Morgunblaðið - 20.04.2020, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 20.04.2020, Blaðsíða 1
M Á N U D A G U R 2 0. A P R Í L 2 0 2 0 Stofnað 1913  92. tölublað  108. árgangur  VARNARMÚRAR GETI VERIÐ SKAMM- GÓÐUR VERMIR TÆKI TIL AÐ BJARGA SMÁ- ÞJÓÐUNUM HLAKKAR TIL AÐ HEFJA STÖRF AÐ NÝJU ÞÓRBERGUR OG ESPERANTÓ 28 LENGSTA HLÉIÐ FRÁ VINNU 6FÓLK LEITAR AÐ ÖRYGGI 12 Snorri Másson snorrim@mbl.is Áhugi er fyrir því hjá Reykjanes- höfnum að ráðast í uppbyggingu í Helguvíkurhöfn á þann veg að Atl- antshafsbandalagið geti haft þar að- stöðu sem tengjast myndi aðstöðu þess á Keflavíkurflugvelli. Mögulegt er að taka þar við stórum skipum. Halldór Karl Hermannsson, hafn- arstjóri Reykjaneshafna, segir að þetta verkefni sé „ekki bara á teikni- borðinu heldur vel yfir því“. Undir- búningsvinnan sem farið hefur fram er þó aðeins af hálfu hafnaryfirvalda á svæðinu og er að viti Halldórs ekki komin í formlegan farveg hjá NATO. Að sögn Halldórs hafa þeir sem til landsins hafa ferðast á vegum bandalagsins þó kannað aðstæður við höfnina. „Og í framhaldinu höfum við viljað teikna upp hvernig við gæt- um þjónustað þessa aðila betur, enda eru fyrir einstakar aðstæður í Helguvíkurhöfn á landsvísu. Þar eru forsendur fyrir legu stórra skipa og langra, ásamt því sem samspilið við flugvöllinn er kjörið. Þarna er því virkilega tækifæri til uppbygging- ar,“ segir Halldór. Engin formleg fyrirspurn hefur borist frá Atlantshafsbandalaginu um þessa uppbyggingu en aðspurður á fundi sjálfstæðismanna á Suður- nesjum í gær kvaðst Ásmundur Friðriksson, þingmaður Sjálfstæðis- flokksins í Suðurkjördæmi, vita til þess að samstarfsþjóðir Íslands í varnarbandalaginu hefðu verið að „kalla eftir“ því að ráðist yrði í þetta verkefni. Að sama skapi kveðst Friðjón Ein- arsson, bæjarfulltrúi Samfylkingar- innar í Reykjanesbæ og formaður bæjarráðs, hafa heyrt af auknum áhuga bandalagsins á svæðinu, sem fleiri heimsóknir þangað vitni um. Sigríður Andersen, þingmaður Sjálf- stæðisflokks og formaður utanríkis- málanefndar, hefur sömuleiðis heyrt af áhuga á framkvæmdum í Helgu- vík en segir málið ekki hafa komið á borð utanríkismálanefndar. Mikilvæg efnahagsleg áhrif Stjórn hafnarinnar, Ásmundur Friðriksson og Friðjón Einarsson eru á einu máli um að kæmi til fram- kvæmda á þessari uppbyggingu hefði það mikilvæg efnahagsleg áhrif á svæðinu, þar sem óttast er að at- vinnuleysi rjúki nú upp úr öllu valdi vegna áhrifa kórónuveirufaraldurs- ins. Að sögn Halldórs myndi upp- byggingin skapa störf bæði á fram- kvæmdatíma sem og til lengri tíma. Því sé harðærið nú kjörinn tími til þess að kanna þessa kosti, enda áætl- anir þegar fyrir hendi. Ásmundur segir að umfang verk- efnisins gæti verið allt að 16,5 millj- arðar króna. Hann sakar bæjaryfir- völd Reykjanesbæjar um að taka ekki af nægum krafti undir áhuga Reykjaneshafna á verkefninu. Frið- jón Einarsson, formaður bæjarráðs, telur nær lagi að um tvo til fjóra milljarða gæti verið að ræða en þar sem málið sé ekki komið til formlegr- ar umræðu sé örðugt að fá nákvæm- ari hugmynd um stærðargráðuna. Hann segir sveitarstjórnina þó áhugasama um verkefnið. Formlegrar umræðu þörf Rósa Björk Brynjólfsdóttir, vara- formaður utanríkismálanefndar og þingmaður Vinstri-grænna, segir að framkvæmdir af þessum toga þyrftu að fá ítarlegri og formlegri umræðu áður en nokkuð yrði aðhafst, enda hernaðarleg uppbygging á hafnar- svæðum á Íslandi alvarlegt mál. Hún hvetur Suðurnesjamenn til þess að vera víðsýnni í leit sinni að lausnum á þeim vanda sem þar steðjar að. Helguvík geti tekið við herskipum  Reykjaneshafnir búnar að teikna upp áform  Gæti tengst varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli  Formlegt erindi ekki borist frá NATO  Þingmaður VG segir framkvæmdir þurfa ítarlegri umræðu Halldór Karl Hermannsson Ásmundur Friðriksson Ljósmynd/Reykjaneshafnir Helguvíkurhöfn Höfnin var vígð 1989. 150 metra viðlegukantur á norður- bakkanum myndi gera lengstu skipum kleift að leggjast að bryggju. MHelguvík þyrfti ítarlegri … »2 Landssamtök lífeyrissjóða hafa ekki gefið út nein tilmæli til lífeyr- issjóða varðandi vaxtalækkanir en einn af stóru sjóðunum þremur hef- ur ekki lækkað sína vexti frá því í júlí í fyrra þrátt fyrir miklar stýrivaxtalækk- anir. Guðrún Haf- steinsdóttir, for- maður stjórnar Landssamtaka lífeyrissjóða, seg- ir mikilvægt að samtökin skipti sér ekki af vaxtalækkunum sjóð- anna. „Það er algjörlega undir hverjum og einum lífeyrissjóði komið hvern- ig þeir haga þessum málum. Ég vil minna á það að innan Lands- samtaka lífeyrissjóða eru sjóðirnir mjög ólíkir og hagsmunir þeirra eru það sömuleiðis svo við gefum enga línu út hvað þetta varðar.“ Guðrún segir að fyrst og fremst sé það hlutverk lífeyrissjóða að ávaxta iðgjöld sjóðfélaga og greiða út lífeyri. Sjóðfélagalán og lánveit- ingar til sjóðfélaga séu í raun hlið- arstarfsemi. »14 Skipta sér ekki af vöxtum  Hlutverk sjóðanna helst að ávaxta gjöld Guðrún Hafsteinsdóttir Byggingarvörur seljast vel þessa dagana og ljóst að margir hafa nýtt nýjar aðstæður til lagfær- inga á heimilum sínum. Gólfefni og málning rjúka út og nóg var að gera í verslunum í gær. Stjórnendur stóru byggingarvörufyrirtækjanna eru enda bjartsýnir á næstu mánuði. Landinn muni sennilega halda sig heima á næstunni og fara í framkvæmdir, litlar sem stórar: reisa sól- palla, bera á skjólveggi og rækta garðinn. »11 Morgunblaðið/Íris Landinn er í framkvæmdahug á tímum farsóttar

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.