Morgunblaðið - 20.04.2020, Page 14

Morgunblaðið - 20.04.2020, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. APRÍL 2020 Hægt er að lýsa skoðun á ritstjórnargreinum Morgunblaðsins á http://www.mbl.is/mogginn/leidarar/ Breytirkórónu-veiran öllu? Verður heimurinn „eftir kórónuveiru“ allt annar en hann var áður? Slíkra spurninga er spurt um þessar mundir og sumir telja sig hafa svör á reiðum höndum. Einn þeirra er Emmanuel Macron, forseti Frakklands, sem segir í við- tali við FT að fólk muni ekki sætta sig við annað en að tek- ið verði fastar á loftslags- málum eftir að farsóttin er gengin yfir. Þetta tengir hann við það að um öndunarfæra- sjúkdóm er að ræða og að fólk sætti sig eftir slíka farsótt ekki við annað en tandur- hreint loft. Þetta kann að sumu leyti að hljóma sannfærandi, en er al- veg víst að þetta verði í for- gangi þegar veiran er horfin og fólk getur loks um frjálst höfuð strokið? Er líklegt í kreppuástandi og miklu at- vinnuleysi að áherslan verði á að halda niðri starfsemi sem kann að valda mengun? Eða getur verið að með því að viðra þessi sjónarmið sé Macron að leggja áherslu á mál sem hann hafði áhuga á fyrir farsóttina? Er hann þá að nýta sér farsóttina, eins og sumir hafa sakað svokallaða popúlista um að gera? Ef svo, er hann þá popúlisti? Í viðtalinu ræðir Macron líka áhyggjur sínar af framtíð Evrópusambandsins og ítrek- ar vonbrigði sín með afstöðu Hollendinga og Þjóðverja, sem hafa staðið gegn því að stöndugri ríki sambandsins taki á sig ábyrgð á skuldum ríkja sem veikar standa. Macron segist óttast að hafni Evrópusambandið því að taka sameiginlega ábyrgð á skuld- um aðildarríkjanna verði það vatn á myllu popúlista á Ítal- íu, Spáni og jafnvel líka í Frakklandi og víðar. Fólk muni segja að Evrópusam- bandið geri aldrei neitt fyrir það þegar á bjátar. Macron vill að Evrópusambandið snú- ist um annað og meira en við- skipti, það eigi að vera póli- tískt verkefni eða verkfæri. Hann hefur bersýnilega áhyggjur af því að tilvist sam- bandsins sé í hættu verði ekki farin sú leið að taka fjárhags- lega á með þeim ríkjum sem verst standa. Áhyggjur forseta Frakk- lands kunna að eiga rétt á sér. Ef til vill verða viðbrögð- in við kórónuveirufaraldr- inum til að valda Evrópusam- bandinu óbætanlegu tjóni. Ef til vill eykst óánægjan innan sambandsins meira og hraðar en ella hefði verið, en því má ekki gleyma að vegna framgöngu sambands- ins á síðustu árum er frjór jarðvegur fyrir óánægju með það. Stuðningsmenn æ meiri samruna, líkt og Emmanuel Macron, geta ekki kennt öðr- um en sjálfum sér um þann frjóa jarðveg. Þeir sköpuðu hann með því að skella skolla- eyrum við eðlilegum áhyggj- um almennings. Vera má að það sé rétt hjá Macron að kórónuveiran ógni framtíð Evrópusambandsins. Sé svo er það helst til marks um að sambandið hafi ekki staðið á sterkum grunni og hafi þegar gengið fram af stórum hluta íbúanna. En er líklegt að allt breytist þegar kórónuveiran er um garð gengin, eins og stundum er haldið fram? Hættir fólk að ferðast eða dregur verulega úr ferðalögum? Mun mark- aðshagkerfið líða undir lok og allsherjar sósíalismi í ein- hverri mynd taka við? Verður fólk sátt við að vera undir stöðugu og nákvæmu eftirliti ríkisins öllum stundum? Ekkert af þessu er líklegt, sem betur fer. Miklu líklegra er að flest fari í sama farið, hvort sem fyrirbæri á borð við Evrópusambandið verða starfandi með sama hætti og áður eða ekki. Það ræður ekki úrslitum um framþróun heimsins, velferð eða velmeg- un almennings. Vel má vera að íbúar ríkja Evrópusam- bandsins geti fundið farsælli framtíð í gjörbreyttu sam- bandi eða án þess. Samvinna ríkjanna eða samstarf íbúa þeirra á milli ríkja er ekki háð stofnunum Evrópusambands- ins. Það er erfitt að meta áhrif heimsfaraldurs í honum miðjum, en þrátt fyrir allt er heimsfaraldur ekki „for- dæmalaus“ þó að hann hafi ekki áður orðið á tíma þar sem samskipti milli ríkja og heimsálfa hafa verið jafn hröð og nú. Ef horft er til fyrri far- aldra þá má ætla að fyrr en varir fari flest í sama farið, atvinnulífið taki við sér á ný og fólk ferðist án verulegra erfiðleika. En vonandi nýtir mannkynið þessa reynslu eins og aðra líka til einhvers lærdóms, þó að enginn ætti að gera ráð fyrir byltingu í lífs- háttum. Margir spá miklum breytingum, en er það af raunsæi eða óskhyggju?