Morgunblaðið - 20.04.2020, Side 13

Morgunblaðið - 20.04.2020, Side 13
FRÉTTIR 13Erlent MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. APRÍL 2020 SAMNINGAR VIÐ ÖLL TRYGGINGAFÉLÖG Hvaleyrabraut 2, 220 Hafnarfirði | Sími: 547 0330 | hsretting@hsretting.is | hsretting.is Hægt er að bóka tjónaskoðun hj LÁTTU OKKUR UM MÁLIÐ • BÍLARÉTTINGAR • PLASTVIÐGERÐIR • SPRAUTUN á okkur á net n • Fagleg þjónusta • Vönduð vinnubrögð • Frítt tjónamat HSRETTING.IS 547 0330 Atli Steinn Guðmundsson atlisteinn@mbl.is Breski forsætisráðherrann Boris Johnson er á batavegi eftir að hafa sýkst af kórónuveirunni og hefur nú á ný tekið við töglum og högldum á Englandi. Dagblaðið Telegraph greinir frá þessu. Dominic Raab utanríkisráðherra, sem farið hefur með vald forsætis- ráðherra síðustu daga, færir Johnson því að líkindum stjórnartaumana á ný eftir veikindi hans. Greindist 26. mars Johnson, sem er hálfsextugur, greindist með kórónuveiruna 26. mars. Einkenni hans voru væg í fyrstu, en ágerðust í kjölfarið og var forsætisráðherrann að lokum lagð- ur inn á gjörgæsludeild. Níunda apríl var ráðherrann út- skrifaður af gjörgæslu og sagður á batavegi. Daginn eftir urðu ummæli föður hans, Stanleys Johnsons, fleyg, þegar hann sagði son sinn nánast hafa tekið slaginn fyrir lið sitt, „almost took one for the team“ eins og hann sagði. Fer í stuttar gönguferðir Að því er segir í fréttum frá ráð- herrabústaðnum við Downing- stræti er forsætisráðherrann að hressast og tekst nú á hendur stutt- ar gönguferðir auk þess að ræða við ríkisstjórn sína með fjarfundabún- aði. Johnson færði bresku heilbrigðis- starfsfólki hugheilar kveðjur á sam- félagsmiðlum og nafngreindi sér- staklega tvo hjúkrunarfræðinga er gættu hans sem sjáaldurs auga síns og viku vart frá sjúkrabeði hans um tveggja sólarhringa skeið. „Sameinuð sigrum við þetta,“ sagði ráðherrann. Rúmlega 120.000 manns hafa smit- ast af kórónuveirunni í Bretlandi og yfir 16.000 fallið í valinn. Fjöldi breskra tónlistarmanna hefur boðið löndum sínum upp á tónleika að heiman síðustu daga sem sjónvarps- stöðin BBC One hefur sent út, þar á meðal tóna hins velska Toms Jones. Breska ríkisútvarpið BBC veltir því nú fyrir sér hvort kórónu- faraldurinn verði til þess að æ fleiri störf hverfi í greipar sjálfvirkni og útrými þar með starfsfólki af holdi og blóði. „Flestir segjast vilja eiga sam- skipti við lifandi manneskjur en Co- vid-19 hefur breytt því,“ hefur BBC eftir Martin Ford, amerískum rithöf- undi. „Æ fleiri fyrirtæki nýta nú vél- menni til að sinna daglegum skyld- um, öll þróun stefnir í þá átt að auka félagslega fjarlægð okkar og forða okkur frá því að þurfa að mæta til vinnu,“ segir Ford. Boris Johnson snýr til starfa á ný  Forsætisráðherrann á batavegi eftir gjörgæsludvöl  Yfir 16 þúsund látnir vegna veirunnar í landinu AFP Batnað Johnson var útskrifaður af gjörgæslu 9. apríl síðastliðinn. Hraðatakmarkalausir þjóðvegir Þýskalands standa nær auðir vegna kórónuveirufaraldurs- ins, þar á meðal þessi hér rétt við Leverkusen. Þýskaland þykir hafa náð betri tökum á faraldr- inum en margar aðrar stórþjóðir