Morgunblaðið - 25.03.2020, Síða 22
22 MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ MIÐVIKUDAGUR 25. MARS 2020
Tilboð/útboð
- Til sölu -
Faxaflóahafnir sf. auglýsa hér með
dráttarbátinn Jötunn til sölu:
Helstu kennistærðir:
Lengd 19,3 metrar
95,72 BT
Togkraftur 26,7 tonn
Tvær 1.000 h.a. Caterpillar aðalvélar
Hliðarskrúfa 107 h.ö.
Nánari upplýsingar má sjá á eftirfarandi slóð á
heimasíðu Faxaflóahafna:
Faxafloahafnir.is > Hafnarþjónusta > Dráttarbátar >
Jötunn
Báturinn er til afhendingar í höfnum Faxaflóahafna
gegn staðgreiðslu. Áskilinn er réttur til að hafna
öllum tilboðum.
Bindandi verðtilboð berist til Faxaflóahafna sf.
eigi síðar en kl. 12:00, þann 22. apríl 2020.
Félagsstarf eldri borgara
Bústaðakirkja Við bíðum af okkur samkomubannið og vírusinn og
hittumst hress aftur þegar grænka tekur og blómstur verður í túni.
Guð blessi ykkur öll, kærleikskveðja Hólmfríður djákni.
Garðabæ Skipulagt tómstunda- og íþróttastarf fyrir eldri borgara á
vegum Garðabæjar, s.s. í Jónshúsi, Smiðjunni, Litlakoti,
íþróttahúsinu í Sjálandsskóla og Ásgarði, fellur niður tímabundið.
Starfsemi hjá FEBG og FEBÁ fellur einnig niður tímabundið.
Korpúlfar Allt félagssstarf á vegum Korpúlfa fellur niður vegna
Kórónaveirufaraldurs nema gönguhópar Korpúlfa, gengið er frá kl.
10. mánudaga, frá Borgum, Grafarvogskirkju og í Egilshöll. Á
miðvikudögum og föstudögum kl. 10. frá Borgum og inni í Egilshöll.
Hvetjum alla til að halda áfram heilsueflingu og passa upp á hvert an-
nað með því að hringja hvert í annað og fylgjast vel með á
samfélagsmiðlum takk
Korpúlfar Allt félagsstarf Korpúlfa fellur niður þess vikuna vegna
Kórónaveirufaraldurs, nema gönguhópur Korpúlfa sem er kl. 10.
mánudaga gengið frá Grafarvogskirkju og Borgum, einnig kl. 10.
miðvikudaga og föstudaga gengið frá Borgum, en virða þarf fjarlægð
milli göngumanna. Egilshöll hefur verið lokað. Höldum áfram að
passa vel upp á hvert annað og takk fyrir kærleikann. Sími í Borgum
er 517-7056/ 517055.
Norðurbrún 1 Félagsstarfið liggur niðri vegna COVID-19 smits.
Norðurbrún 1 Félagsstarfið liggur niðri vegna COVID-19 smits.
Seltjarnarnes Allt félags og tómstundastarf hjá eldri borgurum á
Seltjarnarnesi liggur niðri vegna COID19. Við hjá félagsstarfinu gerum
allt sem í okkar valdi stendur til að upplýsa og vera til staðar. Hægt er
að vera í sambandi á fb síðunni eldri borgarar á Seltjarnarnesi með
ábendingar eða leyta upplýsinga. Einnig má hringja í Kristínu í síma
8939800 eða senda póst á kristin.hannesdottir@seltjarnarnes.is
Sléttuvegur 11-13 Selið á Sléttuvegi er lokað um óákveðin tíma
vegna Covid-19 smits innanlands
Sumarhús
Sumarhús – Gestahús –
Breytingar
Framleiðum stórglæsileg sumarhús
í ýmsum stærðum.
Tökum að okkur stækkun og
breytingar á eldri húsum.
Smíðum gestahús – margar
útfærslur.
Sjáum um almennt viðhald á
sumarhúsum og sólpöllum.
Setjum niður heita potta og
smíðum palla og skjólveggi.
Áratugareynsla –
endilega kynnið ykkur málið.
Trésmiðja Heimis, Þorlákshöfn,
sími 892-3742 og 483-3693,
www.tresmidjan.is
Iðnaðarmenn
Málarar.