} Breytist allt? F jármálaráðherra hefur undirritað samning ríkisins við Seðlabank- ann um svonefnd brúarlán eða viðbótarlán. Lánin eru með ríkisábyrgð sem bankarnir koma til með að veita fyrirtækjum sem upp- fylla ákveðin skilyrði. Lánafyrirgreiðslan, sem er tímabundin, er hluti af aðgerðaáætl- un ríkisstjórnarinnar vegna veirufaraldurs- ins. Fyrrnefndur samningur varðar mikla fjármuni eða um 50 milljarða króna. Hann er tæknilega flókinn bæði um framkvæmd og eftirlit. Óvíst er hversu mikið kemur til með að falla á ríkissjóð. Í nefndaráliti kemur fram að fjárlaganefnd eigi að fjalla um samninginn áður en hann er undirritaður. Nefndarmenn í fjárlaganefnd fengu mjög skamman tíma til þess að kynna sér hann og einungis tvær klukkustundir til að skila inn skriflegum athugasemdum, svo mjög lá á að undirrita hann. Lagði ég áherslu á að nauðsynlegt væri að fá álit sérfræðinga á samningnum til að hægt væri að glöggva sig á álita- efnum. Ein umsögn barst og er frá Ríkisendurskoðun, sem varð að vinna hana í miklum flýti. Óskaði ég eftir því að fá að kalla til óháða sérfræðinga fyrir nefndina, eins og venjan er. Á það var ekki fallist. Svarið var að það væri mat fjármálaráðuneytisins að ekki væri eðli- legt að nefndin leitaði umsagna annarra aðila en Ríkis- endurskoðunar. Lýsti ég yfir vonbrigðum í ljósi þess að slík vinnubrögð ganga á skjön við eftirlitshlutverk Alþingis og ganga í raun freklega á valdsvið þess. Miðflokkurinn styður þær fyrirætlanir sem í samningum felast en verður í ljósi þess sem að framan greinir að lýsa fullri ábyrgð á framkvæmd samningsins og eftir- lit með honum á ríkisstjórnina og stjórnar- meirihlutann. Fjárlaganefnd átti enga möguleika á að greina samninginn með óháðum sérfræðingum til að tryggja að markmið hans nái fram að ganga og að fyllsta öryggis sé gætt í meðferð ríkisfjár. Þetta eru óvönduð vinnubrögð og skrifast á ríkisstjórnarflokkana. Í samningnum eru annmarkar sem nauðsynlegt var að ræða frekar. Þannig benti Ríkisendurskoðun á augljósar hættur hvað varðar veðtrygg- ingar. Lagði ég m.a. til að bætt yrði við skilyrði í samninginn sem hefði dregið úr áhættu ríkis- ins. Á það var ekki hlustað. Mikilvægt er að koma fyrirtækjum til aðstoðar á fordæmalausum tímum, svo ekki þurfi að koma til upp- sagna starfsfólks. Mikilvægt er að ráðdeildarsemi ríki í meðferð ríkisfjár og úrræðið verði ekki misnotað. Mestu skiptir að úrræðið dugi til að stuðla að því að rétta við atvinnureksturinn í landinu og vernda störf fólks. birgirth@althingi.is Birgir Þórarinsson Pistill Brúarlán og meðferð ríkisfjár Höfundur er þingmaður Miðflokksins og situr í fjárlaganefnd Alþingis. STOFNAÐ 1913 Útgáfufélag: Árvakur hf., Reykjavík. Ritstjóri: Davíð Oddsson Aðstoðarritstjóri: Karl Blöndal Ritstjóri og framkvæmdastjóri: Haraldur Johannessen læsu fréttina orðnir innherjar“, eins og segir í svari Hörpu Jónsdóttur, framkvæmdastjóra LSR, við fyr- irspurn Morgunblaðsins. Stjórnir sjóðanna taka ákvarðanir um vaxtalækkanir en stjórnir þeirra allra funda einu sinni til tvisvar í mánuði. Stýrivextir Seðlabanka Íslands voru 3% í upphafi árs. Þá voru þeir lækkaðir í 2,75% fimmta febrúar og aftur 11. mars í 2,25%. Vextirnir voru svo lækkaðir í 1,75% hinn 18. mars og hafa haldist svo lágir síðan. Lántökum allra sjóðanna býðst að fresta sínum afborgunum af lánum. Sömuleiðis getur hver sem er tíma- bundið tekið út sinn séreignar- sparnað í samræmi við lagabreytingu þar að lútandi. 