Morgunblaðið - 20.04.2020, Síða 18

Morgunblaðið - 20.04.2020, Síða 18
18 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. APRÍL 2020 Kóvid-kreppan er ólík fjármála- kreppunni sem hófst 2008. Viðbrögðin þurfa því að vera með öðrum hætti. Nú stöðvaðist efna- hagslífið vegna tíma- bundinna sóttvarn- araðgerða. Fjármálakreppan varð vegna djúpstæðs skuldavanda banka, fyrirtækja og heimila. Allsherjarlokun samfélaga nú leiðir til fordæmalausrar aukningar atvinnuleysis, en hún er tímabund- in. Það er lykilatriði. Þegar sóttvarnaraðgerðum linnir mun atvinnulífið fara í meiri virkni, stig af stigi. Þá mun aftur draga úr atvinnuleysi, eins og gert er ráð fyrir í nýrri spá Alþjóðagjaldeyris- sjóðsins fyrir umheiminn. Meðaltal atvinnuleysis á árinu 2020 verður því mun lægra en er nú á meðan sóttvarnaraðgerðir eru í hámarki. Ferðaþjónustutengdar greinar verða hins vegar í verstu stöðu hér á landi. Þar mun kreppan vara lengst. Ferðaþjónustan mun því verða í gjörgæslu um hríð. Hvað snertir það stóran hluta vinnumarkaðarins? Í ferðaþjónustutengdum greinum störfuðu fyrir kreppu um 12-14% vinnandi fólks. Þótt greinin sé mik- ilvæg fyrir störf og gjaldeyrisöflun er hún eftir sem áður minnihluti vinnumarkaðarins og efnahagslífs- ins. Eftir að sóttvarnaraðgerðum linnir mun meirihluti atvinnugreina geta snúið til þokkalegra starfsskil- yrða á ný. Vandi ferðaþjónust- unnar er því ekki vandi alls at- vinnulífsins í sama mæli. Fyrirtæki í byggingariðnaði, sjávarútvegi, framleiðsluiðnaður, verslun, sem og landbúnaður og opinber þjónusta, eiga öll þokka- lega góðar líkur á að ná tiltölulega fljótt upp viðunandi starfsemi. Þetta er einmitt forsenda spár AGS um að árið verði mun skárra en staðan er nú í miðjum sóttvarnaraðgerðum. Menn ættu því ekki að ýkja stærð áfallsins. Því til viðbótar er staða fjármála ríkisins og seðlabankans mjög góð og getan til að taka á skamm- tímavanda því mikil. Stærstu álitamálin nú snúast um útfærslur viðbragða við krepp- unni. Það sem gera þarf – frá sjónarhóli launafólks Mikilvægast er að tryggja af- komu launafólks í gegnum krepp- una og verja betur þá sem missa vinnuna að hluta eða fullu. Efna þarf alla þætti lífskjarasamningsins til að tryggja viðspyrnu í uppsveifl- unni og stöðugleika í framhaldinu. Eftirfarandi eru lykilatriði til að ná ofangreindum markmiðum:  Skila kaupmætti lífskjarasamn- ingsins til fulls svo hægt verði að efla einkaneyslu innanlands í kjölfar sóttvarnaraðgerða.  Hækka flatar atvinnuleysis- bætur úr 289.510 kr. á mán. til samræmis við lágmarkslaun (341.000 kr. á mánuði frá 1. apríl sl.).  Lengja tímabil atvinnulausra á hlutfalli fyrri heildarlauna úr þremur mánuðum í sex.  Hækka hámarksviðmið atvinnu- leysisbóta úr 456.404 kr. á mán- uði að meðallaunum.  Útvíkka og framlengja hluta- bótaleiðina svo hún nái mark- miðum sínum til fulls.  Tryggja afkomu þeirra sem ekki geta stundað vinnu til fulls vegna ástandsins (t.d. vegna undirliggjandi sjúkdóma eða annarra hamlana o.fl.). Þessir hópar falli undir lög um laun í sóttkví.  Skila öllum úrræðum í húsnæð- ismálum sem lofað var í lífs- kjarasamningi (hlutdeildarlán, aukning almennra íbúða, leigu- bremsa o.fl.).  Seðlabankinn tryggi að verð- bólga fari ekki yfir markmið, svo kaupmáttur lífskjarasamningsins sé tryggður og að skuldakreppu verði aftrað.  Lífeyrir almannatrygginga hækki að lágmarki til samræmis við lágmarkslaun á vinnumark- aði.  Í kjölfar sóttvarnaraðgerða verði virkni- og stuðningsúrræði fyrir langtímaatvinnulausa efld.  Aðgerðir stjórnvalda stuðli að jöfnuði, líkt og lífskjarasamning- urinn.  