Morgunblaðið - 20.04.2020, Síða 11

Morgunblaðið - 20.04.2020, Síða 11
FRÉTTIR 11Innlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. APRÍL 2020 HÁDEGISMATUR alla daga ársins Bakkamatur fyrir fyrirtæki og mötuneyti Við bjóðum annarsvegar upp á sjö valrétti á virkum dögum, sem skiptist í, tveir aðalréttir, þrír aukaréttir, einn heilsurétt, einn Veganrétt og hinsvegar er hægt að fá matinn í kantínum fyrir stærri staði sem er skammtað á staðnum. Hólshraun 3, 220 Hafnarjörður · Símar 555 1810, 565 1810 · veislulist@veislulist.is SKÚTAN Matseðill og nánari upplýsingar á veislulist.is Höskuldur Daði Magnússon hdm@mbl.is „Það hafa alltaf búið margir lista- menn á Seltjarnarnesi og sótt í um- hverfið hér. En það er rétt og eftir því er tekið að margir listamenn af yngri kynslóðinni hafa bæst í hópinn á síðustu tveimur til fjórum árum,“ segir María Björk Óskarsdóttir, sviðsstjóri þjónustu- og samskipta- sviðs Seltjarnarnesbæjar. Fjölmargir listamenn hafa flust búferlum á Seltjarnarnes á liðnum misserum. Óhætt er að tala um að ákveðin kynslóðaskipti séu að verða í sveitarfélaginu því þótt þar hafi löngum búið listamenn er innreið þeirra hinna yngri nú slík að nokkra athygli vekur. Listamennirnir koma úr flestum geirum. Meðal þeirra eru popparinn Jón Jónsson, grínistinn Ari Eldjárn og dansarinn og danshöfundurinn Sigríður Soffía Níelsdóttir. Úr klass- íska geiranum ber hæst nöfn þeirra Víkings Heiðars Ólafssonar og Daní- els Bjarnasonar. Leikarar eiga sína fulltrúa í bænum; til að mynda hjónin Nínu Dögg Filippusdóttur og Gísla Örn Garðarsson og Elmu Lísu Gunnarsdóttur og Reyni Lyngdal leikstjóra. Þá hefur danska tónlistar- konan Tina Dickow hreiðrað um sig á Nesinu með bónda sínum, Helga Hrafni Jónssyni tónlistarmanni, en Tina söng fyrir Margréti Þórhildi Danadrottningu í tilefni stórafmælis hennar í vikunni. Tina söng einmitt frá heimili sínu á Seltjarnarnesi. María segir að gott sé að búa á Seltjarnarnesi, vel sé hlúð að íbúum, listamönnum sem og öðrum. „Sam- félagið og umgjörðin fyrir þá sem eru með börn spyrst út. Fólk sækir í út- sýnið og náttúruna, sem veitir vafa- laust mörgum innblástur.“ Listafólk flykkist á Seltjarnarnesið  Ungir listamenn flytja unnvörpum Víkingur Heiðar Nína Dögg Ari EldjárnTina Dickow klukkan tíu á kvöldin við afgreiðslu á pöntunum, fylla í hillur og slíkt. Gangurinn í þessu er góður.“ Bjartsýnn á sumarið Mest sala er nú á vörum til framkvæmda innanhúss, en Sig- urður kveðst bjartsýnn á sumarið. Ljóst sé að flestir haldi sig innan- lands í sumar og lítið verði um fjöldasamkomur. Líklegt sé því að margir verði heima, máli húsið, beri á skjólveggi, hugi að garðinum og öðru viðhaldi. Vörur tengdar slíku séu nú á uppleið í sölu. „Svo er mjög til bóta að ríkið ætlar núna að stíga inn með fjár- festingaátak upp á 30-40 milljarða króna, sem er kröftug viðspyrna. Áhrifin koma fljótt fram. Mikil- vægt er líka að ekki verði gefið eft- ir í byggingu á íbúðarhúsnæði til að tryggja jafnvægi á þeim mark- aði. Ef stjórnvöld myndu nú keyra hlutdeildarlánin í gegn hefði það mjög svo jákvæð áhrif á áfram- haldandi stöðugleika á íbúða- markaði,“ segir hann. Á sama tíma og margir eru í framkvæmdum í heimaranni og þurfa margt að sækja í bygging- arvöruverslanir er minna umleikis í stærri verkefnum, að sögn Árna Stefánssonar, forstjóra Húsasmiðj- unnar. „Samkvæmt tölum frá Sam- tökum iðnaðarins eru íbúðir á fyrsta byggingarstigi á höfuð- borgarsvæðinu rúmlega 40% færri nú en á sama tíma í fyrra. Auð- vitað eru þúsundir íbúða enn í byggingu, en að svo miklu færri verkefni séu að fara af stað er áhyggjuefni.