550 hafa sótt um greiðslufrest Fyrir helgi höfðu 130 sótt um greiðslufrest hjá Gildi og margir spurst fyrir um málið. Þá höfðu borist um 100 umsóknir um útgreiðslu sér- eignarsparnaðar. 77 höfðu sótt um greiðslufrest hjá LSR og 32 um úttekt á séreign vegna COVID-19. 353 höfðu sótt um greiðslufrest hjá Lífeyrissjóði verzl- unarmanna fyrir helgi en það eru 4,1% af fjölda lána. Umsóknir um út- tekt séreignar voru þá um 200 en það eru um 0,4% af eigendum séreignar hjá sjóðnum, sem eru 47.350 talsins. Allir nema einn sjóð- anna hafa lækkað vexti Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Verslun Lífeyrissjóður verzlunarmanna er til húsa í Húsi verslunarinnar. Óverðtryggðir vextir sjóðsins hafa staðið í stað frá því í júlí árið 2019. Guðrún Hafsteinsdóttir, formaður stjórnar Landssamtaka lífeyr- issjóða, segir að lífeyrissjóðirnir þurfi að horfa til margra þátta þegar ákvarðanir um vaxtalækk- anir eða -hækkanir séu teknar. „Lífslíkur þjóðarinnar eru að verða meiri og það þýðir að skuldbindingar kerfisins verða meiri. Við erum að sigla inn í lág- vaxtaumhverfi, vextir hafa aldrei verið eins lágir á Íslandi og núna, og það hlýtur að liggja í hlutarins eðli að erfitt sé að ávaxta sig í þessu lágvaxtaumhverfi. Við þurf- um að horfa til allra þessara þátta þegar við tökum ákvarðanir um vexti en hlutverk okkar er alltaf fyrst og síðast að greiða út lífeyri.“ Guðrún ítrekar að sjóðirnir setji ávöxtun iðgjalda sjóðfélaga í fyrsta sæti. „Sjóðfélagalán er auðvitað fjár- festingakostur sem sjóðirnir standa frammi fyrir eins og hver annar. Við sem sitjum í stjórnum sjóðanna þurfum auðvitað alltaf að láta þetta fé renna inn í mestu ávöxtun sem við getum fundið og það þurfa ekki alltaf að vera sjóð- félagalán.“ Ávöxtun greiðslna númer eitt ERFITT AÐ ÁVAXTA Í LÁGVAXTAUMHVERFI FRÉTTASKÝRING Ragnhildur Þrastardóttir ragnhildur@mbl.is Af þremur stærstu lífeyris-sjóðum landsins hefureinn, Lífeyrissjóður verzl-unarmanna, ekki lækkað vexti sjóðfélagalána síðan í febrúar- byrjun og ekki tekið ákvörðun um að gera það, að því er fram kemur í svari sjóðsins við fyrirspurn Morgun- blaðsins. Á sama tíma hefur Seðlabankinn lækkað stýrivexti þrisvar sinnum til að bregðast við áhrifum kórónuveir- unnar á íslenskan efnahag. Eru þeir nú 1,75% en voru 3% í febrúarbyrjun. Talsverður fjöldi lánþega hefur óskað eftir frestun greiðslna á lánum hjá þessum þremur stærstu lífeyris- sjóðum landsins, en þeir eru Gildi, Lífeyrissjóður starfsmanna ríkisins (LSR) og Lífeyrissjóður verzlunar- manna. Vaxtaákvarðanir hjá hinum síðast- nefnda eru að jafnaði teknar þriðja hvern mánuð, en oftar ef þörf krefur. Stjórn sjóðsins heldur fund undir lok mánaðarins. Ef vaxtalækkun verður ákveðin þar verður það tilkynnt sam- dægurs á vefsíðu sjóðsins. „Stjórn ákveður vexti, í vaxta- ákvörðun getur falist að lækka vexti, hafa þá óbreytta eða hækka þá, eftir atvikum sem stjórn metur,“ segir í svari frá Lífeyrissjóði verzlunar- manna. Sömu vextir frá júlí 2019 Óverðtryggðir vextir á sjóð- félagalánum hjá sjóðnum hafa haldist í 5,14% síðan í júlí 2019. Lífeyrissjóðurinn Gildi hefur lækk- að vexti tvisvar frá febrúarbyrjun, annars vegar 12. mars og hins vegar 26. mars. Þannig hafa breytilegir vextir óverðtryggðra lána hjá sjóðn- um samtals verið lækkaðir um 0,55 prósentustig og fastir vextir verð- tryggðra lána um 0,10 prósentustig. Breytilegir vextir óverðtryggðra grunnlána hjá Gildi eru nú 4,55%. LSR hefur lækkað breytilega vexti á óverðtryggðum sjóðfélagalánum tvisvar sinnum síðan í febrúarbyrjun, annars vegar 6. mars, úr 5,5% í 5,4%, og aftur 26. mars í 5,2%. Rétt eins og hjá Lífeyrissjóði verzl- unarmanna hefur engin ákvörðun verið tekin um lækkun vaxta á næst- unni hjá Gildi en LSR gat ekki svarað því hvort slík ákvörðun hefði verið tekin þar sem „þá væru allir sem

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.