Morgunblaðið - 04.01.2020, Síða 41
ÍÞRÓTTIR 41
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 4. JANÚAR 2020
Fimmtán ár skilja þá Björg-
vin Pál Gústavsson og Viktor
Gísla Hallgrímsson að, en þeir
skipa markvarðapar íslenska
landsliðsins í handbolta á EM
síðar í janúar. Gaman verður að
sjá þann kornunga og þann
gamla vinna saman og hvernig
sem gengi Íslands á mótinu
verður, lærir Viktor væntanlega
gríðarlega mikið af því að vera
með Björgvini á stórmóti.
Blandan í leikmannahópnum
er yfirhöfuð afar skemmtileg.
Ungir leikmenn eins og Haukur
Þrastarson, Elvar Örn Jónsson
og Viktor Gísli eru þar í slagtogi
með hinum fertuga Guðjóni Val
Sigurðssyni, 39 ára Alexander
Petersson og 34 ára Björgvini
Páli.
Það líður væntanlega ekki
langur tími þar til þeir ungu
þurfa að taka við af þeim sem
eldri eru og gæti mótið í ár ver-
ið mikilvægur þáttur í því ferli.
Liðið ætlar sér hins vegar fyrst
og fremst góðan árangur á
mótinu og hefur alla burði til
þess. Margir leikmenn liðsins
hafa spilað virkilega vel með fé-
lagsliðum sínum á leiktíðinni og
innkoma Guðjóns Vals og Alex-
anders gerir mikið innan og ekki
síður utan vallar. Guðjón Valur
spilaði á sínu fyrsta stórmóti
áður en Viktor Gísli og Haukur
fæddust.
Íslenska liðið ætlar sér að
eiga möguleika á sæti á Ólymp-
íuleikunum, en til þess að það
geti orðið að veruleika má lítið
út af bera. Tvö sæti eru eftir fyr-
ir Evrópuþjóðir í undankeppni
Ólympíuleikanna og takist Ís-
landi að ná öðru þeirra bíður
riðill með annaðhvort Frakklandi
og Króatíu eða Þýskalandi og
Svíþjóð, ásamt einni þjóð frá
annarri heimsálfu. Þar þarf Ís-
land að hafna í öðru af tveimur
efstu sætunum til að komast á
Ólympíuleikana.
BAKVÖRÐUR
Jóhann Ingi
Hafþórsson
johanningi@mbl.is
Nikolaj Jacob-
sen, landsliðs-
þjálfari karlaliðs
Dana í hand-
bolta, segir það
helvíti að mæta
Íslandi í fyrsta
leik á Evr-
ópumeist-
aramótinu sem
fram fer í Aust-
urríki, Noregi og
Svíþjóð. Danmörk og Ísland mætast
í fyrsta leik sínum á mótinu í E-riðli
keppninnar hinn 11.. janúar næst-
komandi en Jacobsen tók við
danska liðinu af Guðmundi Guð-
mundssyni, núverandi þjálfara ís-
lenska liðsins.
Hann segir Guðmund vera stað-
ráðinn í að vinna danska liðið vegna
þessa. „Það verður maður á hinum
bekknum og það liggur við að hon-
um verði sama um milliriðla, svo
lengi sem hann getur unnið þennan
leik. Ég hefði frekar viljað spila við
Slóveníu, Pólland og Sviss, eins og
Svíarnir. Maður getur lent í basli
með Slóveníu en hinir leikirnir ættu
að vinnast og þá er maður kominn
áfram. Það er ekki hægt að segja
um Ungverjaland og Rússland og
leikurinn við Ísland verður helvíti,“
sagði Jacobsen við BT.
Danir eru ríkjandi heimsmeist-
arar og ætla sér stóra hluti á EM.
Helvíti að
mæta Íslandi
í fyrsta leik
Nikolaj
Jacobsen
HANDBOLTI
Jóhann Ingi Hafþórsson
johanningi@mbl.is
„Þetta er búið að vera flott. Við er-
um að verða tilbúnir og þetta lítur
vel út. Allir eru í góðu standi og við
erum spenntir,“ sagði Sigvaldi Björn
Guðjónsson, landsliðsmaður í hand-
bolta, í samtali við Morgunblaðið.
Liðið undirbýr sig nú af krafti fyrir
Evrópumótið í Svíþjóð, Noregi og
Austurríki sem hefst 9. janúar, en ís-
lenska liðið leikur sína leiki í Malmö
í Svíþjóð.
