Morgunblaðið - 30.03.2020, Qupperneq 18
18 UMRÆÐAN
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 30. MARS 2020
Smiðjuvegi 9 · 200 Kópavogi
Sími 535 4300 · axis.is
Vandaðar íslenskar innréttingar
Lögfræðingarnir
Helgi Jóhannesson og
Hilmar Gunnlaugsson
hafa skipst á skoðunum
í blaðagreinum í Morg-
unblaðinu dagana 4.-14.
mars. Þar hafa þeir
stundað ýmiss konar
lögfræðihjal og orð-
hengilshátt. Ég ætla
ekki að fara að elta ólar
við þá um þær vanga-
veltur, en vil frekar ræða almennt um
kerfi losunarheimilda og uppruna-
ábyrgða eins og þau birtast í íslenska
raforkukerfinu. Ég mun þó vísa til
lögmannanna eftir því sem þörf þyk-
ir.
Hugtök
Ég hef ávallt notað eftirfarandi
skilgreiningu á hugtökum í raforku-
málum og mun einnig gera það hér á
eftir:
Endurnýjanleg orka kemur frá
náttúrulegum orkulindum og er not-
uð í sama mæli og þær koma fram í
náttúrunni. Stöðuorka vatnsfalla er
talin endurnýjanleg og jarð-
varmaorka hefur einnig verið flokkuð
sem endurnýjanleg, því varmainni-
hald jarðgeyma er takmarkalaust eða
nánast óendanlegt.
Sjálfbær þróun umhverfis vegna
orkuframleiðslu uppfyllir þarfir nú-
tímans án þess að skerða getu kom-
andi kynslóða til að mæta þörfum sín-
um síðar meir. Þessi hugsun hefur
verið höfð að leiðarljósi við stefnu-
mörkun 21. aldar.
Græn raforka er framleidd úr
endurnýjanlegri orku.
Umhverfisáhrif virkj-
unar á endurnýjanlegri
orku er sjálfbær.
Endurnýjanleg raf-
orka og sjálfbær orka
eru orðskrípi sem ber
að forðast.
Ég leyfi mér að vísa í
meðfylgjandi skýring-
armynd, en þá fram-
setningu fannst mér
vanta í fyrrnefndar
blaðagreinar þeirra tví-
menninga.
Á myndinni stendur ESB fyrir
Evrópusambandið (EU – European
Union), EES fyrir Evrópska efna-
hagssvæðið (EEA – European
Econonic Area) og svo hið heima-
tilbúna heiti EOVK á Evrópska orku-
vottunarkerfinu (EECS – European
Energy Certification System).
Raforkukerfi Íslands er sýnt á
táknrænan hátt í miðjunni, kerfi los-
unarheimilda fyrir ofan og kerfi upp-
runaábyrgða fyrir neðan. Losunar-
heimildir og upprunaábyrgðir eru sitt
hvort kerfið sem þjóna hvort sínu
markmiði og án beinna tenginga
þeirra í milli.
Losunarheimildir
Við úthlutun á, verslun með og
uppgjöri á losunarheimildum er not-
uð einingin tonn-CO2.
Ísland er með skylduaðild að Par-
ísarsáttmálanum 2016 en þar eru til-
greind markmið stórs hluta heims-
byggðar í losun gróðurhúsaloftteg-
unda á hverju ári, sem fer stöðugt
minnkandi fram til 2050. Losunar-
heimildir fyrir Ísland eru nánar út-
færðar í íslenskum lögum nr 70/2012
um loftslagsmál.
Markmið þeirra laga er að raun-
veruleg losun fyrir Ísland á hverju ári
verði jöfn losunarheimild. Ef hún er
minni verður til afgangur sem hægt
er að flytja milli ára samkvæmt
ákveðnum reglum. Ef hins vegar los-
un er umfram heimildir verður virkj-
un eða stóriðja að kaupa viðbótar-
kvóta t.d. á markaði (ekki sýndur á
myndinni) til að losna við viðurlög
sem varða sektum.
Fyrir íslenska raforkukerfið skipt-
ir máli að í lögum er tilgreint að þau
taki til brennslu eldsneytis í stöðvum
með varmaafli sem er yfir 20 MW.
Aðeins eldsneytisstöðin á Bolung-
arvík lendir í þessum flokki en hún
getur framleitt 11 MW raforku sem
þýðir að varmaafl þeirrar stöðvar
gæti verið um 33 MW. Þetta lýsir sér
með þunnum línum úr frá kassanum
á myndinni sem merktur er „Raforka
úr eldsneyti“.
Upprunaábyrgðir
Í úthlutun á verslun með og upp-
gjöri á upprunaábyrgðum er notuð
einingin MWh-raforku.
Upprunaábyrgðir eru valfrjálsar
og er tilgangur þeirra að ábyrgjast að
viðskiptavinur sé að kaupa græna
raforku sem hann telur sig þurfa til
að geta sýnt fram á vegna einhverra
viðskiptahagsmuna.
Kerfi upprunaábyrgða byggist á
því að nota upplýsingakerfi Evrópu-
sambandsins, en það leyfir að hægt sé
að selja upprunaábyrgð frá raf-
orkuframleiðanda á Íslandi þó svo að
viðskiptavinur sé staðsettur í Evrópu
og raftenging ekki fyrir hendi milli
þeirra.
