Morgunblaðið - 20.04.2020, Síða 17

Morgunblaðið - 20.04.2020, Síða 17
9,9% fretta- bladid.is 14,0% Fréttablaðið 8,8% visir.is 9,7% ruv.is 6,1% RÚV: útvarp/ sjónvarp 2,8% Bylgjan/ Stöð 2 4,2% DV 6,4% dv.is 38,0% 38,0% allra frétta frá tíu stærstu fréttamiðlum landsins koma frá fréttastofu Morgunblaðsins og mbl.is. Þessi elsta fréttastofa landsins er mönnuð reynslumiklu fagfólki sem hefur aðeins eitt markmið — að miðla vönduðum fréttum og fjölbreyttu efni til lesenda á hverjum degi. Ekki missa af því sem skiptir máli. Komdu í áskrift strax í dag Sím i 569 1100 m bl.is/a s kri ft Við skrifum fleiri fréttir Heimild: Creditinfo - Fjölmiðlavaktin 2020 18,8% Morgun- blaðið 19,2% mbl.is Umræðan MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. APRÍL 2020 Oft er bent á að hraði breytinga í samfélaginu sé verulegur og mun meiri en áður fyrr. Sýnt hefur verið fram á að breytingar eru umfangs- meiri en áður og hafa dýpri áhrif á fyrirtæki, stofnanir og samfélagið í heild. Sumir segja að hið óvænta komi okkur ekki lengur á óvart. Það sé orð- ið norm, hvort sem um er að ræða vá vegna jarðhræringa, breytingar á sviði tækni og samfélagsgilda eða vír- usfaraldur. Bill Gates og vírusinn Nokkuð getur verið til í þessu. Þó koma upp tilvik sem fáa óraði fyrir fyrr en of seint. COVID-19-vírusinn er dæmi um slíkt, en þó ekki. Fyr- irlestur Bills Gates fer nú sem eldur í sinu um veraldarvefinn en 2015 leiddi hann líkur að því að ástand eins og nú ríkir gæti skapast. Hann færði sögu- leg rök fyrir hugsanlegri þróun og benti á hversu berskjölduð samfélög eru og illa búin til að takast á við slíka vá sem vírusinn er. Bill Gates er snill- ingur okkar tíma og þekkir vel til fræða eins og framtíðarfræða; að skoða framtíðina út frá ólíkum for- sendum og kortleggja mismunandi framtíðir. Uppruni sviðsmyndagerðar á Íslandi Fyrir 15 árum stóðu höfundar þess- arar greinar fyrir málstofu um mikið notaða hugmyndafræði úr viðskipta- lífi erlendis, „scenario planning“, sem við þýddum sem „sviðsmyndagrein- ingu“. Þar voru með fastmótaðri að- ferðafræði útbúnar „sviðsmyndir“ til að lýsa mögulegri en óvissri framtíð. Með því að rýna í framtíðina öðlast þátttakendur skilning á því hvað þurfi að gera í dag til að móta framtíðina eða bregðast við æskilegum og óæski- legum þáttum. Markmið með kynn- ingunni á sínum tíma var að ná athygli stjórnenda fyrirtækja og að kynna þessa aðferðafræði sem innlegg í stefnumótun og nýsköpun fyrir fyrir- tæki, stofnanir og stjórnsýslu. Þrátt fyrir að vel væri mætt á málstofuna var tiltölulega fátt um stjórnendur úr viðskiptalífinu. Margir komu frá lög- reglu, slökkviliði og öðrum viðbragðs- aðilum en þeir þekkja vel hve nauð- synlegt er að reyna að sjá fyrir mögulega viðburði og eiga til við- bragðsáætlanir við þeim. Þessir aðilar þekktu hugmyndafræðina úr erlendu samstarfi. Á þessum tíma tókum við dæmi um óvænta atburði eins og ef bandarísku herstöðinni á Keflavík- urflugvelli yrði skyndilega lokað. Þetta þótti ótrúverðugt og ekki gott dæmi, eldgos gæti átt betur við. Ári síðar var herinn farinn og um níu hundruð manns sem höfðu unnið á flugvallarsvæðinu urðu atvinnulausir. Í kjölfarið ákváðum við að rita og gefa út bók til að kynna sviðsmyndir og notagildi þeirra (Framtíðin – frá óvissu til árangurs með notkun sviðsmynda við stefnumótun). Framtíðir og sviðsmyndir Margt hefur breyst á þessu sviði. Sem dæmi er nú viðurkennt að nota orðið framtíð í fleirtölu, „framtíðir“. Slík hugsun er í sjálfu sér einn