Sigvaldi lék á fyrsta stórmóti sínu
á HM í Þýskalandi og Danmörku á
síðasta ári. Hornamaðurinn er
spenntur fyrir öðru stórmóti og
möguleikum Íslands, en í íslenska
hópnum er skemmtileg blanda af
ungum leikmönnum og svo eldri og
reyndari. Daníel Þór Ingason,
Haukur Þrastarson og Elvar Örn
Jónsson léku á fyrsta stórmóti sínu í
fyrra og þeir eru mættir aftur,
reynslunni ríkari. Þá verða reynslu-
boltarnir Alexander Petersson og
Guðjón Valur Sigurðsson einnig
með.
Skemmtileg blanda
„Maður er aðeins slakari núna.
Hópurinn er ungur og að hafa eins
árs reynslu gerir mikið fyrir þennan
hóp. Lexi er svo kominn inn og Gaui
er klár, svo þetta er skemmtileg
blanda af reyndum mönnum og ung-
um strákum,“ sagði Sigvaldi.
Hann segir liðið ætla sér betri
hluti en á HM í fyrra, þar sem það
fór í milliriðil en tapaði öllum sínum
leikjum þar. „Þetta var erfitt í fyrra
en við ætlum okkur alltaf stóra hluti,
við erum með það gott lið. Við viljum
vinna alla leiki sem við spilum. Þetta
er rosalega erfiður riðill en við ger-
um okkar besta til að komast
áfram.“
Sigvaldi hefur leikið afar vel með
Elverum í Noregi og varð hann
norskur bikarmeistari á dögunum,
annað árið í röð. Hornamaðurinn
skoraði 18 mörk í undanúrslitum
bikarsins og var svo aftur marka-
hæstur í úrslitaleiknum með níu
mörk. Liðið varð norskur meistari á
síðustu leiktíð og er nú í toppsæti
deildarinnar með þriggja stiga for-
skot. Þá er Sigvaldi fyrirliði liðsins
og markahæstur í Meistaradeild
Evrópu með 48 mörk í 10 leikjum.
Sagði nei við þýsku liðin
Góð frammistaða Sigvalda vakti
athygli utan Noregs og samdi hann á
dögunum við pólska liðið Kielce, sem
er eitt það sterkasta í heimi. Eins og
gefur að skilja er Sigvaldi spenntur
fyrir félagsskiptunum, en hann
gengur formlega til liðs við Kielce
fyrir næsta tímabil.
„Ég er búinn að standa mig vel í
Meistaradeildinni og þeir hafa fylgst
með mér í svolítinn tíma. Þeir eru að
missa góðan leikmann, við erum
svipaðir og ég á að koma í staðinn
fyrir hann. Ég er ótrúlega spenntur
fyrir þessu landsliðsverkefni í jan-
úar og svo næsta tímabili í Póllandi,“
sagði Sigvaldi spenntur.
Hann viðurkennir að fleiri félög
hafi haft samband. „Ég sagði nei við
nokkur þýsk lið eftir að þetta kom
upp. Ég var spenntastur fyrir
Kielce. Þetta var aldrei spurning.“
Sigvaldi verður ekki eini Íslend-
ingurinn sem spilar með Kielce á
næstu leiktíð því Selfyssingurinn
Haukur Þrastarson samdi einnig við
félagið fyrir skömmu. „Við höfum
spjallað svolítið saman. Það verður
flott fyrir okkur báða að geta notað
íslenskuna eitthvað,“ sagði Sigvaldi
Björn Guðjónsson.
Sigvaldi er í 17 manna landsliðs-
hópnum sem hélt til Þýskalands í
gærmorgun, en Íslendingar mæta
Þjóðverjum í vináttulandsleik í
Mannheim klukkan 16.20 í dag. Ís-
land er í E-riðli með Danmörku,
Ungverjalandi og Rússlandi á
Evrópumótinu og verður leikið í
Malmö. Fyrsti leikurinn er gegn
Dönum laugardaginn 11. janúar.
Reynslan frá HM mikil-
væg fyrir þennan hóp
Sigvaldi Björn bíður spenntur eftir að Evrópukeppnin hefjist um næstu helgi
AFP
Hornamaður Sigvaldi Björn Guðjónsson lék í fyrsta skipti á stórmóti þegar Ísland tók þátt í lokakeppni HM í Þýska-
landi fyrir ári og fagnar hér marki gegn Frökkum í þeirri keppni. Hann hefur spilað 20 landsleiki.
