Morgunblaðið - 20.04.2020, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 20.04.2020, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. APRÍL 2020 Þverholti 5 • Mosfellsbæ • Sími 898 1744 • myndo.is Við búum til minningar myndó.isljósmyndastofa NJÓTUMMINNINGANNA Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is „Aðstæður nú krefjast nýrrar hugsunar í velferðarmálum, því samfélagið hefur gjörbreyst á ör- skömmum tíma. Jafnframt hefur orðið ljós vandi ákveðinna hópa, sem við þurfum að ná betur utan um. Í því sambandi höfum við vakið athygli stjórnvalda á ýmsu regluverki sem þarf að bæta svo fólk fái nauðsynlega framfærslu,“ segir Regína Ásvaldsdóttir, sviðs- stjóri velferðarsviðs Reykjavík- urborgar. Reynsla úr verkfallinu Kórónuveiran og faraldur hennar hafa verið mál mála hjá velferðarsviðinu frá í febrúar, en þá var neyðarstjórn sviðsins end- urnýjuð og viðbragðsáætlun virkjuð. Smitvarnir urðu áherslu- verkefni en reyndar var fólk kom- ið í gírinn varðandi vinnu við óvenjulegar aðstæður. Þar kemur til að í verkfalli Eflingar í vetur var starfandi neyðarstjórn sem skipulagði velferðarþjónustu borgarinnar skv. undanþágu- beiðnum sem stéttarfélagið veitti. „Helstu aðgerðir þá og nú í tengslum við kórónuveiruna hafa beinst að viðkvæmum hópum, eins og eldri borgurum sem fá þjónustu heim og á starfstöðvum okkar. Mikil vinna hefur t.d. farið í að tryggja smitvarnir gagnvart fötluðu fólki,“ segir Regína og heldur áfram: „Þá höfum við endur- skipulagt þjónustu við heim- ilislaust fólk með miklar og flókn- ar þjónustuþarfir, meðal annars aukið við pláss í neyðarskýlinu á Granda til að tryggja fjarlægð- armörk. Þar gripum við til þess ráðs að leigja viðbótarhúsnæði, efla hjúkrunarþjónustu og semja við ríkið um viðbótarfjármagn til að taka á móti vegalausu fólki og til að efla starf með heimilis- lausum enn frekar.“ Starfsemi velferðarsviðs Reykjavíkurborgar er umfangs- mikil. Starfsmenn eru um 3.000 og um 15 þúsund borgarbúar nýta sér þjónustuna. Má þar nefna heimahjúkrun og -þjónustu en tæplega 4.000 manns fá slíka þjónustu heim, margir oft í viku. Þá rekur borgin þjónustuíbúðir fyrir eldri borgara, tvö hjúkr- unarheimili, um 70 íbúðakjarna og sambýli fyrir fatlað fólk, tvö heimili fyrir fötluð börn og jafn- margar stofnanir fyrir börn sem þurfa af heimilum sínum vegna barnaverndarsjónarmiða. Einnig 17 félagsmiðstöðvar fyrir aldraða og þrjú neyðarskýli fyrir heim- ilislausa. Er þá margt ótalið. Einn af 900 hefur smitast „Þann 6. mars þegar við- bragðsáætlun var færð frá áhættustigi á neyðarstig ákváðum við strax að loka 27 stofnunum eða stöðum þar sem starfsemi okkar er. Þá var heim- sóknabann sett á hjúkrunarheim- ili og takmarkanir á heimsóknir í þjónustuíbúðir,“ segir Regína og bætir við að árangurinn af traust- um smitvörnum sé kominn í ljós. Aðeins einn íbúi af þeim 900 eldri borgurum og fötluðu fólki á heim- ilum eða í þjónustuíbúðum á veg- um velferðarsviðsins hafi veikst af kórónuveirunni. „Þetta er okkar frábæra starfsfólki í framlínuþjónustunni að þakka. Að