Upprunaábyrgðir eru tilkynntar
inn í eftirlitskerfið í samræmi við sölu
raforku til stóriðju á Íslandi, sem hef-
ur afþakkað að kaupa uppruna-
ábyrgðir. Við það stofnast inneign
sem hægt er að selja til erlendra við-
skiptavina. EOVK-kerfið telur síðan
niður inneignina í samræmi við raf-
orkunotkun viðkomandi viðskipta-
vinar erlendis.
Um það hefur verið rætt að al-
mennur markaður á Íslandi fái upp-
runavottun án sérstakrar greiðslu
sem er þá innifalið í orkuverðinu.
Hugmyndin með þessu fyrirkomu-
lagi var upphaflega að verslað væri
með upprunaábyrgðir á frjálsum
markaði en sáralítil virkni hefur verið
þar hingað til og mest er um bein við-
skipti milli seljanda og kaupanda með
millikomu í EOVK kerfinu. Markaðn-
um er því sleppt á myndinni.
Losunarheimildir og
upprunaábyrgðir í
íslenska raforkukerfinu
Eftir Skúla
Jóhannsson » Losunarheimildir og
upprunaábyrgðir
eru sitt hvort kerfið sem
þjóna hvort sínu mark-
miði og án beinna teng-
inga sín í milli.
Skúli Jóhannsson
Höfundur er verkfræðingur.
skuli@veldi.is
Lýðræði hér á landi
er skilgreint sem fram-
kvæmdavald, dómsvald
og löggjafarvald, Al-
þingi skiptist í efri og
neðri deild, var kennt í
skólum, síðan er liðin
hálf öld; lítið hefur
breyst nema Alþingi er
nú ein samkunda.
Nú er talað um fjöl-
miðla sem „fjórða vald-
ið“ framsett í máli og
myndum; en ekki skilgreint samkvæmt
stjórnarskrá. Með „orðið að vopni“
geta fjölmiðlar mistúlkað frétt með
ýmsum hætti ; fréttin fær jafnvel aðra
merkingu en í upphafi var ætlað.
Þegar Donald Trump varð kosinn
forseti hafði hann ekki aðeins mik-
ilvæga fjölmiðla í USA á móti sér, einn-
ig heimspressuna að hluta í hinum
vestræna heimi; lýðræðisleg kosning
forsetans var ekki samþykkt í orði eða
á borði.
Hvort sem menn eru með eða móti
Donald Trump skiptir máli hvernig
fréttir og samtöl við forsetann eru fram
sett; ekki sett fram einhliða skoðun
jafnvel án nægilegar raka.
Er ekki eitthvað rangt í „fréttaflutn-
ingi“, þegar forseti USA þarf að tísta á
Twitter til að skoðun hans sé eftir
orðanna hljóðan?
Gott dæmi var nýlega á RÚV þar
sem erlend fjölskylda átti að fara úr
landi og mál hennar notað til að túlka
flóttamannavandann í
heiminum. Vissulega
biðu þau of lengi, að mál
þeirra yrði tekið fyrir.
Var rétt að setja málið
þannig fram, að það höfð-
aði fremur til tilfinninga
fólks; frekar en að setja
málið fram enn betur á
röklegan hátt?
Dómsmálaráðherra
gaf þá fjölskyldunni leyfi
til að dveljast áfram,
stytti dvalartíma flótta-
fólks úr 18 mánuði í 16
mánuði; eins og það skipti einhverju
máli en virtist þó leysa málið?
Flóttamannavandinn í heiminum er
stærra en svo að það sé leyst með
framangreindum hætti; okkur eru tak-
mörk sett hvað við getum tekið á móti
stórum hópi flóttamanna og við verð-
um að setja reglur sem er raunhæft að
fara eftir, eins mannúðlegar og kostur
er.
Nauðsynlegt er að lög um fjölmiðla
verði skýr, séu í anda lýðræðis og
stjórnarskrár; að fréttir halli ekki réttu
máli þegar þær birtast opinberlega.
Er „fjórða valdið“
ógn við lýðræðis-
lega og gagnrýna
umræðu?
Sigríði Laufeyju
Einarsdóttur
Sigríður Laufey
Einarsdóttir
»Nú er talað um fjöl-
miðla sem „fjórða
valdið“ framsett í máli
og myndum.
Höfundur er með BA
í guðfræði og djákni.
Þegar búið er að setja morgunútvarp rásar 1
og 2 í einn pott kemur upp skrýtin suða. Þar er
í bland hægeldun gömlu gufunnar og hraðsuða
þeirra yngri, sem koma frá sér ótrúlegum
fjölda orða á sekúndu, liggur mér við að segja.
Lagavalið breytist líka og takturinn er ekki sá
sami allan þáttinn. Í þessari blöndu koma líka
fyrir orð og orðatiltæki, sem ekki allir melta
strax, og munurinn á fordómalaus og fordæmalaus getur orðið óljós á köflum.
Þannig mætti segja, í bjartsýniskasti, að veiran hefði sameinað þjóðina, sam-
hliða því að sundra henni í sóttkvíarfólk, home-office-vinnandi og hina.
Þegar þessu fargani léttir munum við væntanlega skiptast aftur í rásar 1- og
rásar 2-neytendur, því það er notalegast að vera í sínum hópi, þar sem menn
skilja hver annan og ganga í sama takti.
Sunnlendingur
Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12.
Tvær þjóðir á tali