Morgunblaðið - 20.04.2020, Page 32
Steinþór Guðbjartsson
steinthor@mbl.is
Lífið heldur áfram þrátt fyrir kórónu-
veirufaraldurinn og Í hjarta mínu,
fyrsta bókin frá nýstofnaðri bóka-
útgáfu, er væntanleg á
markað á miðvikudag.
„Draumurinn er loksins
orðinn að veruleika,“ segir
Ólíver Þorsteinsson, höf-
undur bókarinnar og eig-
andi og stjórnarformaður
Leó bókaútgáfunnar.
Undanfarin fjögur ár hef-
ur Ólíver, sem er 23 ára,
starfað í leikskóla. Þar fékk
hann innblástur að fyrstu
bók sinni, Leitinni að jóla-
kettinum, sem bókaútgáfan
Tindur gaf út fyrir jólin
2018. „Ég hef lengi gengið
með þessa hugmynd í maganum að
stofna bókaútgáfu og bjóst við að
draumurinn yrði að veruleika þegar
ég yrði orðinn þrítugur, en í desem-
ber var ég ákveðinn í að koma út bók-
inni Í hjarta mínu, sem er mjög per-
sónuleg. Ég vildi gefa hana út sjálfur,
vildi ekki að einhver annar ætti rétt-
inn, og þar með var ekki eftir neinu að
bíða.“
Richard Vilhelm Andersen, kerfis-
stjóri og vinur Ólívers, hvatti hann til
dáða og tók slaginn með honum.
„Hann hefur lagt gífurlega mikið af
mörkum og tekið fullan þátt í að
hrinda hugmyndinni í framkvæmd.
Þetta hefur allt gerst hratt.“
Ólíver segir að auk þess
njóti hann stuðnings fjöl-
skyldunnar og nefnir í því
sambandi að systkini hans,
Tómas Leó og Sylvía,
myndskreyti barnabæk-
urnar auk þess sem Sylvía
hafi komið að kápugerð
fyrstu bókarinnar. Krist-
inn Rúnar Kristinsson rit-
stjóri og Páll Gestsson
varastjóri gegni líka veiga-
miklum hlutverkum. „Við
Kristinn ætlum að skrifa
bók saman og við Páll erum að skrifa
saman barnabók sem kemur út á
næsta ári.“
Fríar heimsendingar
Ekki blæs beint byrlega í atvinnu-
rekstri um þessar mundir en Ólíver er
hvergi banginn. Hann segir að vissu-
lega séu aðstæður ekki þær ákjósan-
legustu. Vegna samgöngubannsins
geti hann ekki kynnt bókina í bóka-
verslunum en samfélagsmiðlar verði
óspart notaðir í staðinn og bókin send
frítt til kaupenda á meðan ástandið
helst óbreytt. „Þetta er mjög erfitt
verkefni en við erum spenntir fyrir
því að takast á við áskorunina,“ segir
Ólíver. Hann bætir við að hægt sé að
kaupa nýju bókina í forsölu á vefsíðu
útgáfunnar (leobokautgafa.is).
Stefnt er að því að gefa þrjár bæk-
ur eftir Ólíver út í ár. Í sumar er bók-
in Langafi minn Súpermann væntan-
leg og síðan jólabók eftir bræðurna
Ólíver og Tómas Leó, sem er tólf ára,
í haust.
Ólíver segist hafa skrifað bókina Í
hjarta mínu 2017. „Þá upplifði ég
versta tíma ævi minnar, var kominn
langt niður og sá ekki fyrir mér að líf-
ið gæti verið bjart.“
Hann segir ótrúlegt að sjá hvar
hann sé staddur núna í samanburði
við hvar hann var. „Þegar botninum
er náð er aðeins ein leið fær; upp,“
segir hann. „Bókin er kómedískur
harmleikur sem fjallar um mann sem
hefur gefist upp á lífinu. Systkini hans
reyna að ýta honum í átt að betri stað
og hann upplifir hluti sem hann gat
aðeins dreymt um á unga aldri, en
þessi þungi veggur togar hann samt
alltaf niður.“
Framlínusveitin Frá vinstri: Páll Gestsson varastjóri, Richard Vilhelm Andersen kerfisstjóri, Ólíver Þorsteinsson og
Kristinn Rúnar Kristinsson ritstjóri. Fyrir framan eru Tómas Leó Þorsteinsson og Sylvía Þorsteinsdóttir teiknarar.
Bjartsýni að leiðarljósi
Fyrsta bók nýs forlags Ólívers kemur út í vikunni
Bláu húsin v/Faxafen
Sími 553 7355 • www.selena.is • Selena undirfataverslun
Frí heimsending um allt land
* Undirföt
* Aðhaldsundirföt
* Nærföt
* Náttföt
* Náttkjólar
* Sloppar
* Sundföt
* Strandfatnaður
Höfum opnað vefverslun
selena.isMÁNUDAGUR 20. APRÍL 111. DAGUR ÁRSINS 2020
Sími: 569 1100
Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is
Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is
Í lausasölu 697 kr.
Áskrift 7.530 kr. Helgaráskrift 4.700 kr.
PDF á mbl.is 6.677 kr. iPad-áskrift 6.677 kr.
Í blaðinu í dag er kíkt á karlalið KR í knattspyrnu sum-
arið 1991. Þegar farið er yfir leikmannahópinn kemur í
ljós að átta leikmenn úr liðinu hafa síðar þjálfað lið í
efstu deild og sjö þeirra orðið Íslands- eða bikarmeist-
arar sem þjálfarar. Morgunblaðið hafði samband við
hinn þrautreynda þjálfara Guðna Kjartansson, sem
stýrði KR-liðinu sumarið 1991, og ræddi við hann vegna
þessarar athyglisverðu staðreyndar. Fimm þessara
þjálfara verða í sviðsljósinu þegar Íslandsmótið hefst í
júní eins og nú er áætlað. »26-27
Hélt Guðni eitt allsherjar þjálf-
aranámskeið sumarið 1991?
ÍÞRÓTTIR MENNING
Menningarhúsin í Kópavogi bjóða upp á fjölbreytta
menningardagskrá í streymi á netinu á meðan sam-
komubann stendur yfir og í dag, 20. apríl, kl. 13 mun
Ragna Fróðadóttir, textílhönnuður og myndlistarmaður
og bæjarlistamaður Kópavogs fyrir árið 2019, tala frá
New York um textíl og endurvinnslu hans. Sem bæjar-
listamaður Kópavogs hefur Ragna unnið að verki með
börnum úr 5. bekk Salaskóla og eldri borgurum í Kópa-
vogi. Verkið er samsett úr 84 útsaumuðum teikningum
í endurunnið efni. Verkið átti að sýna á Barnamenning-
arhátíð í Kópavogi en verður sýnt við fyrsta tækifæri
þegar allir eru komnir á ról aftur.
Fjallar um textíl og endurvinnslu