Morgunblaðið - 04.01.2020, Blaðsíða 38
38 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2020
60 ára Aldís er Vest-
mannaeyingur og er
eigandi kaffihúsins
Café Varmó. Hún er í
oddfellowstúkunni Vil-
borgu.
Maki: Kristinn Ævar
Andersen, f. 1947, fyrr-
verandi sjómaður.
Börn: Sigurdís Ösp, f. 1977, Atli Freyr, f.
1978, d. 1979, Hlynur Már, f. 1980, og
Elín Björk, f. 1990. Fóstursonur er Daníel
Ingi, f. 1998. Börn Kristins eru Lilja, Ingi
og Arnar. Barnabörnin eru samtals fjór-
tán og langömmubörnin eru þrjú.
Foreldrar: Kristín Frímannsdóttir, f.
1941, húsmóðir, og Atli Elíasson, f. 1939,
d. 2006, framkvæmdastjóri Steypu-
stöðvar Vestmannaeyja.
Aldís
Atladóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Notaðu daginn til þess að gera
langtímaáætlanir í fjármálum. Njóttu þess
að hafa nægan tíma núna til að sinna
sjálfsræktinni.
20. apríl - 20. maí
Naut Þú ert að læra aga og hófsemi.
Vertu til taks fyrir vin. Sittu við stýrið í
eigin lífi.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Það skiptir þig miklu máli að
finna til öryggiskenndar, en þú hefur ekki
fundið fyrir henni í einhvern tíma. Nú
verður breyting á eftir samning sem þú
gerir.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Þú ert eitthvað viðkvæm/ur. Sum-
ir hlutir eru bara til þess að hlæja að
þeim. Haltu áfram að synda á móti
straumnum.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Sú vinna sem þú hefur lagt á þig að
undanförnu mun bera árangur innan
skamms. Ekki taka vinum sem sjálfsögð-
um, vináttu þarf að sinna svo hún haldi.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Tilfinningarnar eiga það til að
hlaupa með þig í gönur. Þú rærð of mikið
á sömu mið, reyndu einhver ný. Það er
aldrei að vita hvað kemur í netið.
23. sept. - 22. okt.
Vog Flutningar og breytingar á starfs-
högum eru óhjákvæmilegar. Það er ekki
hægt að þjóna tveimur herrum, þú verður
að velja.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Þú ættir að endurmeta stöðu
þína í félagi eða sambandi. Þú þarft að
æfa þig betur í þolinmæði. Ekki leita langt
yfir skammt í leit að hamingjunni.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Ekki hætta í miðjum klíðum að
sinna verkefni sem er á þína ábyrgð. Þú
gætir setið eftir með sárt ennið fljótlega
en það jafnar sig fjótt.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Láttu berast með straumnum
og gerðu þitt besta. Það er nóg. Þú færð
vissan hlut á silfurfati.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Fylgdu innsæi þínu. Gefðu þér
góðan tíma til þess að sníða stakk eftir
vexti, góðir hlutir gerast hægt.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Fólk er tilbúið til að veita þér allan
þann stuðning sem þú þarft því það trúir
á það sem þú ert að gera. Búðu þig undir
að slá í gegn á árinu sem er gengið í garð.
Gunnari Ingimundarsyni viðskipta-
fræðingi, framkvæmdastjóra og
fjögur börn þeirra eru Davíð fram-
kvæmdastjóri, eiginkona hans er
Nína Björg Arnbjörnsdóttir hús-
móðir og börn þeirra eru Kjartan
klukkustundar langt spjall þar sem
við fórum yfir árið.“
Davíð fylgist enn vel með fréttum
og helstu áhugamálin eru tónlist,
lestur og fjölskyldan. Þau hjónin
ferðast einnig töluvert. „Ég elska
Mozart, við hjónin erum nýkomin
úr ferð í Austurríki, fórum í göngu-
ferðir um Alpana. Lífið hefur borið
mig á höndum sér.“
Fjölskylda
Fyrri kona Davíðs var Soffía
Mathiesen f. 3.8. 1930, d. 7.1. 1964,
húsmóðir og kennari, dóttir Jóns
Mathiesen, kaupmanns í Hafnar-
firði, og konu hans, Jakobínu Mat-
hiesen, f. Petersen.
Börn Davíðs og Soffíu eru: 1)
Laura, f. 1954, hjúkrunarfræðingur
hjá embætti landlæknis, gift Magn-
úsi Pálssyni viðskiptafræðingi og
þrjár dætur þeirra eru: Soffía, sál-
fræðingur, maki hennar er Salvar
Geir Guðgeirsson prestur og eiga
þau eina dóttur á leikskólaaldri,
Emblu Sóleyju; Björg fjölmiðla-
kona og Perla leiðsögumaður, maki
hennar er Guðmundur Lúther Hall-
grímsson verkefnastjóri. 2) Hrund,
f. 1957, doktor í hjúkrunarfræði,
deildarstjóri á Landspítala, gift
D
avíð Scheving Thor-
steinsson fæddist 4.
janúar 1930 á Ísafirði
en flutti nokkurra
mánaða með foreldr-
um sínum til Reykjavíkur þar sem
hann ólst upp, lengst af á Laufás-
veginum. Hann lauk stúdentsprófi
frá MR 1949 og prófi í heimspeki-
legum forspjallsvísindum frá HÍ ári
síðar.
