Morgunblaðið - 20.04.2020, Blaðsíða 26
26 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. APRÍL 2020
20. apríl 1975
Víkingur verður Íslandsmeist-
ari kvenna í blaki með sigri á
ÍMA frá Ak-
ureyri 3:0 í úr-
slitaleik. Vík-
ingur vann
hrinurnar 15:5,
15:10 og 15:8.
Anna Aradóttir
innsiglar sig-
urinn með góðum uppgjöfum
og segir Morgunblaðið hana
„sennilega vera okkar bestu
blakkonu“.
20. apríl 1978
Borgfirðingurinn Jón Diðriks-
son sigrar í 63. Víðavangs-
hlaupi ÍR með miklum yfir-
burðum, en hann hljóp
kílómetrana fjóra á 12,03 mín-
útum. Morgunblaðið segir að
Jón dvelji við nám í Newcastle
og hafi komið til landsins
gagngert til að taka þátt í
hlaupinu.
20. apríl 1985
Sigurður Gunnarsson skorar
14 mörk þegar lið hans Tres
de Mayo sigrar Cajamadrid
28:25 á útivelli í efstu deildinni
í handknattleik á Spáni. Ein-
ungis þrjú markanna skorar
Sigurður úr vítaköstum. Fram
kemur í Morgunblaðinu að
hann hafi verið „tekinn úr um-
ferð langtímum saman“.
20. apríl 1989
Stjarnan verður bikarmeistari
í handknattleik, bæði í kvenna-
og karlaflokki,
þegar úrslita-
leikirnir fara
fram í Laug-
ardalshöll á
sumardaginn
fyrsta. Stjarn-
an vinnur FH
með eins
marks mun í báðum leikjunum,
19:18 hjá konunum og 20:19
hjá körlunum. Svo merkilega
vill til að fyrirliðar bikarmeist-
araliðanna eru systkini: Guðný
Gunnsteinsdóttir og Skúli
Gunnsteinsson. Bæði spila
stöðu línumanns.
20. apríl 1994
Einn þekktasti blakspilari
landsins, Leifur Harðarson,
ákveður að láta
gott heita sem
leikmaður eftir
síðasta leik Ís-
landsmótsins
þar sem Þrótt-
ur tapar gegn
HK í úr-
slitarimmu. „Ég er búinn að
leika 455 meistaraflokksleiki
með Þrótti og tími kominn til
að segja þessu lokið,“ segir
Leifur við Morgunblaðið, en
hann er 37 ára gamall.
20. apríl 2012
Íslendingaliðið AG Kaup-
mannahöfn leggur Evr-
ópumeistarana í Barcelona að
velli fyrir framan rúmlega 21
þúsund áhorfendur á Parken í
fyrri viðureign liðanna í 8-liða
úrslitum Meistaradeildar Evr-
ópu í handknattleik 29:23.
Aldrei hafa fleiri verið á leik í
keppninni. Guðjón Valur Sig-
urðsson skoraði 4 mörk fyrir
AG, Arnór Atlason og Ólafur
Stefánsson skoruðu 3 og
Snorri Steinn Guðjónsson 1
mark.
20. apríl 2016
Skagamaðurinn Eyleifur Jó-
hannesson er kjörinn sund-
þjálfari ársins í Danmörku
fjórða árið í röð en hann þjálf-
ar Álaborg. Útnefningin fer
fram í hófi í Kaupmannahöfn.
Á ÞESSUM DEGI
Guðni segist hafa reynt að auka
leikskilning leikmanna hjá KR og
útskýrir hvað hann á við.
„Líklega má segja að ég hafi
reynt að þjálfa með þeim hætti að
leikmenn þyrftu að hugsa aðeins um
hvað væri að gerast á vellinum.
Hver tilgangurinn væri með því að
gera þetta eða hitt. Ég var kominn
svolítið inn á þá línu á þessum tíma.
Líklega er best að taka nokkur
dæmi til að koma þessu til skila.
Sumir leikmenn voru sem dæmi
alltaf að dekka svæði. Mér fannst
betra að láta dekka mennina og það
var þekktur frasi hjá mér, þegar ég
sagði við leikmennina að ég hefði
aldrei séð svæði skora mark.
