Morgunblaðið - 25.03.2020, Qupperneq 8
Morgunblaðið/Eggert
Augnlæknir Einar Stefánsson segir
fitusýrurnar ætlaðar til sóttvarna.
8 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 2020
SKÚTUVOGI 1C | 104 REYKJAVÍK | SÍMI 550 8500 | WWW.VV.IS
Rafstýrðar hurðarpumpur í miklu úrvali!
Snertilausir hurðaopnarar
Verkalýðsfélagið Efling hefur íþeim kórónuveirufaraldri sem
geisað hefur vikum saman hér á
landi haldið úti verkföllum í viðbót
við nær óviðráðanlega ógn. Þetta
hefur verið óskiljanlegt flestu
fólki og algerlega úr takti við
ástandið í samfélaginu.
Svo kom að því að verkföllinvoru hætt að
skipta máli enda
lítið starf í skólum
og æ færri sem
hafa áhuga á að
senda börn sín
þangað og þá slær
Efling verkföllum
sínum á frest. Til-
gangurinn virðist
eingöngu að spara
verkfallssjóðinn og halda í það
litla álit sem forysta félagsins nýt-
ur enn.
Enginn skyldi halda að frestunverkfallanna sé af góðum
hug, að samningsviljinn hafi gert
vart við sig eða að kröfurnar hafi
nálgast raunveruleikann, enda
fylgja hótanir um að setja af stað
jafnvel enn meiri verkfalls-
aðgerðir „innan nokkurra vikna“.
Að auki fylgdi tilkynningu umfrestun árás á þau sveitar-
félög sem ekki vilja beygja sig
undir fráleitar kröfur um að
semja langt umfram það sem aðrir
hafa gert. Það er að segja aðrir
en Dagur.
Í tilkynningunni segir að þessi
sveitarfélög hafi verið ósvífin og
að þau hafi „kosið að nýta sér far-
aldurinn á einstaklega ómerki-
legan hátt til að hamla eðlilegum
framgangi viðræðna“. Þá er því
hnýtt við að skömm Sambands ís-
lenskra sveitarfélaga sé mikil.
Þetta eru ótrúleg öfugmæli, jafn-
vel komin frá sendlum sósíalista-
leiðtogans.
Sólveig Anna
Jónsdóttir
Öfugmæli Eflingar
STAKSTEINAR
Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnar-
greinum Morgunblaðsins á slóðinni
http://mbl.is/mogginn/leidarar/
Einar Stefánsson, prófessor í
læknisfræði, kveðst hafa fengið tals-
verð jákvæð viðbrögð við viðtali í
Morgunblaðinu á mánudag um nýja
vöru með veiruhamlandi efni sem
unnin er úr lýsi.
Hann telur mikilvægt að ítreka að
notkun nýrrar vöru sem
inniheldur fríar fitusýrur sé
ekki læknismeðferð við
þeim sjúkdómi sem
kórónuveiran veldur,
heldur sé hugsunin að
hún sé fyrirbyggjandi.
Fram kom í viðtalinu
að um væri að ræða
kenningu um að fríar
fitusýrur sem væri að
finna í lýsi gætu eyðilagt
kórónuveirur í munni og
koki, með sama hætti og þær
eyðilegðu herpesveirur og RS-
veirur.
„Fríar fitusýrur eyðileggja
veirur á svipaðan hátt og
sápa eða spritt. Sápan gerir
það á yfirborði húðar, en fitu-
sýrurnar á yfirborði slím-
húðar. Þær eru ætlaðar til
sóttvarna en eru ekki lyf og
ekki ætlaðar til meðferðar á
neinum sjúkdómi,“ segir
Einar. gso@mbl.is
Fitusýrur ekki
meðferð heldur
fyrirbyggjandi
Lýsisafurðin vekur mikla athygli
Höskuldur Daði Magnússon
hdm@mbl.is
„Það er mjög mikilvægt að yfirvöld
hafi yfirsýn og stjórn á birgðunum.
Við erum ekki að fara að sjá neinn
lyfjaskort en það skiptir máli að
dreifingin sé rétt,“ segir Rúna
Hauksdóttir Hvannberg, forstjóri
Lyfjastofnunar.
Stjórnvöld kynntu í byrjun vik-
unnar nýja reglugerð um lyfjaávís-
anir og afhendingu lyfja, en með
henni er ætlunin að sporna við lyfja-
hamstri. Brögð hafa verið að því
undanfarið að einstaklingar hafi
hamstrað lausasölulyf og að fólk
með fjölnota lyfseðla hafi leyst út
margar afgreiðslur samtímis. Slíkt
getur skapað lyfjaskort.
„Það hefur aðeins borið á því að
fólk hefur verið að leysa út sex mán-
aða skammt af lyfjum en nú verður
bara hægt að leysa út þriggja mán-
aða skammt. Fólk er kvíðið og
áhyggjufullt en það er mikilvægt að
það haldi ró sinni. Þetta eru mjög
væg ákvæði miðað við þær aðgerðir
sem farið hefur verið í í löndunum í
kringum okkur. Á Norðurlöndunum
hafa úttektir verið takmarkaðar við
mánaðarskammt,“ segir Rúna.
Reglugerðin felur jafnframt í sér
að Lyfjastofnun geti takmarkað af-
greiðslu lyfja þegar sérstakar
ástæður sem varða almannaheill og
lýðheilsu mæla með því. „Þetta er
bara til að undirbyggja þær aðgerðir
sem við höfum verið að grípa til.“
Í tilkynningu stjórnvalda segir að
lyfjabirgðir hafi verið auknar í land-
inu í kjölfar kórónuveirufaraldurs-
ins. „Það er mat heilbrigðisyfirvalda
að birgðir séu nægar ef þeim er rétt
skipt,“ segir í tilkynningu.
Hafa hamstrað
lyfseðilsskyld lyf
Ný reglugerð á að
sporna við lyfja-
hamstri Nóg er til
Morgunblaðið/Friðrik
Apótek Fólk hefur hamstrað lyf
undanfarið. Óþarfi, segja yfirvöld.