sama skapi finnum við núna fyrir miklu álagi hjá þessu sama starfsfólki, til dæmis í íbúðakjörnum fyrir fatlaða þar sem afþreying hefur verið af tak- mörkuð,“ segir Regína. Í þjónustu við eldri borgara hafi svo sér- staklega verið hugað að fé- lagslega þættinum. Hringt hafi verið í alla borgarbúa 85 ára og eldri sem búa einir, tæplega 800 manns, og þeim boðnir símavinir. Það hafi mælst vel fyrir og meðal annars taki 32 sjálfboðaliðar, nemar í félagsráðgjafadeild Há- skóla Íslands, þátt í verkefninu og fá metnar námseiningar fyrir. Útlendingar og einyrkjar „Núna höfum við verið að undirbúa aðgerðaráætlun og til- lögur til félagsmálaráðuneytisins vegna fólks sem á hvorki rétt á at- vinnuleysisbótum né fjárhags- aðstoð sveitarfélagsins,“ segir Regína. „Þetta eru til dæmis út- lendingar sem eru ekki komnir með kennitölu. Einnig einyrkjar nýkomnir í rekstur og hafa ekki aflað sér réttinda. Sömuleiðis námsmenn sem framfleyta sér með hlutavinnu. Okkur finnst líka mikilvægt að endurskoða húsa- leigubótakerfið sem skiptist í al- mennar húsnæðisbætur sem ríkið greiðir og sértækar bætur sem sveitarfélög greiða. Þetta viljum við sameina og gera aðgengi- legra.“ Breyttir tímar í starfsemi Reykjavíkurborgar á tímum kórónuveirunnar Morgunblaðið/Eggert Mannlíf Ljós hefur orðið vandi ákveðinna hópa, sem við þurfum að ná betur utan um, segir Regína Ásvaldsdóttir sem stýrir velferðarsviði. Velferðin sé tryggð í gjörbreyttu samfélagi  Regína Ásvaldsdóttir fædd- ist 1960. Hún er cand. mag í fé- lagsráðgjöf og afbrotafræði frá Háskólanum í Ósló og með meistarapróf í hagfræði frá há- skólanum í Aberdeen. Sviðs- stjóri velferðarsviðs Reykja- víkurborgar frá því í mars 2017.  Áður var Regína bæjarstjóri á Akranesi í fjögur ár, fram- kvæmdastjóri Festu – mið- stöðvar um samfélagsábyrgð, skrifstofustjóri og staðgengill borgarstjóra, framkvæmda- stjóri Miðgarðs í Grafarvogi, fé- lagsmálastj. í Skagafirði o.fl. Hver er hún? Sigurður Helgi Guðjónsson, formað- ur Húseigendafélagsins, leggst gegn því að frumvarp Ásmundar Einars Daðasonar, félags- og barnamála- ráðherra, um breytingu á húsaleigu- lögum fari í gegnum Alþingi á þessu þingi, enda hafi allar aðstæður breyst vegna faraldurs kórónuveir- unnar. Hólmsteinn Brekkan, fram- kvæmdastjóri Samtaka leigjenda á Íslandi, telur hins vegar þjóðþrifa- mál að breytingarnar nái fram að ganga. Réttarbótin, sem hann segir að felist í frumvarpinu, sé mikilvæg- ari fyrir leigjendur en fyrr þar sem aðgerðir stjórnvalda beinist nú flest- ar að því að hjálpa fólki með séreign en ekki leigjendum. Ásmundur Einar sagði frá því í Morgunblaðinu á laugardaginn að stefnt væri að því að afgreiða lyk- ilfrumvörp í húsnæðismálum á þessu þingi. Einnig nefndi ráðherrann frumvarp um leiguvernd, sem gerði mönnum óheimilt að hækka húsnæð- isleigu umfram markaðsleigu og það sem eðlilegt getur talist. Sigurður Helgi segir að frá því að frumvarpið um húsaleigulögin fór í gegnum samráðsgátt stjórnvalda hafi staðan gjörbreyst. „Nú hefur talsvert af húsnæði verið í byggingu, sem