Almennt séð reyndi ég að fá menn
til að hugsa hvað þeir væru að gera
á vellinum og hver tilgangurinn með
því væri hverju sinni. Til dæmis ef
leikmenn inni á vellinum stóðu
álengdar og voru að horfa úr fjar-
lægð á það sem var að gerast í
kringum boltann í stað þess að
hreyfa sig og vera tilbúnir fyrir
næstu atburðarás. Mér finnst mik-
ilvægt að leikmenn skilji að fótbolti
snýst um meira en að vera einungis
meðvitaðir um það sem þeir þurfa
að gera þegar þeir fá boltann eða
hann er nærri þeim.“
Hver er tilgangurinn?
Guðni segir mikilvægt fyrir leik-
menn og þjálfara að velta fyrir sér
tilgangi þess sem gert er á vellinum.
„Prinsippið hjá mér hefur alltaf
verið að menn þekki sín hlutverk.
Tökum nokkur dæmi úr varnarleik:
Menn þurfa að vita hvernig þeir
þurfa að bregðast við hreyfingum
andstæðingsins hverju sinni. Leik-
menn þurfa að skilja tilganginn með
hlaupum, hvort sem um er að ræða
þeirra eigin eða hlaup andstæðings-
ins. Ef framherji hleypur út á kant
þurfa menn að átta sig á hvort hann
er að gera það vegna þess að hann
er að elta boltann þangað eða af því
að hann er að reyna að draga mið-
vörð út úr varnarstöðu sinni til að
samherji geti nýtt sér eyðuna sem
þar myndast.
Óskar Hrafn Þorvaldsson var til
dæmis ansi klókur varnarmaður
þótt hann hafi verið ungur leik-
maður þegar ég var með KR-liðið.
Hann las oft vel stöður sem komu
upp og kunni að beina sóknarmanni
frá markinu og út á kant. Þótt hann
hafi ekki endilega unnið boltann eða
stöðvað sóknina varð skotfærið
þrengra fyrir sóknarmanninn og
þar af leiðandi minnkuðu líkurnar á
að mark yrði skorað.“
Guðni segir þessar áherslur vera
nauðsynlegar en að hans mati þurfi
að fara í þessi atriði áður en leik-
menn koma upp í meistaraflokk.
Mögulega væri heppilegt að taka
þessi atriði markvisst fyrir í 3.
flokki.
Skilninginn er hægt að auka
„Klókir menn hafa stundum haft
það að orði að þótt maður þurfi
vissulega að sparka með fótunum,
þá þurfi að spila leikinn með höfð-
inu. Þessi hugmyndafræði sem ég
er að tala um kemur að nokkru leyti
frá Charles Hughes, sem var yfir-
maður knattspyrnumála hjá enska
knattspyrnusambandinu, og ég fór
á sínum tíma tvisvar á námskeið hjá
honum erlendis.
Ég verð að viðurkenna að ég
reyndi að stoppa ákveðna hluti og
lagfæra á æfingum. Leikmönnum
gat hins vegar þótt það leiðinlegt
Þekktir
þjálfarar úr
sama liðinu
Átta leikmenn sem spiluðu með KR
sumarið 1991 hafa þjálfað í efstu deild
Landsliðið Sigurður
Ragnar Eyjólfsson og
Guðni Kjartansson í Alg-
arve-bikarnum árið
2012. Guðni var þá að-
stoðarþjálfari Sigurðar
hjá kvennalandsliðinu.
Sigurður Ragnar var í 2.
flokki KR árið 1991 og
æfði með meistaraflokki.
Franski fjömiðillinn RMC Sport
fullyrti í gær að Sara Björk Gunn-
arsdóttir, landsliðsfyrirliði í knatt-
spyrnu, myndi ganga til liðs við
franska stórliðið Lyon í sumar þeg-
ar samningur hennar við Wolfs-
burg í Þýskalandi rennur út. Eru
þetta stórtíðindi ef rétt reynist því
Lyon er ekki einungis Evrópu-
meistari heldur hefur unnið Meist-
aradeildina síðustu fjögur ár. Lið
Wolfsburg er öflugt en Lyon hefur
verið sú hindrun sem Wolfsburg
hefur ítrekað rekið sig á.
„Þá mun hin 29 ára gamla Sara
Björk Gunnarsdóttir ganga til liðs
við félagið og er henni ætlað að
fylla skarð Dzsenifer Marozsán sem
er einnig á leið til Utah Royals í
Bandaríkjunum,“ segir meðal ann-
ars í umfjöllun RMC en þess má
geta að Gunnhildur Yrsa Jónsdóttir
leikur með Utah. Mbl.is reyndi að
ná sambandi við Söru í gær en án
árangurs. RÚV hefur eftir henni að
Sara ætli ekki að tjá sig um þessar
fréttir að svo stöddu.
