ketilssyni.
Einar kvæntist 1.6. 1954 Sigur-
björgu Pálsdóttur frá Litlu-Heiði,
f. 6.2. 1932, og tóku þau við búi í
Þórisholti með yngri bræður og
foreldra Einars í heimili. Þau
eignuðust sex börn: 1. Kjartan
Páll, kvæntur Dagnýju Þóris-
dóttur, dætur þeirra: a) Anna
dóttir Sigrúnar og Ívars Páls
Bjartmarssonar er Þorgerður Sól,
sambýlismaður Egill Helgi Guð-
jónsson. Börn Einars og Sigríðar
Sigurðardóttur eru Svanhildur;
Ragnheiður, gift Kristni Guðna-
syni, börn þeirra Embla Björt og
Jakob Freyr; og Sigurður Ágúst,
kvæntur Bergdísi Björk Sigur-
jónsdóttur, dætur þeirra Guðrún
Katrín og Sigríður Elma.
Einar var virkur í félagsstörf-
um en um tíma sat hann í sveitar-
stjórn Hvammshrepps, var for-
maður Lionsklúbbsins Suðra,
félagi í Búnaðarfélagi Hvamms-
hrepps og stofnfélagi í Samherja,
félagi eldri borgara. Lengi starf-
aði Einar sem sóknarnefndarfor-
maður, meðhjálpari og hringjari í
Reyniskirkju og var virkur félagi
í kirkjukór Reyniskirkju ásamt
Sigurbjörgu. Um árabil bjuggu
þau í félagsbúi með sonum sínum
Grétari og Guðna í blönduðu búi
en hættu svo búskap árið 1995.
Sama ár festu þau kaup á Árbraut
2 í Vík. Ferðalögunum fjölgaði
þar á eftir, einkum til Kanaríeyja
ásamt ýmsum ferðalögum með
fjölskyldunni. Árið 2016 fluttu
Einar og Sigurbjörg að Fossvegi 2
á Selfossi og frá maí 2018 dvaldi
Einar á hjúkrunardeildinni Foss-
heimum. Útför Einars fer fram
frá Reyniskirkju í Mýrdal á morg-
un sunnudag, 5. janúar 2020,
klukkan 13.
Jóna, sambýlis-
maður Rúnar Örn
Ágústsson, dætur
þeirra Dagný Katla
og Embla Björg, b)
Auður, gift Pétri
Péturssyni, synir
þeirra Pétur og Rú-
rik, c) Hildur Björg.
2. Guðni, kvæntur
Höllu Ólafsdóttur,
börn þeirra: a) Íris,
börn hennar og
Benedikts Brynleifssonar eru
Nökkvi, Björg og Einar, b) Ívar,
sambýliskona Kristina Hajnikova,
synir þeirra Alex og Grétar Juli-
us, c) Einar, d) Þorgeir. 3. Þor-
gerður, gift Guðmundi Pétri Guð-
geirssyni, börn þeirra: a)
Berglind, börn hennar og Kjart-
ans Kárasonar eru Guðmundur
Atlas og Katrín Alexía, b) Eygló,
sambýlismaður Alexander Harra-
son, c) Hlynur. 4. Grétar, kvæntur
Sædísi Ívu Elíasdóttur, börn
þeirra: a) Rakel, sambýlismaður
Ágúst Leó Sveinsson, börn þeirra
Freyja og Dagur, b) Birkir, c)
Fjölnir. 5. Vilborg, gift Pétri Pét-
urssyni, börn þeirra: a) Steinn El-
liði, b) Þorfinnur, c) Fríða Björg.
6. Sigrún Lilja, gift Einari Svans-
syni, sonur þeirra Einar Björgvin;
Enn er rofið skarð í hóp okkar
sjö systkina, sem fædd vorum og
ólumst upp í Þórisholti á fyrri
hluta aldarinnar sem leið. Það
voru mín forréttindi að alast upp í
þeim hópi sem Einar bróðir, rúm-
um sjö árum eldri, markaði þó
öðrum fremur. Hann kenndi mér
handtökin við hin ýmsu störf
sveitalífsins fyrir daga vélvæðing-
ar. Deutz-dráttarvél kom ekki
fyrr en 1954.
Það var ómetanlegt að njóta
stóra bróður; aldrei kom til mis-
klíðar, maður gegndi honum eins
og foreldrum. Hjólið hans stóð
mér alltaf til boða, þá sjö ára,
þurfti reyndar að hjóla undir
stöng.
Einar lauk fullnaðarprófi með
hæstu einkunn ásamt Kjartani
Pálssyni lækni og seinna mági.