af hornsteinum framtíðarfræða en áður var orðið framtíð eintöluorð í íslenskri tungu. Aðferðin við gerð sviðsmynda er orðin viðurkennd og hefur verið notuð á fjölmörgum ólíkum sviðum, meðal annars til að örva samfélags- umræðu og til að kortleggja ólíkar birtingarmyndir framtíðarinnar fyrir fyrirtæki og stofnanir og ekki síst op- inbera aðila. Hugtakið sviðsmyndir er þó oftar en ekki ofnotað og jafnvel misnotað, einkum að undanförnu í allri umræðu tengdri vírusmálum. Í fræðilegu samhengi eiga sviðsmyndir ekki við nema í þeim tilfellum þegar dregnar eru rökréttar ályktanir og sýnt fram á afleiðingar af þróun óvissra drifkrafta. Oft er sviðs- myndum ruglað við „bestu og verstu útkomu“ og eins ef verið er að velta upp mismunandi valkostum. Hvað sem líður notkun hugtaka er mikil- vægast að skilja að sviðsmyndirnar kalla eftir aðgerðum til að bregðast við tækifærum eða ógnunum. Og hvað svo? Þrátt fyrir að sviðsmyndagreining hafi náð ákveðnum sessi hérlendis er það okkar mat að aðferðin og verk- færakista framtíðarfræða sé verulega vannýtt hér á landi, einkum þegar kemur að því að nýta niðurstöður þeirra. Þannig eiga margir erfitt með að taka ákvarðanir byggðar á ein- hverju sem ætlað er að gæti gerst í framtíðinni. Andri Snær fjallar um í bók sinni Tíminn og vatnið hversu lengi við sem samfélag erum að taka í sátt ný hugtök og vinna með þau. Það eitt og sér er umhugsunarefni og tef- ur fyrir faglegri nálgun að áskor- unum sem við stöndum frammi fyrir á hverjum tíma. Hvernig er hægt að móta stefnu í breytilegu umhverfi, svo sem á sviði nýsköpunar, mennta- eða orkumála, ef ekki er tekið mið af mörgum ólík- um framtíðum? Framtíðin er ekki línuleg afleiðing af fortíðinni heldur mun taka mið af ótal mörgum þáttum í sam- félaginu. Við höf- um í það minnsta lært það þessa dagana að hið óvænta er orðið norm, við getum því átt margar mögulegar fram- tíðir á komandi tímum og eins gott að undirbúa sig ekki aðeins fyrir eina fyr- irsjáanleg fram- tíð. Er hið óvænta orðið að normi? Eftir Sævar Kristinsson og Karl Friðriksson » Við getum því átt margar mögulegar framtíðir á komandi tímum og eins gott að undirbúa sig ekki aðeins fyrir eina fyrirsjáanlega framtíð. Höfundar eru sérfræðingar í framtíðar- fræðum á Framtíðarsetri Íslands. Sævar Kristinsson Karl Friðriksson Það er seintekinn gróði að eiga hestakaup við Sumarliða póst, var einu sinni sagt, og svipað á við um bankakerfið í dag. Kunningi minn seldi fasteign um daginn og vildi geyma and- virðið nokkurn tíma og setti það inn á verðtryggðan reikning í lok janúar. Næsta sem hann vissi var að búið var að klípa af upphæðinni, því það höfðu gengið yfir útsölur á skóm og fatapjötlum í mánuðinum og þannig komið tæki- færi til að rýja þennan sómamann. Nú fylgjumst við spenntir með, ég og kunninginn, hve- nær hann verði búinn að vinna upp tapið og farinn að leggja fyrir á eðli- legri rentu. Eitthvað sýnist vera skakkt gefið í verðtryggingarmálum og líklega er orðið sjálft, verðtrygg- ing, öfugmæli í framkvæmd. Líka allt- af einblínt á lántakendur þegar verð- trygging er nefnd. Að einhver eigi aura í banka til að grípa til er tabú og aldrei nefnt frekar en mannsmorð. En þangað til annað kemur í ljós mun kunningi minn naga handarbök fyrir að hafa ekki birgt sig upp af skóm á útsölunni og kon- an fatað sig ræki- lega upp. Sunnlendingur Velvakandi Svarað í síma 569-1100 frá kl. 10-12. Málbandið vitlaust og vigtin skökk

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.