Eigendur fyrirtækja sem njóta opinbers stuðnings í kreppunni undirgangist skilyrði um að greiða ekki út arð eða kaupa hlut í sjálfum sér næstu tvö árin. Vegna þess að lengri tíma mun taka að fá erlenda ferðamenn aftur til landsins í nægjanlegum mæli þarf uppsveiflan í kjölfar sóttvarnaraðgerða að byggjast öðru fremur á aukinni innlendri eftirspurn, þ.e. einkaneyslu al- mennings og auknum opinberum framkvæmdum. Ofangreind kjaraatriði munu leika lykilhlutverk í að ná því markmiði. Um þessi sjónarmið er víðtæk samstaða innan hreyfingar launafólks. Stuðningsaðgerðir stjórnvalda og seðlabanka við fyrirtæki í tíma- bundnum vanda skipta auðvitað einnig miklu máli. Að verja kjör al- mennings og líf mikilvægra líf- vænlegra fyrirtækja í þessum að- stæðum er bæði réttlátt og efna- hagslega hagkvæmt (í anda Keyn- es). Saman munu þessar aðgerðir tryggja farsæla framvindu þjóð- arbúskaparins eftir að sóttvarn- araðgerðum linnir – uns bóluefni verða tiltæk. Viðbrögð við kreppunni – tékklisti launafólks Eftir Stefán Ólafsson » Í greininni er fjallað um æskileg viðbrögð við kóvid-kreppunni, frá sjónarhóli launafólks. Stefán Ólafsson Höfundur er prófessor við HÍ. olafsson@hi.is Hugmyndin um tvö- földun Hvalfjarðar- ganga, sem stjórn gangafélagsins Spalar kynnir á fölskum for- sendum, tryggir aldrei öryggi vegfarenda þegar það fréttist að umferð um göngin eykst næstu árin. Yfir sumarmánuðina 2009 var fullyrt að meðal- umferð í Hvalfjarðar- göngum hefði verið níu þúsund bílar á dag. Viðurkennt er að skynsam- legra sé að grafa önnur neðansjáv- argöng við hliðina á núverandi göng- um þegar rætt er um hvernig eigi að bregðast við mikilli slysahættu sem aukin umferð skapar. Fljótlegra væri að fjármagna þetta samgöngu- mannvirki með 1.000 króna veg- gjaldi á hvern bíl heldur en Vaðla- heiðargöng sem engin arðsemi verður af. Að loknum framkvæmdum við Sundabraut og Vesturlandsveg get- ur breikkun ganganna í fjórar ak- reinar þýtt að slysahættan fimm- faldist ef meðalumferð á dag verður meira en 25 þúsund bílar. Engin svör fást þegar forsvarsmenn Spalar eru spurðir að því hvort þessi heild- arfjöldi ökutækja fari yfir 30 þúsund bíla á dag, verði ný hliðargöng undir fjörðinn afskrifuð. Auk- in umferð flutningabíla sem færu fulllestaðir með eldfim efni inn í Hvalfjarðargöngin úr báðum áttum endar með skelfingu ef stýr- isbúnaður bilar, þegar bremsurör og hjólbarð- ar stóru ökutækjanna springa á 70-80 km hraða. Þá eykst hættan á því að flutningabíl- arnir velti inni í göng- unum með ófyrirséðum afleiðingum ef bílstjór- arnir missa stjórn á þeim. Ég spyr: Vilja menn fimmfalda slysahættuna eða ákveða ný hliðargöng með tveimur akreinum undir Hvalfjörð? Eldsvoðinn í Mont Blanc-jarðgöng- unum, sem kostaði nærri 40 manns- líf, vekur spurningar um hvort allar tilraunir til að forðast dauðaslys í Hvalfjarðargöngum geti runnið út í sandinn. Í Mosfellsbæ getur of mikil umferðarteppa tafið fyrir því að slökkvilið höfuðborgarinnar komist tímanlega að gangamunnanum. Við þetta vandamál losna menn ef stjórn Spalar samþykkir að grafa önnur neðansjávargöng með tveimur ak- reinum samhliða núverandi göngum. Þannig verður öryggi vegfarenda, lögreglu, slökkviliðs og sjúkrabíla best tryggt til þess að fljótlegra sé að bregðast við neyðartilfellum sem enginn sér fyrir. Áður en efnahagskreppan í heim- inum komst í fréttirnar haustið 2008 jókst meðalumferðin á sólarhring um Hvalfjarðargöngin, þvert á allar hrakspár, sem gerðu ráð fyrir minnkandi umferð og þóttu ótrú- verðugar. Tvöföldun núverandi ganga er uppskrift að enn frekari vandræðum og aukinni slysahættu, sem er alltof mikil. Beggja vegna neðansjávarganganna yrði strax óhjákvæmilegt