Davíð var framkvæmdastjóri hjá
Smjörlíki hf. og Sól hf. 1964-1995,
en Sól var oftsinnis kosið vinsæl-
asta fyrirtækið hjá tímaritinu
Frjálsri verslun. Hann var formað-
ur nefndar sem samdi reglur um
starfshætti hlutafélaga á Íslandi, og
þær reglur eru núna orðnar reglur
Kauphallar Íslands. Hann sat í
stjórn Félags íslenskra iðnrekenda
1968-1974, og var formaður félags-
ins 1974–1982, hann sat í fram-
kvæmdastjórn samtaka atvinnulífs-
ins og varaformaður 1978-1990,
formaður bankaráðs Iðnaðarbank-
ans 1982-1989, varamaður í banka-
ráði Landsbanka Íslands 1972-
1980, varamaður í bankaráði Seðla-
banka Íslands 1980-1993 og
aðalmaður í stjórn Seðlabanka Ís-
lands 1993-1998. Hann sat í stjórn
Rauða kross Íslands og var formað-
ur hans um árabil og sat í stjórn
minningarsjóðs frú Stefaníu Guð-
mundsdóttur 1984-2006. Davíð var
formaður ráðgjafarnefndar Íslands
hjá EFTA um árabil, ræðismaður
Írlands og síðar aðalræðismaður
1977-2018 og formaður Ræðis-
mannafélags Íslands 2007-2018.
Davíð var sæmdur fálkaorðunni ár-
ið 1982.
„Það sem er eftirminnilegast á
ferlinum fyrir utan ævistarfið hjá
Sól er líklega formennskan í Félagi
íslenskra iðnrekenda og störfin hjá
Seðlabankanum. Þau tóku ansi mik-
inn tíma, eins og að semja þessar
reglur um ársreikninga félaga. Við
störfuðum mikið saman, við Jó-
hannes Nordal, og ég tel hann til
einkavina minna en við fórum oft í
veiðiferðir saman. Störfin fyrir
Vinnuveitendasambandið eru líka
eftirminnileg. Við Guðmundur jaki
vorum til dæmis miklir vinir og á
hverju gamlárskvöldi áttum við
vörubirgðastjóri, Kolbrún mennta-
skólanemi, Soffía Hrund grunn-
skólanemi og Gunnar Óli grunn-
skólanemi; Jakob tónlistarmaður;
Soffía sálfræðinemi í Háskóla Ís-
lands og Magnús stuðningsfulltrúi.
3) Jón, f. 1963, stærðfræðingur,
framkvæmdastjóri, kvæntur Ragn-
heiði Harðardóttur landsréttar-
dómara og tvö börn þeirra eru:
Vera, nemi í stjórnmálafræði við
Bandaríska háskólann í París, og
Ari, nemi við tölvubraut Tækniskól-
ans í Reykjavík.
Seinni kona Davíðs er Stefanía
Svala Borg, f. 24.11. 1940, húsmóðir
og læknaritari, dóttir Geirs Borg
framkvæmdastjóra og konu hans
Guðrúnar Ragnars Ólafssonar frá
Akureyri.
Börn Davíðs og Stefaníu eru: 1)
Magnús, f. 1968, framkvæmda-
stjóri, kvæntur Þóreyju Eddu
Heiðarsdóttur sálfræðingi og þrjú
börn þeirra eru: Davíð nemi í fjár-
málaverkfræði; Hekla mennta-
skólanemi og Þór grunnskólanemi.
2) Guðrún, f. 1971, barnalæknir.
Dóttir hennar er Eyrún Jóhanns-
dóttir, nemi í sálfræði í Háskóla Ís-
lands. Faðir Eyrúnar er Jóhann
Ragnar Guðmundsson, fyrrverandi
Davíð Sch. Thorsteinsson, fv. framkvstj. og formaður Félags ísl. iðnrekenda – 90 ára
Kátur Davíð er ánægður með lífið og tilveruna og hefur nóg fyrir stafni.
„Lífið hefur borið mig á höndum sér“
Hjónin Stödd í Bonifacio á
Korsíku fyrir tveimur árum.
Morgunblaðið/Jim Smart
Afinn Davíð les fyrir barnabörnin
Tómas og Sólveigu Jóhannsbörn.
30 ára Harpa er
Reykvíkingur, ólst upp
í Smáíbúðahverfinu
og býr þar. Hún er
með BS-gráðu í véla-
verkfræði frá HÍ og
kláraði meistaranám í
endurnýjanlegri orku-
verkfræði frá Tækniháskólanum í
Gautaborg. Harpa vinnur á bygging-
arsviði hjá EFLU verkfræðistofu en er í
fæðingarorlofi.
Maki: Elfar Freyr Helgason, f. 1989,
knattspyrnumaður með Breiðabliki.
Dóttir: Melkorka Elfarsdóttir, f. 2019.
Foreldrar: Jóhanna Ólafsdóttir, f. 1957,
bankamaður, og Gísli Hafþór Jónsson, f.
1955, verkstjóri hjá Eykt. Þau eru búsett
í Reykjavík
Harpa Sif
Gísladóttir
Til hamingju með daginn
Reykjavík Melkorka Elfars-
dóttir fæddist 22. maí 2019
kl. 12.32 á Landspítalanum.
Hún vó 3.255 g og var 48 cm
löng. Foreldrar hennar eru
Harpa Sif Gísladóttir og Elfar
Freyr Helgason.
Nýr borgari