Tökum að okkur alla almenna
málningarvinnu, mjög sangjarnir
í verðum.
Upplýsingar í síma 782-4540 eða
loggildurmalari@gmail.com
Þjónusta
Málningarþjónusta
Upplýsingar í síma 782 6034.
Bílar
TILBOÐ
1.090 þús. staðgreitt
FORD Galaxy
7 manna - Diesel
2.0 Diesel árg 2011
• Sjálfskiptur
• Ekinn 172 þús.
• Skoðaður 2021
• Nýsmurður
• Nýlega skipt um olíu á
skiptingu
• Glæný Vredestein nagladekk
Verð 1.790 þús.
Uppl. í síma 615 8080
BMW 318 e46 2004. TILBOÐ
VEGNA FLUTNINGA
BMW i318 e46 2004 158.xxx.
Þarf að losna við hann sem fyrst, fer
á 230.000 eða tilboð. Búið að taka
vélina í gegn. Nýsmurður.
Upplýsingar í síma 8629726 - Ómar
Smá- og raðauglýsingar
Atvinnublað Morgunblaðsins
fimmtudaga og laugardaga
Er atvinnuauglýsingin þín á besta stað?
Sendu pöntun á atvinna@mbl.is eða
hafðu samband í síma 569 1100
Allar auglýsingar birtast í
Mogganum, á mbl.is og finna.is
Elsku hjartans
bróðir minn, nú ert
þú farinn yfir móð-
una miklu og ert nú
hjá ástvinum okkar
sem fóru á undan en ég trúi því
að við munum hittast öll þarna
hinum megin þegar þar að kem-
ur. Þegar ég sit hér rifjast upp
ótal minningar um þig eins og
þegar ég átti fara í sundtíma í
fyrsta sinn og læra synda og ég
átti að fara ein en ég neitaði að
fara og stóð við hliðið heima há-
skælandi. Þá komst þú heim á
hjólinu þínu og mamma fékk þig
til að tala mig til sem gekk ekki
svo illa því þú ætlaðir að reiða
mig á hjólinu þínu og það var
ævintýri sem ekki var hægt að
neita og daginn eftir gafst þú
mér forláta sundtösku sem ég
átti í mörg ár. Þegar þú fórst til
útlanda til náms saknaði móðir
okkar þín mikið en þú varst dug-
legur að skrifa heim. Við syst-
urnar tókum eftir því að mamma
Aðalsteinn Viðar
Júlíusson
✝ Aðalsteinn Við-ar Júlíusson
fæddist 4. mars
1944. Hann lést 3.
mars 2020.
Útförin fór fram
17. mars 2020.
vissi alltaf hvenær
bréf frá þér bárust
því hún sagði alltaf
þegar hún kom nið-
ur að morgni þann
dag sem bréf frá
þér kom: Það kem-
ur bréf frá stóra
mínum í dag. Við
systurnar fylgd-
umst vel með þessu
og þetta stóðst allt-
af hjá henni móður
okkar.
Eftir nám settust þið Þuríður
að á heimaslóðum hennar þar
sem þið reistuð glæsilegt hús
fyrir ykkur. Mikið var dásam-
legt að geta leitað til þín þegar
með þurfti, þú gafst alltaf góð
ráð sama um hvað málið snerist
og varst tilbúinn að hjálpa. En
lífið var ekki bara sólskin og
gleði. Stóra sorgin þín held ég
hafi verið þegar þú misstir
drenginn þinn í fæðingu en þið
hjónin brugðust við með því að
fá Önnu yndislega litla stúlku
fædda árið 1977 í Suður-Kóreu
og genguð henni í foreldrastað.
Svo fæddist ykkur yndisleg
stúlka, Auðrún, árið 1982.
Eftir að þið Þuríður slituð
samvistum og þú fluttir í burtu
þá saknaði ég þín sárt.
Þú fluttir suður til seinni
konu þinnar, Margrétar Bjarkar
Andrésdóttur, og tók hún okkar
alltaf vel og vorum við alltaf vel-
komin. Þið bræður mínir voruð
svo heppnir að fá í vöggugjöf að
geta teiknað og málað og synir
mínir líka. Oft var ég búin að
hvetja þig til að mála myndir og
loks fann Margrét leið til að fá
þig til að taka upp pensil og ekki
leið á löngu þar til listaverkin
fóru að sjást.