“ Þessarar þróunar segir Árni að sjái stað í minni sölu á svokallaðri grófvöru, svo sem steypustyrktar- járni, byggingatimbri og jarð- lögnum. Raunar rími þetta við op- inberar tölur frá Rannsóknasetri verslunarinnar sem sýni samdrátt í sölu byggingarvara sjö af síðustu átta mánuðum. Í heild hafi salan á markaðnum minnkað um 10% milli ára fyrstu þrjá mánuði ársins. Laghentir smíða sjálfir „En einstaklingsmarkaðurinn er líflegur um þessa mundir, þrátt fyrir samkomubann, og algjör sprenging í netverslun á vefnum okkar. Margir eru greinilega að nota rólegan tíma í vinnu í fram- kvæmdir og mála og laga til. Gjarnan eru þetta verkefni sem sæmilega laghent fólk getur sjálft sinnt,“ segir Árni. „Sólpallaefni selst sem aldrei fyrr en við heyrum á iðnaðarmönn- um að fólk virðist vegna smithættu síður vilja utanaðkomandi fólk inn á heimilin í viðhaldsverkefni undanfarnar vikur. Þetta er samt að lagast og væntanlega kemst þetta í lag upp úr maí. Þá bind ég líka vonir við átaksverkefnið Allir vinna, en samkvæmt því fæst virðisaukaskattur af vinnu iðnaðar- manna á framkvæmdastað að fullu endurgreiddur.“ Landinn málar og leggur parket  Mikil sala í byggingarvöruverslunum  Gólfefni og málning  Bjartsýnir forstjórar segja landann vera í framkvæmdahug  Sólpallasumar  Samdráttur í byggingu íbúðarhúsnæðis er áhyggjuefni Morgunblaðið/Íris Húsasmiðjan Svipast um eftir tólum og tækjum sem þarf í verkin. Innkaup Stefán Jökull Sveinsson var í málningarleiðangri í Skútuvoginum. Sigurður Brynjar Pálsson Árni Stefánsson Bauhaus Löng biðröð var við allar byggingarvöruverslanir bæjarins í gær. SVIÐSLJÓS Sigurður Bogi Sævarsson sbs@mbl.is Forsvarsmenn BYKO vænta þess að geta strax nú um mánaðamótin tekið þá 125 starfsmenn sem á dögunum fóru á hlutabætur hjá Vinnumálastofnun aftur inn á launaskrá í fullu starfshlutfalli. Góð sala hefur verið í verslunum fyrir- tækisins að undanförnu og ljóst að margir hafa nýtt slakann í yfir- standandi samkomubanni til fram- kvæmda á heimilum sínum. Aukist hefur til dæmis sala á málningu, gólfefnum eins og dúkum og park- eti, verkfærum og árstíðatengdum vörum umfram það sem áætlað hafði verið. „Í heild er þó nokkur samdráttur í sölu milli ára en staðan er samt sem áður betri en við reiknuðum með,“ segir Sigurður Brynjar Páls- son, forstjóri BYKO, í samtali við Morgunblaðið. Panta, sækja og senda Þegar stjórnvöld gáfu út fyrir- mæli um ráðstafanir vegna kórónu- veirunnar var gripið til ráðstafana hjá BYKO; afgreiðslutími í búðum styttur og þeim stærstu skipt upp. Verslunin í Breiddinni í Kópavogi er nú fjögur hólf og samanlagt mega ekki vera fleiri í húsi á hverj- um tíma en 80. „Flesta daga eru biðraðir fyrir utan búðirnar. Takmarkanir sem í gildi eru hamla mjög afgreiðslu- getu okkar. Við höfum því sett meiri kraft í vefverslunina og hvatt viðskiptavini til að panta þar vörur, sem fólk ýmist sækir eða við send- um,“ segir Sigurður Brynjar. „Vegna takmarkana um hve margir mega vera í sama rými í einu höf- um við skipt starfsmannahópnum upp; fyrsta fólk kemur í hús klukk- an sex á morgnana og svo kemur annar hópur síðdegis. Þessi ráð- stöfun hefur einnig þann tilgang að draga úr smithættu og tryggja rekstrarsamfellu. Unnið er fram til

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.