Morgunblaðið - 20.04.2020, Side 2

Morgunblaðið - 20.04.2020, Side 2
2 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. APRÍL 2020 Vetrarsól er umboðsaðili Sláttuvélar & sláttuorf Snjóblásarar Askalind 4 | Kópavogi | Sími 564 1864 | vetrarsol.is Gulltryggð gæði 40 ár á Íslandi Sláttutraktorar Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf. „Ég held að það sé farið að nálgast þolmörk hjá mörgum fjölskyldum og þá sjáum við gjarnan aukningu í komum til okkar. Það var svolítil lægð eftir að faraldurinn skall á en síðustu tvær vikur hefur verið vax- andi þungi í bráðamálum á ný,“ segir Dagbjörg B. Sigurðardóttir, barna- og unglingageðlæknir á BUGL. Dagbjörg hefur áhyggjur af lang- tímaáhrifum af félagslegri einangr- un unglinga og óvissunni sem þeir lenda í vegna þeirra samfélagslegu takmarkana sem eru nú í gildi. Hún hefur sömuleiðis áhyggjur af áhrif- um efnahagsþrenginga á fjölskyldur með tilheyrandi kvíða og óöryggi sem getur haft slæm áhrif á ung- linga. „Þótt það sé ekki hægt að bera þetta alveg saman við kreppuna árið 2008 þá lentum við í því að það kom holskefla til okkar einhverjum mán- uðum til jafnvel ári seinna sem varði í talsverðan tíma. Áhrifin af efna- hagskreppunni voru þannig síðbúin hérlendis sem er sambærilegt við hvað sást í nágrannalöndum og var til að mynda mjög vel rannsakað í Finnlandi. Við höfum haft áhyggjur af akkúrat þessu í kjölfar kórónu- veirufaraldursins,“ bætir hún við. Spurð hvort vegi þyngra fyrir sál- arlíf unglinga, félagsleg einangrun og fylgikvillar hennar eða efnahags- legar þrengingar heimilanna, segir hún að það sé í raun hvort tveggja. „En það sem ég hef kannski mest- ar áhyggjur af sem fagmanneskja eru skammtíma- og langtímaáhrif af því að hinn daglegi félagslegi rammi er ekki lengur fyrir hendi.“ thor@mbl.is Nálgast þolmörk  Vaxandi þungi hefur verið í bráðamálum á BUGL  Bæði félagsleg einangrun og fjárhagslegar þrengingar hafa áhrif Morgunblaðið/Ómar Óskarsson BUGL Ungmenni vantar rútínu í heimsfaraldri, að sögn Dagbjargar. Flugmenn Boeing 767-vélar Ice- landair sem lenti á Keflavíkur- flugvelli í gær með átján tonn af lækningavörum frá Kína tóku á sig hjartalaga krók yfir Reykjavík til heiðurs heilbrigðisstarfsfólki. Hjartað má sjá á meðfylgjandi skjáskoti af flugferli vélarinnar yfir suðvesturhluta landsins. Um var að ræða þriðju flugferð Icelandair til Kína sem farin er í þeim tilgangi að sækja lækninga- vörur. Í flugferðunum hefur ýmiss konar hlífðarbúnaður verið sóttur, svo sem hlífðargallar og grímur, allt svo Landspítalinn sé vel birgur í barátt- unni við faraldur kórónuveirunnar. Búnaðurinn hefur að öllu leyti staðist gæðakröfur þótt útlit hafi verið fyrir annað í fyrstu. Skjáskot/Flightradar24 Flugið Hjartað er einkar vel mótað. Flugu í hjarta  Lentu með búnað Fjórir voru við bænastund í Hallgrímskirkju í hádeginu í gær, þar sem beðið var fyrir sjúkum, sorgmæddum, stjórnvöldum, náttúrunni og raunar mannlífinu öllu. „Nú eftir páska eru sannkallaðir gleðidagar eins og upprisuboð- skapurinn vitnar um,“ segir Sigurður Árni Þórðarson sóknarprestur. Þess er gætt að aldrei séu fleiri í kirkjunni á hverjum tíma en tuttugu manns og sitji dreift. Hins vegar er betri tíð í vændum, því biskup Íslands hefur gefið út að hefja megi opið helgihald í kirkjum 17. maí. Ekki mega vera fleiri en 50 í húsi hverju sinni og ekki