Um miðjan fimmta áratuginn
herjaði mænuveikifaraldur á Mýr-
dalinn. Einar veiktist en slapp við
varanlega lömun. Varð hans
skólaganga því ekki lengri og tjáði
hann mér síðar að eftir mænu-
veikina hefði hann misst allan
þrótt til lærdóms sem hann þó
endurheimti að mestu er frá leið.
Á þessum tíma fóru flestir ung-
lingar í „verið“ og um tvítugt lá
leið hans til Vestmannaeyja þar
sem hann fékk inni hjá Andrési
föðurbróður. Ári síðar réðst hann
til starfa hjá Árna föðurbróður,
við verslunina á Minni-Borg í
Grímsnesi.
Sumarið 1953 gekk í garð,
heilsufari föður okkar fór hratt
hrakandi sem endaði með aðgerð
þar sem tekinn var hluti af öðru
lunga vegna langvarandi bólgu-
hnúts, afleiðingar lungnabólgu
sem hafði nær lagt hann að velli
um tvítugt og háði honum æ síðan.
Sveitastörf urðu honum nú ofviða,
ekki lá annað fyrir en hætta bú-
skap sextíu og eins árs.
Á þessum tíma var Einar í til-
hugalífi með Sigurbjörgu Páls-
dóttur á Litlu-Heiði. Þau voru
bæði að störfum; hún í mötuneyti
Skógaskóla og hann á Minni-Borg
og undi þar vel sínum hag. Ekki
veit ég hvað foreldrum okkar og
þeim Einari og Sigurbjörgu fór á
milli þessa vormánuði, enda að
heiman í námi, en um vorið þegar
ég kom heim höfðu þau gift sig og
tekið við búi í Þórisholti. Eldri
hjónin stigin til hliðar en héldu
hluta af efri hæð fyrir sig og okkur
bræðurna. Þau voru áfram liðtæk
hjálp við heimilisstörfin að því er
þrek og heilsa leyfði.
Aldrei getum við systkinin full-
þakkað þeim hjónum að þau veittu
foreldrum okkar friðsælt ævi-
kvöld. Einnig þau forréttindi okk-
ar að geta komið heim þar til við
reistum sumarbústaðinn, sælu-
reitinn okkar allra í Djúpaleiti.
Læt ég hér lokið minningarorð-
um um kæran bróður, hann fær
nú hvíld í sveitinni sem hann unni
og helgaði sína starfskrafta. Við
hjónin vottum Sigurbjörgu og fjöl-
skyldunni allri okkar dýpstu sam-
úð.
Sigurgeir.
Látinn er móðurbróðir minn
Einar Kjartansson bóndi í Þóris-
holti í Mýrdal. Einstakur öðlingur
og ljúflingur í alla staði. Ég var
ekki gömul þegar ég kom fyrst til
sumardvalar í Þórisholti. Afi
Kjartan og amma Þorgerður voru
vissulega þau sem leyfðu mér að
koma og dvelja í Þórisholti.
En það voru engu að síður Ein-
ar og Silla kona hans sem voru þau
sem leiddu mig í allan sannleika í
sveitastörfunum og voru í raun
mínir uppalendur.
Einar þreyttist aldrei í því að
taka okkur krakkana með til allra
starfa. Hann var líka hafsjór af
fróðleik og var sífellt að fræða
okkur, leiðbeina og hvetja til að
gera hlutina sjálf. Þannig var
hann hvetjandi og styðjandi á all-
an hátt.
Umhverfið, kennileiti og veður-
far varð eins og hluti af daglegum
viðfangsefnum og alltaf var það
Einar sem vissi og sagði frá.
Þau hjónin Einar og Silla voru
samstiga og samhuga og það mátti
margt læra af þeim og þeirra lífs-
viðhorfi. Heimili foreldra minna
var alla tíð fastur viðkomustaður
Einars og Sillu þegar þau komu til
borgarinnar og það var alltaf eins
konar hátíð og við systkinin vild-
um alls ekki missa af þessum
heimsóknum. Einar hafði alltaf
tíma fyrir okkur krakkana og frá-
sagnir hans alltaf spennandi og lif-
andi.
Þórisholt og Mýrdalurinn var í
hans huga hin helga jörð. Fjöllin,
jökullinn, Reynisfjaran og hafið
urðu að undraheimum fyrir hans
orð og áhuga. Leiðsögumaðurinn
Einar var einstakur og lét ekki ár-
in stöðva sig í því að fara með hópa
á fjöll og fræða fólk. Gönguhópur-
inn minn sem naut leiðsagnar
hans í nokkra daga ferð talar enn
um ást hans og virðingu fyrir
landinu og sköpunarverkinu.
