Morgunblaðið - 20.04.2020, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 20.04.2020, Blaðsíða 25
DÆGRADVÖL 25 MORGUNBLAÐIÐ MÁNUDAGUR 20. APRÍL 2020 SVALALOKANIR Svalalokanir frá Glerborg eru nýtískulegar og falla vel að straumum og stefnum nútímahönnunar. Lokunin er auðveld í þrifum þar sem hún opnast inná við. Hægt er að fá brautirnar í hvaða lit sem er. Svalalokun verndar svalirnar fyrir regni, vindi og ryki og eykur hljóðeinangrun og breytir notkun svala í heilsársnotkun. Glerborg Mörkinni 4 108 Reykjavík 565 0000 glerborg@glerborg.is www.glerborg.is 2291árfregalgeps&nupílsrelg,raggulg,relG FÁÐU TILBOÐÞÉR AÐKOSTNAÐAR-LAUSU „SNÝST ÞETTA UM ÞAÐ AÐ MÉR LÁÐIST AÐ BIÐJA ÞIG UM SAKAVOTTORÐ ÞEGAR ÉG RÉÐI ÞIG TIL STARFA?” „ÞAÐ LÁ VIÐ AÐ ÉG HÆTTI VIÐ VEGNA ALLRAR ÚRKOMUNNAR.” Ferdinand Hrólfur hræðilegi Grettir ... að fá far á rafmagnshlaupahjólinu hans. Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann HVAÐ ER AÐ JÓN? MÉR LÍÐUR ILLA YFIR ÞVÍ AÐ SKILJA GRETTI OG ODDA EFTIR EINA EN SÆTT ÉG SÉ ÞÁ FYRIR MÉR ÞAR SEM ÞEIR BÍÐA VIÐ DYRNAR EFTIR MÉR … ÞEGAR ÞAÐ ER ÓSÆTTI MEÐAL LIÐSMANNA MINNA FELLUR ÞAÐ MÉR Í SKAUT AÐ TAKA ÁKVARÐANIRNAR … ÉG SEGI ÍTALSKAN! Verði tryggingum, búsett í Garðabæ. Maki: Oddur Ingason. Börn þeirra eru Lena María, Emil Örn, Fannar Már, Daníel og Katrín Sóley. Barna- barnabörnin eru fjögur. Fyrir hjóna- band átti Víðir tvo syni, Jón Hólm, framkvæmdastjóra í Reykjavík. Maki: Gréta Jóhannsdóttir, dætur þeirra eru Sólveig og Jóhanna Lilja og Sverri E. Ragnarsson, kennara í Reykjavík. Maki: Kristín H. Krist- mundsdóttir, dóttir þeirra er Linda. Systkini Víðis: 1) Karl Daníel Finn- bogason, f. 25.11. 1928, járnsmiður í Reykjavík; 2) Hólmar Finnbogason, f. 21.2. 1932, d. 6.4. 2008, umsjónar- maður skóla í Reykjavík, 3) Björk Finnbogadóttir, f. 18.5. 1942, hjúkr- unarfræðingur í Reykjavík, 4) Linda Finnbogadóttir Venegas, f. 18.5. 1942, hjúkrunarfræðingur í Los Angeles. Foreldrar Víðis voru hjónin Jóna Friðrika Hildigunn Franzdóttir, f. 26.9. 1910, d. 11.1. 1965, húsfreyja, og Finnbogi Halldórsson, f. 3.4. 1900, d. 27.3. 1954, skipstjóri. Þau voru búsett í Vestmannaeyjum, á Siglufirði og í Reykjavík. Víðir Finnbogason Franz Óskar Jóhannsen sjómaður á Dalvík og í Noregi Guðrún Hólmfríður Björnsdóttir húsfreyja á Dalvík Jóna Franzdóttir húsfreyja í Eyjum, Siglufirði og Reykjaví Kristrún Karítas Sveinsdóttir húsfreyja í Bjarnagerði Kristján Þór Júlíusson ráðherra Sigurður Halldórsson bóndi á Melbreið í Stíflu, Skag. Júlíus Kristjánsson fv. forstjóri á Dalvík Júlíus Björnsson útgerðarmaður á Dalvík Kristján Eldjárn b. og sjóm. í Nýjabæ á Dalvík Heimir Karlsson útvarpsm. Jón Stefánsson trésmiður og sjóm. á Dalvík Björk Finnbogadóttir hjúkrunarfr í Rvík Karl Daníel Finnbogason járnsm. í Rvík Björn Franzson náttúruverndarsinni og rithöfundur Guðrún Björnsdóttir húsfreyja í Brekkukoti og Klaufabrekkum Friðrík Jónsson b. í Brekkukoti og Klaufabrekkum í Svarfaðardal Margrét Friðriksdóttir húsfr. á Vermundarstöðum Halldór Jónsson bóndi á Vermundarstöðum í Ólafsfirði Sólveig Benediktsdóttir húsfr. á Vermundarstöðum Jón Halldórsson sjómaður í Ólafsfirði og b. á Vermundarstöðum Úr frændgarði Víðis Finnbogasonar Finnbogi Halldórsson skipstjóri í Eyjum, Siglufirði og Rvík Björn Daníel Friðriksson skipstjóri í Bjarnagerði á Upsaströnd Með lausn sinni á gátunni álaugardag sendi Helgi R. Einarsson tvær limrur - Heilræði dagsins í dag: Nú áttu að vera inni og efla við börnin þín kynni. Svo loksins er lag að líta’ upp í dag og kynnast konunni sinni. Síðan er Þunglyndislimra: Myrkar málar Lauga myndir sálar, drauga. Hið góða sér sú gamla hér gegnum nálarauga. Til uppörvunar í dymbilvikunni sendi Baldur Hafstað vinum sínum eftirfarandi vísu: Kórónu teflum tafl og trúum á gildin forn; sóttvarna eflum afl með Ölmu og V og Þ. Pétur Stefánsson orti á Leir fyrir viku: Fréttin lækkar gremjugný, gleðin stækkar nú í mér. Vonin hækkar veröld í, veiru fækkar smitum hér. Friðrik Steingrímsson svaraði: Lýðnum betur líður nú lækning metur réttar, og nú getur aftur þú andað Pétur léttar. Þessi staka Hallmundar Kristins- sonar á Boðnarmiði þarfnast ekki skýringar: Í þinginu var ræðustúfur stuttur um stefnumál í hálfkæringi fluttur og þingforseta þótti eina vitið að þessu skyldi lokið. Fundi slitið. Kristján Karlsson kvað: Fyrir guði eru gefendur ríkir og gáfaðir heimskir sem slíkir og hvítir menn svartir og blakkir menn bjartir og beinasnar okkur líkir. Jóhann S. Hannesson kvað: Að huga ekki að náungans högum né hlusta eftir illgjörnum sögum lýsir áhugaskorti á íslensku sporti og ætti að bannast með lögum. Kalt á toppnum nefnist þessi limra Antons Helga Jónssonar: Ég finn vel að höfuðið hækkar því hitinn á kollinum lækkar. Á gránandi hnjúk er gustur og fjúk og gróðurlaus blettur sem stækkar. Halldór Blöndal halldorblondal@simnet.is Vísnahorn Heilræði dagsins og kórónutafl

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.