Ekki fékkstu að sleppa við
veikindi og síðustu árin þín
þurftir þú að berjast við þau og
gekkst í gegnum þau af æðru-
leysi og varst í sambandi við
litlu systur þína sem einnig var
að berjast. Hresstir hana við og
hvattir. Svo fór að veikindin
höfðu yfirhöndina hjá þér. Við
og öll fjölskyldan munum sakna
þín og ég veit að Binni minn á
eftir að sakna þín mikið og send-
ir þér kveðju og þakklæti fyrir
að vera vinur og ráðgjafi og
hann segir að þið munið örugg-
lega klára verkið þegar þið hitt-
ist. Það er svo margt sem ég
vildi setja niður á blað um þig,
elsku bróðir minn, og minningar
um okkur öll systkinin en það
verður að bíða og við munum
hittast og minnast alls þess góða
sem við áttum saman öll. Elsku
Alli minn, takk fyrir að vera
bróðir minn, minningin um þig
verður alltaf í hjarta mínu og
takk fyrir allt og allt.
Þín elskandi litla systir,
Jóhanna (Hanna).
✝ Skúli Magn-ússon fæddist í
Hrísey 14. febrúar
1961. Hann lést á
heimili sínu Bugðu-
tanga 28 í Mos-
fellsbæ 3. mars
2020. Foreldrar
hans voru Guðrún
Björg Sigurðar-
dóttir frá Hrísey, f.
23. september
1923, d. 21. október
2001 og Magnús Sigurjón Þor-
steinsson frá Ólafsfirði, f. 29.
júlí 1923, d. 24. nóvember 1987.
Skúli var yngstur 6 systkina, 4
alsystkin og 2 hálfsystkin sam-
mæðra. Þau eru Sigrún Bjarg-
lind Valdimarsdóttir, f. 1941,
maki Ingólfur Ingólfsson, þau
eiga 5 börn, þau búa í Reykja-
nesbæ, Mikael Sigurðsson, f.
1943, maki Ebba Sigurhjart-
ardóttir, þau eiga 3 börn, þau
búa í Hrísey. Valgerður Magn-
úsdóttir, f. 1950, maki Elías K.
Þorsteinsson, þau eiga eina
henni vel, þar til móðir hans lést
árið 2001. Hann keypti sér lítið
raðhús í Mosfellsbæ árið 2002
og bjó þar til dánardægurs.
Eftir hefðbundna skólagöngu
í Melaskóla og Hagaskóla fór
hann í vélskólann og útskrif-
aðist þaðan sem vélfræðingur
1984 og með full réttindi sem
vélstjóri 1987. Hann fór til sjós
eftir útskrift sem vélstjóri og
vann hjá ýmsum félögum. Hann
réð sig til Samskipa sem vél-
stjóri á millilandaskipum 1990-
1992, hjá Olíufélaginu hf. 1992-
1994 og hjá Olíudreifingu 1994-
1999.
Hann fór í nám hjá Tölvu- og
viðskiptaskólanum í febrúar
1999 og lauk þar námi í október
sama ár. Skúli hóf störf hjá
Reykjavíkurborg sem kerf-
isfræðingur í nóvember 1999 og
starfaði þar til dánardægurs.
Skúli var ógiftur og barnlaus.
Skúli hafði átt við vanheilsu
að stríða undanfarnar vikur og
var í veikindaleyfi þegar hann
lést.
Í ljósi hinna óvenjulegu að-
stæðna í samfélaginu hefur út-
för hans farið fram í kyrrþey.
dóttur, þau búa í
Mosfellsbæ. Auður
Lekay, maki Marko
Lekay, þau eiga 2
syni, þau búa í
Bandaríkjunum.