að útbúa flóttaleiðir með eldvarnarhurðum, til að fljót- legra yrði fyrir vegfarendur að forða sér út úr bifreiðum sínum, sem eldur getur komist í á örfáum sekúndum vegna of mikils hita. Þá eykst hætt- an á því að slökkviliðsmennirnir geti aldrei ráðið niðurlögum eldsins. Misheppnuð tvöföldun ganganna, sem stjórnarformaður Spalar, Gísli Gíslason, leggur til, án þess að kynna sér fyrst þörfina á flóttaleið- um og uppsetningu eldvarnarhurða í neðansjávargöngunum undir fjörð- inn, vekur spurningar um hvort þau geti í kjölfarið breyst í slysagildru. Best væri að þeir sem ferðinni ráða svari þessum spurningum afdrátt- arlaust. Næstu árin er því spáð að meðalumferð á sólarhring í Hval- fjarðargöngunum aukist enn meir en þekkst hefur án þess að fram komi hvort meðalumferð ökutækja verði á bilinu 13-17 þúsund bílar á dag. Það eykur álagið á göngunum, sem veldur því að bílstjórar lög- reglu, slökkviliðs- og sjúkrabíla lenda strax í sjálfheldu þegar þeir komast aldrei út úr gangamunn- anum til að bregðast við neyðar- tilfellum. Varanleg lausn á þessu vandamáli felst aðeins í því að öll umferðin milli Vesturlands og höf- uðborgarsvæðisins, sem situr uppi með sprungið vegakerfi, verði um ókomin ár í tvennum aðskildum göngum undir fjörðinn. Annars lokast vegfarendur inni ef harður árekstur milli tveggja flutninga- bifreiða veldur eldsvoða í núverandi göngum. Að loknum framkvæmdum við Sundabraut og tvöföldun Vest- urlandsvegar getur meðalumferð ökutækja á dag í Hvalfjarðar- göngum aukist enn meir þvert á all- ar hrakspár sem stjórnarformaður Spalar teflir fram gegn nýjum hlið- argöngum. Eftir Guðmund Karl Jónsson Guðmundur Karl Jónsson »Að loknum fram- kvæmdum við Sunda- braut og Vesturlandsveg getur breikkun ganganna í fjórar akreinar þýtt að slysahættan fimmfaldist ef meðalumferð á dag verður meira en 25 þúsund bílar. Höfundur er farandverkamaður. Frelsi og lýðræði eru grunnstoðir frjálsra samfélaga. Þegar harðnar í ári og óttinn tekur völd eru þessar stoðir samt oft þær fyrstu til að bresta. En á ögurstund er mik- ilvægara en nokkru sinni að grunnstoðirnar haldi, því án þeirra missum við fótfestuna og óvissuferðin lengist. Við að missa frelsið missirðu stjórn á lífinu og ótt- inn við óvissuna vex. Án lýðræð- islegrar umræðu færast mikilvægar ákvarðanir smám saman í að verða vanhugsaðar geðþóttaákvarðanir þess sem valdið hefur. Þegar valdhaf- ar taka sér slíkt ofurvald getur eng- inn vitað hvað fram undan er, því meira að segja þegar þeim þóknast að „gefa“ þegnunum smá réttindi til baka liggur hótunin alltaf í loftinu og hægt er að svipta okkur öllu aftur ef valdhafinn breytir um skoðun. Slíkt óvissusamfélag án stoða er óþolandi. Það dregur kjark úr athafnafólki til að takast á við vandamálin. Vanda- málin vaxa og eyðileggingin marg- faldast. Sjúklingurinn gleymdist Í yfirstandandi kórónukrísu voru fyrstu viðbrögð Íslendinga að fórna okkar mikilvægustu gildum. Þriggja manna teymi fékk alræðisvald í krísu- viðbrögðunum, tugþúsundir Íslend- inga voru þvingaðar í stofufangelsi og heilu atvinnugeirarnir tímabundið lagðir niður. Þótt sumum kunni að virðast sem aðgerðin hafi tekist, þá er ekki allt sem sýnist, því hinn raun- verulegi sjúklingur gleymdist og hann er að deyja. Algjört hrun blasir við í atvinnulíf- inu og ef kúrsinum verður ekki breytt stefnir í hörmungar af stærðargráðu sem aldrei hefur sést áður. Mesti skaðinn stafar þó ekki af kórónuflens- unni, heldur af aðgerðum valdhafa og hótuninni sem liggur í loftinu. Vald- höfum hugnast þó ekki að dvelja um of á neikvæðum afleiðingum „björg- unaraðgerðanna“, því neikvæð um- ræða dregur úr