Evrópu. Þótt 145.184 hafi greinst með veiruna hafa aðeins 4.586 látist. Hlutfall látinna er því aðeins rúmur fjórðungur af því sem er á Spáni, þar sem 198.674 hafa veikst en 21.238 látist. AFP Enginn út að óþörfu á meginlandinu Evrópuþjóðir eru sumar, eins og Ís- land, að búa sig undir að slaka á samkomutakmörkunum þeim sem gerðar hafa verið vegna kórónu- veirufaraldursins. Sumar afléttingar taka gildi í dag. Verslanir í Þýskalandi í minna en 800 fermetra húsnæði verða opnaðar á nýjan leik í dag; bílaumboð, reið- hjólaverslanir og bókabúðir. Lík- amsræktarstöðvar, veitingastaðir og barir þurfa þó áfram að bíða. Norðmenn opna leikskóla í dag og eftir viku, 27. apríl, verða mennta- og háskólar opnaðir að hluta til og það sama gildir um hárgreiðslu- stofur og aðrar snyrtistofur. Danir geta í dag komist til hár- snyrtis, farið til sjúkraþjálfara eða kírópraktors og ungmenni komast í ökutíma. Sérfræðingur brýndi þó fyrir þjóðinni í danska ríkissjón- varpinu í gærkvöldi að hún gætti sín áfram til hins ýtrasta og að sérhver slappur héldi sig alfarið heima. Veit- ingastaðir eru enn lokaðir og sam- komur fleiri en tíu einstaklinga eru bannaðar. Í Póllandi verða almennings- garðar og skógar opnir í fyrsta skipti í nokkrar vikur og í Tékklandi hefst í dag fimm þrepa afléttingar- ferli, sem byrjar á að taka til mark- aða úti undir berum himni. Tékkum er þá heimilt að ferðast út fyrir land- steinana, að því gefnu að þeir fari í sóttkví við heimkomu. Allsherjarútgöngubann Spán- verja, sem er eitt hið strangasta í heimi, hefur verið framlengt til 9. maí, þó með þeirri breytingu að börnum verður úthlutað daglegum útivistarskammti og gengur sú breyting í gildi 27. apríl. Þá fá börn að fara út í göngutúr í fylgd með for- eldrum sínum, en flest þeirra hafa verið innilokuð á heimilum sínum frá 12. mars, þegar skólum var lokað víðast hvar í landinu. Slakað á takmörk- unum víða í Evrópu  Leikskólar opnaðir í Noregi í dag AFP Afléttingar Danir komast loks til sjúkraþjálfara eftir langa bið. Maður sem dulbjó sig sem lög- regluþjón skaut að minnsta kosti tíu manns til bana í Nova Scotia í Kanada í gærkvöldi. Hann hóf skothríð í nokkrum mismunandi bæjum í fylk- inu og var eltur um endilangt fylkið af lögreglunni eftir árásirnar. Eitt fórnarlambanna var lögregluþjónn. Íbúum í bænum Portapique var þannig ráðlagt að halda sig innandyra á meðan leit stóð yfir að manninum, og hið sama gilti víðar um fylkið. Að sögn lögreglunnar ók maðurinn lög- reglubíl fyrst um sinn en fór svo yfir í annan bíl. Upphófst eltingaleikur sem tók enda með dauða árásarmannsins á bensínstöð norður af Enfield í Nova Scotia. Að maðurinn skuli hafa haft ein- hvern aðgang að lögreglubúningi og lögreglubíl segir lögreglan að sé til marks um skipulagðan gjörning. Þetta virðist hafa verið hvítur kanadískur karlmaður á sextugsaldri, en ástæðurnar að baki gjörðum hans eru ókunnar. Stephen McNeil fylkis- stjóri sagði árásina óskiljanlegt ofbeldisverk, sem væri eitt það versta í sögu svæðisins. 10 létust í skotárás í Nova Scotia

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.