Erna Magnús-
dóttir, maki Rad-
islav Vidakovic,
þau eiga eina dótt-
ur, þau búa í Sví-
þjóð. Árið 1964
fluttu foreldrar
Skúla og systur frá Hrísey til
Reykjavíkur þar sem faðir
Skúla var lítið heima vegna
vinnu sinnar en hann vann alla
tíð fyrir sunnan á veturna og á
Raufarhöfn á sumrin meðan
síldin var, einnig voru systur
Skúla að komast á þann aldur
að þurfa að fara í gagnfræða-
skóla en í Hrísey var bara
barnaskóli. Þau keyptu sér íbúð
á Ægisíðu 50, eftir að faðir
Skúla dó, en hann varð bráð-
kvaddur aðeins 64 ára. Bjó
Skúli með móður sinni og sinnti
Stórt skarð er höggvið í
systkinahópinn okkar þar sem
yngsta systkinið hann Skúli er
fallinn frá nýorðinn 59 ára. Ekki
grunaði mig að hann væri að
borða hjá mér síðustu kvöld-
máltíðina nokkrum dögum fyrir
andlátið. Skúli hafði verið í veik-
indaleyfi vegna sjúkdómsins
kulnun í starfi, sem ég get ekki
með nokkru móti skilið hvaða
sjúkdómur er, það eru svo
margir sem virðast vera með-
höndlaðir með þann sjúkdóm ef
sjúkdómseinkennin lýsa sér sem
þreyta og mikill slappleiki. Ég
er ekki enn búin að kyngja
þessu andláti en vonandi lækn-
ast ég af þessum mikla söknuði
þegar fram líða stundir. Skúli
var vinmargur, hann var dug-
legri að heimsækja aðra en að
bjóða heim til sín, hann kom oft
í mat til mín og var gaman að
hafa hann. Í fyrrasumar kom
Auður systir okkar og Magnús
sonur hennar í heimsókn frá
Ameríku en Skúli og Magnús
voru mjög nánir vinir og frænd-
ur enda fæddir 14. og 15. febr-
úar með 11 ára millibili og aldir
upp saman á heimili foreldra
minna þar til Magnús flutti 9
ára gamall til Bandaríkjanna
með móður sinni. Við heimsótt-
um æskuslóðir okkar í Hrísey
þar sem Mikael bróðir okkar og
mágkona búa.
Þetta var ógleymanleg ferð
og voru teknar margar myndir
af okkur systkinunum og frænd-
fólkinu sem ylja okkur nú í
minningunni. Foreldrar okkar
fluttu frá Hrísey þegar Skúli
var 3ja ára, bæði vegna þess að
það var enginn gagnfræðaskóli í
Hrísey og að elsta systirin var
komin í gagnfræðaskóla og þær
yngri að nálgast þann aldur,
einnig vegna starfa föður okkar
en hann var aldrei heima vegna
vinnu sinnar, hann kom heim
um jól og páska og á vorin flutt-
um við með honum austur á
Raufarhöfn þar sem faðir okkar
starfaði sem verkstjóri og mats-
maður á síldarsöltunarstöð
Gunnars Halldórssonar og á
veturna gegndi hann sömu
störfum við saltfiskverkunarstöð
Gunnars í Grindavík. Skúli ólst
upp við mikið dekur allra þar
sem hann var yngstur systk-
inanna. Hann var bráðlaglegt
barn og þótti mér ekki leiðinlegt
að passa hann og láta dást af því
hvað hann væri fallegur. Hann
varð fyrir því að slasast þegar
hann var 9-10 ára, hann var að
leika sér ásamt öðrum strákum
með vír sem slóst upp í annað
auga hans og gerði hann blindan
á því auga. Þrátt fyrir margar
aðgerðir til að reyna að bæta
sjónmissinn tókst það ekki. Eft-
ir að faðir okkar lést, en hann
varð bráðkvaddur í vinnunni að-
eins 64 ára, bjó Skúli með móð-
ur okkar og sinnti henni vel, það
var mikið öryggi fyrir okkur
systkinin að vita af honum hjá
henni, sérstaklega eftir að hún
veiktist af krabbameini 1999 og
lést 2001. Hann var ótrúlega
natinn við að aðstoða hana sem
var ekki alltaf auðvelt. Skúli var
vélfræðingur að mennt og feng-
um við vel að njóta meðan hann
var í millilandasiglingum. Eftir
að hann lærði tölvunarfræði nut-
um við góðs af því, hann var að-
alreddarinn ef eitthvað bilaði
eða vírus var kominn í tölvurn-
ar, þá kom hann og bjargaði
málunum. Ég mun sakna þess
að geta ekki hringt í hann og
boðið honum í mat, en svona er
lífið, enginn veit sinn næturstað.
Ég votta öllum systkinum mín-
um og aðstandendum þeirra
mína dýpstu samúð, einnig vin-
um Skúla sem hafa reynst hon-
um vel. Far þú í friði, elsku
bróðir.
Valgerður systir.
Skúli Magnússon