Gary Martin, leikmaður ÍBV og
markahæsti leikmaður úrvals-
deildar karla í knattspyrnu á síð-
ustu leiktíð, er að ganga til liðs við
enska utandeildarliðið Darlington á
láni en það er staðarblaðið í Dar-
lington sem greinir frá þessu. Dar-
lington er í tíunda sæti í sínum riðli
með 33 stig eftir 23 spilaða leiki.
Framherjinn mun snúa aftur til
Vestmannaeyja um miðjan mars og
taka slaginn með ÍBV í 1. deildinni
næsta sumar en liðið endaði í
neðsta sæti úrvalsdeildarinnar á
síðustu leiktíð og féll um deild.
Sá markahæsti
fer til Darlington
Ljósmynd/Sigfús Gunnar
Markheppinn Gary Martin tekur
slaginn með ÍBV í 1. deildinni.
Martin Hermannsson átti mjög góðan leik fyrir Alba
Berlín þegar liðið heimsótti Valencia í Evrópudeildinni í
körfuknattleik í gær. Leiknum lauk með fjórtán stiga
sigri Valencia, 91:77, en Martin var næststigahæstur í
liði Alba Berlín ásamt Litháanum Okas Giedraitis en
þeir skoruðu báðir 13 stig. Þá gaf Martin einnig fimm
stoðsendingar á þeim rúmu 26. mínútum sem hann spil-
aði. Alba Berlín leiddi með fjórum stigum í hálfleik,
42:38, en seinni hálfleikurinn var eign spænska liðsins
sem fagnaði þægilegum sigri í leikslok.
Alba Berlín hefur ekki gengið vel í Evrópudeildinni á
þessari leiktíð en þýska liðið er í sautjánda og næst-
neðsta sæti deildarinnar með einungis fimm sigra og tólf töp eftir sautján
spilaða leiki. Zenit frá Pétursborg er í neðsta sætinu með fjóra sigra en
Anadolu Efes og Real Madrid eru í topp sætunum með fjórtán sigra hvort.
Góður leikur dugði skammt
Martin
Hermannsson
Elvar Már Friðriksson náði sér ekki á strik fyrir Borås
þegar liðið heimsótti Köping Stars í toppslag efstu deild-
ar Svíþjóðar í körfuknattleik í gær. Leiknum lauk með
92:76-sigri Köping Stars en Elvar skoraði sjö stig í leikn-
um og gaf sjö stoðsendingar á þeim rúmlega hálftíma
sem hann spilaði.
Köping Stars byrjaði leikinn betur og leiddi með
þremur stigum eftir fyrsta leikhluta. Leikmenn Borås
mættur ekki til leiks í öðrum leikhluta sem Köping Stars
vann með 29 stigum gegn 13 stigum Borås og staðan því
45:26, Köping Stars í vil, í hálfleik. Þrátt fyrir 10 stiga
sigur Borås í þriðja leikhluta dugði það ekki til.
Borås er áfram í öðru sæti deildarinnar eftir leik gærdagsins en liðið er
með 32 stig eftir 20 spilaða leiki. Köping Stars er í efsta sætinu, einnig með
32 stig, en Köping Stars á leik til góða á Borås.
Sextán stiga tap í toppslag
Elvar Már
Friðriksson
Ramus Lauge, leikstjórnandi
danska karlalandsliðsins í hand-
knattleik, meiddist á fæti á æfingu
liðsins á dögunum en það eru
danskir fjölmiðlar sem greina frá
þessu. Lauge mun því ekki leika
með danska liðinu í Gulldeildinni
eins og til stóð. Þá er óvíst hvort
hann verði búinn að jafna sig þegar
Danir mæta Íslandi í Malmö í fyrsta
leik sínum á EM í E-riðli keppn-
innar en leikurinn fer fram11. jan-
úar. Lauge var lykilmaður í liði
Dana þegar þeir urðu heimsmeist-
arar á síðasta ári í Herning.
Óvíst um þátttöku
leikstjórnandans
Ljósmynd/@SEHALeague
Meiddur Rasmus Lauge leikur með
Veszprém í Ungverjalandi.