valdheimildinni. Á þriðja þúsund Íslendinga deyja ár hvert og hrun hagkerfisins sem mun valda hruni heilbrigðisþjónustu mun hafa verulega neikvæð áhrif á það. Því er algjör hunsun yfirvalda á þess- ari alvarlegu hættu vegna ofuráherslu á kórónutölfræði hreint galið ábyrgðarleysi sem getur kostað hundruð mannslífa þegar fram í sækir. Frelsi er hluti af mannlegu eðli og því finna allir fyrir því þeg- ar þeirra eigin frelsi ógnað. Vera má að þvinguð sóttkví og einangrun sjúkra virki vel á búfé, en afar vanhugsað er að beita slíkum refsiaðferðum á sjálfstæða ein- staklinga sem gangast sjálfviljugir undir prófanir. Slíkt gengur aðeins þar til fólk áttar sig á hvað yfirvöldum gengur til. Þá hætta sjúklingar ein- faldlega að leita sér læknisaðstoðar nema veikin sé farin að ágerast það mikið að ekki er hjá því komist. Af hverju ættu þeir að gera annað? Fæstir vilja bera ábyrgð á lokun vinnustaðar síns eða sitja uppi með skömmina af því að hafa sent fjölda saklauss fólks í sóttkví. Með því að gera sjúkdóm refsiverðan er trúnaður læknis við sjúkling rofinn og elsta grunnstoð læknaþjónustu, Hippó- kratesareiðurinn, er svikin. Aðeins við sjálf getum borið ábyrgð á okkur eigin heilsu. Þessari ábyrgð er aldrei hægt að varpa yfir á aðra með lagabókstaf. Það verður því alltaf að vera undir okkur sjálfum komið hvort við einangrum okkur eða hvern- ig við hegðum okkur miðað við þær aðstæður sem við erum í. Mat sér- fræðinga má því aðeins vera sett fram sem ráðgjöf um hvað sé best að gera. Heilbrigðisþjónusta verður alltaf að vinna með hagsmuni sjúklinga að leið- arljósi en má aldrei snúast gegn þeim. Ef þessari siðlausu stefnu yfirvalda er ekki breytt er hætt við að kór- ónuveiran fari í felur á ný og valdi svo margföldum skaða í seinni bylgju næsta haust þegar smithættan vex aftur. Besta markaðsvara allra tíma Ísland getur ekki þrifist án öflugs viðskiptalífs og er ferðamannaiðn- aðurinn langmikilvægasta atvinnu- greinin. Ferðamannaiðnaðurinn reif Ísland upp úr hruninu nánast á eigin spýtur, drifinn áfram af einum mesta frumkvöðlakrafti sem landið hefur haft. Þótt útlitið í dag sé svart má alls ekki fórna þessari lífæð íslensks at- vinnulífs barráttulaust og leita verður allra leiða til að koma atvinnugrein- inni aftur á skrið. Enn er von, því með stefnubreytingu gætu Íslendingar boðið upp á eftirsóttustu vöru allra tíma, sem mikill skortur er á um þess- ar mundir um allan heim: Frelsi og mannréttindi. Með því að fella niður þvingunar- kröfur um sóttkví og einangrun getur Ísland skorið sig úr sem þjóð sem virðir mannréttindi og býður alla vel- komna. Slíkt boð mundi strax vekja athygli um allan heim, enda er frelsi og öryggið sem mannréttindum fylgir afar dýrmætt í dag. Frelsið er þannig markaðsvara sem selur sig sjálf. Lítil hætta er á að slík stefna fylli landið af erlendum sjúklingum, því sjúkt fólk vill síður ferðast og því mundi mark- aðurinn fljótt finna lausnir sem hent- uðu ástandinu (t.d. með því að auð- velda afpöntun með stuttum fyrirvara). Einnig mundi öryggi er- lendra ferðamanna sem sýktust aukast og smithættan af þeim minnka ef þeir gætu óhræddir nálgast lækn- ishjálp, án þess að eiga á hættu að vera sviptir frelsinu. Leyfum frelsinu að leiða Ísland inn í bjartari framtíð út úr þessum óvissu- tímum. En til þess að það takist verð- ur fyrst að treysta því. Lifi frelsið. Aðeins ein leið fær Eftir Jóhannes Loftsson » Lögregluríki og ferðamannaiðnaður fara illa saman. Jóhannes Loftsson Höfundur er formaður frjálshyggjufélagsins. lififrelsid@gmail.com Breytast Hvalfjarðargöng í slysagildru?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.