verða altarisgöngur eða annað sem kallar á nánd, svo sem handayfirlagning. Heimilt verður að ferma 1-2 börn við hverja athöfn. Morgunblaðið/Íris Fámennt en góðmennt við bænastund í Hallgrímskirkju Snorri Másson snorrim@mbl.is Friðjón Einarsson, formaður bæjar- ráðs í Reykjanesbæ, segir að sveitar- stjórnin sé „áhugasöm um alla upp- byggingu á þessum tímum“ og að þar á meðal sé möguleg uppbygging NATO í Helguvíkurhöfn. Þó þurfi að fara réttar leiðir við að koma slíku til leiðar og að enn hafi ekki verið rætt formlega um málið í bæjarráði. „Þetta er á umræðustigi hjá okkur. Við höfum í raun og veru séð fyrir okkur að ríkið komi að uppbyggingu í Helguvík og höfum hvatt ríkið til þess að koma sérstaklega að því vegna aðstæðna,“ segir Friðjón. Atvinnuleysi á svæðinu segir hann að nálgist nú 20%, eftir fall WOW air og nú síðast vegna kórónuveirufar- aldursins, sem hefur leitt til hruns í viðskiptum hjá Bláa lóninu, flugvell- inum og öðru sem tengist ferðaþjón- ustunni. „Við fórum illa út úr hruni WOW og síðan hefur ekki verið gripið til sértækra aðgerða á okkar svæði nema þeirra sem NATO stendur þegar í á varnarsvæðinu,“ segir Frið- jón. Hugmyndirnar óskhyggja Rósa Björk Brynjólfsdóttir, þing- maður Vinstri grænna, segir í sam- tali við Morgunblaðið að hún, sem varaformaður utanríkismálanefndar, kannist ekki við áform um „hern- aðaruppbyggingu í Helguvík“. Málið hafi ekki í neinni mynd ratað á borð nefndarinnar. Hún segir að ákvarð- anir af þessum toga séu þá ekki tekn- ar á vettvangi sveitarstjórna eða fé- laga á vegum þeirra, heldur sé verkefni á borð við þetta spurning um samningsatriði á milli Íslands og Atlantshafsbandalagsins. Á þessu stigi málsins eru þessar hugmyndir því óskhyggja, að sögn Rósu Bjarkar. „Þetta hljómar eins og vanþekk- ing á sambandi okkar við Atlants- hafsbandalagið, að áætla að banda- lagið setji verkefni eins og þetta bara af stað í Helguvík sisvona. Allt sem tengist NATO er bundið aðild- arsamningum okkar og breytingar á því þar með eitthvað sem er bundið þinglegum samþykktum en ekki um- ræðu á Facebook,“ segir Rósa og vísar þar til umræðna sem farið hafa fram á síðu Ásmundar Friðrikssonar þingmanns. „Mér finnst því sérstakt að kjörn- ir fulltrúar á Suðurnesjum séu að leita til NATO vegna uppbyggingar á innviðum. Eins og við vitum eru uppbygging og viðhald á vegum Atlantshafsbandalagsins þegar um- deild mál, þannig að ef við værum að fara í hernaðartengda uppbyggingu á hafnarsvæðum væri það eitthvað sem þyrfti mun ítarlegri umræðu við, enda um þjóðaröryggismál að ræða.“ Á þessu ári og næsta standa þegar yfir framkvæmdir á varnarsvæðinu á Keflavíkurflugvelli, þar sem meðal annars er verið að gera við flugskýli fyrir orrustuþotur. Þær aðgerðir hefur ríkisstjórn Vinstri grænna, Sjálfstæðisflokks og Framsóknar- flokks þegar samþykkt. Rósa hefur þó lýst yfir gagnrýni um frekari upp- byggingu, og segir hún afstöðu sína ljósa þegar kemur að uppbyggingu hernaðarmannvirkja og viðveru varnarliðsins. „Og það er einnig af- staða Vinstri grænna.“ Helguvík þyrfti ítarlegri umræðu  „Áhugasöm um alla uppbyggingu á þessum tímum“ segir formaður bæjarráðs  Varaformaður utan- ríkismálanefndar segir hernaðarlega uppbyggingu bundna þinglegri meðferð „en ekki Facebook“ Friðjón Einarsson Rósa Björk Brynjólfsdóttir

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.