Morgunblaðið - 25.03.2020, Page 5
Bankaþjónusta
með breyttu sniði
Þjónusta Landsbankans fer nú fram í síma og með rafrænum hætti.
Við sinnum aðeins brýnum erindum í útibúum eftir tímapöntunum og hvetjum
viðskiptavini okkar til að nota símann, netbanka, netspjall og Landsbankaappið.
Nánari upp lýs ingar eru á landsbankinn.is.
Þú getur gert
næstum allt á netinu
Við hvetjum þig til að nota raf ræna þjónustu ef þú getur, en
öll almenn banka þjónusta er alltaf til staðar í net bank anum og
Lands banka appinu. Ef þú átt snjall síma eða snjall úr hvetjum við
þig líka til að nota snerti lausar greiðslur til að forðast snert ingu
við posa og skiptimynt.
Þú finnur góð ráð um bankaþjónustu með breyttu sniði
á landsbankinn.is/god-rad.
Þú getur alltaf fengið
ráðgjöf í síma
Ef þú vilt ræða við ráðgjafa getur þú alltaf pantað símtal. Þú getur
haft samband í netspjallinu á landsbankinn.is eða með tölvupósti
á netfangið landsbankinn@landsbankinn.is.
Þjónustuver okkar tekur einnig á móti fyrirspurnum frá
einstaklingum og fyrirtækjum alla virka daga kl. 9–16
í síma 410 4000.
Við erum til staðar
til að leysa úr málum
Ef þú lendir í greiðsluerfiðleikum hvetjum við þig til að hafa
samband. Við gerum okkar besta til að koma til móts við
einstaklinga og fyrirtæki vegna óvæntra aðstæðna. Þú finnur
upplýsingar og svör við algengum spurningum um úrræði fyrir
einstaklinga og fyrirtæki á landsbankinn.is.