Einar tók okkur með í Reynis-
kirkju oftar en ekki þegar hann
annaðist um hana og lét sér annt
um kirkjuna og hennar boðskap.
Hann kenndi okkur að bera virð-
ingu fyrir hinu heilaga og ganga
með virðingu og þakklæti um
kirkjugarðinn. Svo kunni hann
sögu allra sem hvílu eiga í garð-
inum og með því að segja sögu
þessa fólks tengdi hann nútíð og
fortíð.
Fjársjóður sem í dag er ómet-
anlegur opnar augu manns fyrir
því að lífið er gjöf en ekki sjálf-
sagður hlutur.
Nú fær Einar frændi hvílu í
þessum helga reit sem hann hafði
annast af kærleika. Ég þakka hon-
um fyrir alla hans leiðsögn og
hvatningu og bið góðan Guð að
blessa Sillu, börnin þeirra og
þeirra fjölskyldur.
Unnur Ólafsdóttir.
Einar Kjartansson
Ég veit ekki hvort þú
hefur
huga þinn við það fest,
að fegursta gjöf sem
þú gefur
er gjöfin sem ekki sést.
Ástúð í andartaki,
augað sem glaðlega hlær
hlýja í handartaki,
hjarta sem örar slær.
Allt sem þú hugsar í hljóði
heiminum breytir til.
Gef þú úr sálarsjóði
sakleysi, fegurð og yl.
(Úlfur Ragnarsson)
Hann Óli hafði einstaklega
góða nærveru. Mér fannst hann
Ólafur Einar
Magnússon
✝ Ólafur EinarMagnússon
fæddist 26. júlí
1932. Hann lést 19.
nóvember 2019.
Útför hans fór
fram 3. desember
2019.
tendra ljós í boðun-
um hennar Bobbu;
alltaf ljúft bros, vin-
semd og það sem
mestu varðar
staðfesta. Ég hef
lítið séð hann síðan
þau Fríða skildu, en
svo mikið skildi hann
eftir hjá mér að ekki
kemur til greina
annað en minnast
hans og þakka
fyrir. Ég hef glaðst innilega yfir
að vita að hann hafi fundið sér góð-
an lífsförunaut og þau hentað
hvort öðru mjög vel.
Já, það týnist úr hópnum, en
minningarnar lifa og eru ómetan-
legar.
Ég vil senda afkomendum hans
innilegar samúðarkveðjur svo og
Hlíf, konunni sem hann fann ham-
ingjuna með. Blessuð sé minning
hans.
Megi þér, Hlíf, ganga allt í hag-
inn í þínu lífi.
Rúna
Knútsdóttir.
Ástkær og yndisleg eiginkona mín, móðir
okkar, tengdamóðir og ekki síst, amma.
Okkar stoð og styrkur,
HRAFNHILDUR ÞÓRDÍS PÁLMADÓTTIR
lést á líknardeild Landspítalans í Kópavogi
föstudaginn 20. desember.
Útför hefur farið fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Þeim sem vilja minnast Hrafnhildar er bent á Hringinn,
Styrktarsjóð Barnaspítala Hringsins.
Einar Einarsson
Einar Kristinn Einarsson
Kristín Björg Einarsdóttir Haukur Þórðarson
Elín Dröfn Einarsdóttir Jonas Himmelev Carlsen
Hrafnhildur B. Einarsdóttir Ásdís Birta Einarsdóttir
Alexander Einar Hauksson Sólon Þórður Hauksson
Oliver Krummi Hauksson
Halldóra Anna Hafliðadóttir
Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi
og langafi,
ÞORKELL MAGNÚSSON
útibússtjóri,
áður til heimilis á Melhaga 8,
Reykjavík,
lést á dvalarheimilinu Grund fimmtudaginn 12. desember.
Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki Grundar fyrir kærleiksríka
umönnun. Þeim sem vildu minnast hans er bent á dvalarheimilið
Grund.
Magnús, Ásta María, Sigríður Margrét
og fjölskyldur
Innilegar kveðjur og þakklæti til allra þeirra
sem sýndu okkur hluttekningu og
væntumþykju við andlát og útför okkar
ástkæra eiginmanns, föður, tengdaföður,
sonar, tengdasonar og bróður,
HÖSKULDAR KRISTJÁNS
GUÐMUNDSSONAR,
Víðigrund 8, Akranesi.
Umhyggjan yljar og líknar.
Kristjana Jóna Jóhannsdóttir
Jóhann Úlfar Lilja Dís
Hafliði Már
Hulda Sigríður
Guðmundur Þ. Friðjónsson Sigríður Illugadóttir
Hulda Ágústsdóttir
og systkini