hefur komið inn á markaðinn, og þar að auki rennur allt húsnæðið sem var í ferðamannaútleigu nú inn á markaðinn. Ég tel því að það komist á jafnvægi við það og að það þurfi ekkert að gera til viðbótar við það. Staða leigjenda mun lagast núna,“ segir hann. Vandi leigjenda hafi þannig ekki verið lögin, heldur lítill fjöldi íbúða á markaði, sem stefni nú í betra horf. Einnig mótmælir Sigurð- ur áætlunum um leiguþak, sem hann segir hafa gefist illa annars staðar. Hólmsteinn hjá Samtökum leigj- enda segir frumvarpið ef eitthvað nauðsynlegra nú en fyrir kórónu- veirufaraldur. Líklegt sé að það dragist um nokkur ár ef því verði frestað fram á haustþing. Réttarbót- in í því sé of mikil til að leyfa því að gerast. Annars er staða leigjenda ekki al- slæm á þessum erfiðu tímum, segir Hólmsteinn. Sum leigufélög hafi gef- ið greiðslufrest og sumir leigusalar hafi sleppt því að hækka leiguna við gerð nýrra samninga, enda ljóst að stóraukið framboð styrki stöðu leigj- enda. Hann telur ólíklegt að til leigu- þaks komi, enda sé það erfitt í fram- kvæmd, en gerir þó ráð fyrir að leigusölum verði gefin leiguviðmið á ákveðnum svæðum, sem muni hafa áhrif á verð. snorrim@mbl.is Jafnvægi eigi að nást sjálfkrafa  Húseigendafélagið segir stöðuna hafa breyst mjög frá í mars  Leiguþak talið erfitt í framkvæmd Morgunblaðið/Eggert Leiga Samtök leigjenda segja frum- varpið mikilvægt fyrir leigjendur. „Fólk er orðið óþreyjufullt að kom- ast í klippingu og margir hafa haft samband til að stimpla sig inn. Mér finnst því sennilegt að fyrst eftir 4. maí, þegar við megum aftur taka fólk í stólinn, verðum við með tíma- pantanir svo fólk þurfi ekki að vera of margt saman á stofunni,“ segir Kjartan Björnsson, rakari á Sel- fossi. Kjartan, Björn Daði bróðir hans og Björn Ingi Gíslason faðir þeirra starfrækja landsþekkta rakarastofu í miðbænum á Selfossi og eiga tryggan hóp viðskipavina. Næsta víst er að mörgum þeirra finnst súrt í broti að komast ekki í klipp- ingu vegna nálægðarreglunnar, nú á tímum kórónuveirunnar. „Já, ég sé að ýmsir góðir vinir mínir eru orðnir lubbalegir og verða sjálfsagt fljótir til þegar rak- arastofan verður opnuð að nýju,“ segir Kjartan og heldur áfram: „Suma hef ég séð vel hærða einn daginn en snoðaða að morgni. Þeir hafa þá kannski fengið konuna til að taka snögga yfirferð með rakvél. Útkoman úr því er upp og ofan. Sjálfsagt verða einhverjir með sítt bítlahár fram á sumarið og telja það í tísku. Annars er það stutta klipp- ingin sem verður áfram ráðandi, enda sígild.“ Skellt var í lás á rakarastofum 24. mars og opnað verður aftur fyrsta mánudag í maí. „Þetta verða samtals sex vikur og svo langt hlé frá vinnu hef ég aldrei tekið þau 36 ár sem ég hef verið í faginu. Já, ég bókstaflega iða í skinninu að munda aftur skæri, hitta fólk og spjalla, sem er stór hluti af starfinu,“ segir Kjartan. sbs@mbl.is Iðar í skinninu að munda aftur skæri Morgunblaðið/Sigurður Bogi Rakari Kjartan Björnsson á góðri stundu með viðskiptavin í stólnum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.