Fari Sara til Lyon yrði það litrík
og glæsileg skrautfjöður í hennar
hatt og mikil viðurkenning á
árangri hennar. Hennar biði einnig
mikil samkeppni. Knattspyrnuunn-
endur hérlendis fengu að sjá á
Kópavogsvellinum í fyrra hversu
góðu liði Paris St. Germain teflir
fram. Lið Lyon er töluvert betra og
gefur það einhverja vísbendingu
um styrkleika Evrópumeistaranna.
Sara hefur notið mikillar vel-
gengni í atvinnumennskunni. Hún
varð fjórfaldur Svíþjóðarmeistari
með Rosengård 2011 til ársins
2015. Þá hefur hún þrívegis orðið
deildarmeistari með Wolfsburg og
þrívegis bikarmeistari. Hún að baki
131 A-landsleik fyrir Ísland þar
sem hún hefur skorað 20 mörk.
kris@mbl.is
Orðuð við Evrópumeistara síðustu fjögurra ára
Morgunblaðið/Eggert
Lyon Verður Frkkland næsti
áfangastaður landsliðsfyrirliðans?
Atli
Eðvaldsson
Heimir
Guðjónsson
Gunnar
Oddsson
Óskar Hrafn
Þorvaldsson
FÓTBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Nú þegar vísbendingar eru um að
Íslandsmótið í knattspyrnu geti
hafist í júní styttist í að þjálfarar
eins og Rúnar Kristinsson, Heimir
Guðjónsson, Óskar Hrafn Þorvalds-
son, Pétur Pétursson og Þorsteinn
Halldórsson verði í sviðsljósinu.
Rúnar á titil að verja með KR,
Heimir er kominn frá Færeyjum til
Vals og Blikar sem urðu í 2. sæti
veðjuðu á Óskar Hrafn í vetur.
Pétur og Þorsteinn börðust um
sigurinn síðasta sumar og er allt
eins líklegt að það gerist aftur í ár,
en þar á Pétur titil að verja.
Nú vill svo til að allir þessir þjálf-
arar voru liðsfélagar hjá KR. Allir
komu þeir við sögu hjá KR á Ís-
landsmótinu árið 1991. Þegar
Morgunblaðið kíkti betur á lið KR
árið 1991 kom í ljós að átta leik-
menn úr því liði hafa þjálfað í efstu
deild. Atli Eðvaldsson gerði KR að
tvöföldum meisturum þegar liðið
braut mikinn ís árið 1999 og varð
síðar landsliðsþjálfari eins og fólk
þekkir. Þá eru ótaldir Keflvíking-
arnir Gunnar Oddsson og Sigurður
Björgvinsson, sem gerðu lið Kefla-
víkur að bikarmeisturum árið 1997.
Allir hafa þessir átta þjálfað í efstu
deild, þótt hártoga megi það varð-
andi Óskar þar sem mótið er ekki
hafið, en við leyfum okkur það, þar
sem hálft ár er síðan hann tók við.
Guðni við stjórnvölinn
Sveitungi þeirra Gunnars og Sig-
urðar, Guðni Kjartansson, stýrði
KR-liðinu þetta sumrar. Morgun-
blaðið hafði samband við Guðna og
spurði hann hvort þetta sumar hefði
verið eitt alls herjar þjálfara-
námskeið? „Nei, nei,“ svarar Guðni
og hlær að spurningunni.
„Þetta er skemmtilegt. Ég hafði
ekki velt þessu fyrir mér varðandi
KR-liðið. En ég hef stundum hugs-
að um hversu margir af þeim sem
ég hef þjálfað hafa síðar farið sjálfir
út í þjálfun. Til dæmis menn sem ég
þjálfaði í yngri landsliðum. Mér
sýnist að þeir séu fáir þjálfararnir í
efstu deild núna sem ég hef ekki
þjálfað á einhverjum tímapunkti á
ferli þeirra. Ég þjálfaði reyndar
aldrei Óla Stefán hjá KA en hann
var hjá mér á íþróttabraut í Fjöl-
brautaskóla Suðurnesja, þar sem ég
kenndi til margra ára. “