Morgunblaðið - 23.04.2020, Side 6

Morgunblaðið - 23.04.2020, Side 6
KÓRÓNUVEIRUFARALDUR6 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 2020 Café AUSTURSTRÆTI • SKÓLAVÖRÐUSTÍG • LAUGAVEGI • AKUREYRI • VESTMANNAEYJUM Við gætum fyllsta hreinlætis og fylgjum ráðleggingum um sóttvarnir í öllum okkar viðskiptum. Helgi Bjarnason Þorgerður Anna Gunnarsdóttir Heimilaðar verða takmarkaðar heimsóknir aðstandenda til íbúa á hjúkrunarheimilum eftir 4. maí næstkomandi. Aðeins einn aðstand- andi getur komið í heimsókn til hvers íbúa og þarf að bóka tíma fyrir fram. Heimsóknabann hefur verið á hjúkrunarheimilum frá 6. mars. Anna Birna Jensdóttir, formaður Samtaka fyrirtækja í velferðarþjón- ustu og framkvæmdastjóri hjúkr- unarheimilisins Sóltúns, kynnti áætlun vinnuhóps sem unnið hefur að útfærslu á því hvernig hægt er að aflétta heimsóknabanninu í áföng- um. Áætlunin er leiðbeinandi fyrir hjúkrunarheimilin og útfæra þau reglurnar, eftir aðstæðum á hverju heimili fyrir sig. Frekari rýmkun í júní Um 2.800 íbúar eru á hjúkrunar- heimilum og búast má við að þús- undir eða jafnvel tugir þúsunda að- standenda hafi hug á að heimsækja fólkið sitt. Því þarf að skipuleggja heimsóknirnar, að sögn Önnu Birnu. Áætlunin tekur til tveggja vikna. Miðað er við að ein heimsókn verði leyfð til hvers íbúa fyrri vikuna en ef til vill tvær seinni vikuna. Aðeins einn gestur getur komið í einu. Þarf viðkomandi að panta tíma fyrirfram og verður heimsóknum raðað niður á ákveðna heimsóknatíma út vikuna. Starfsfólk tekur á móti gesti og fylgir honum stystu leið til íbúa og sömu leið til baka að heimsókn lok- inni. Vonir eru bundnar við frekari rýmkun reglna í júní. Hjúkrunarheimilin kynna út- færslur sínar á heimasíðum og í bréfum til íbúa og aðstandenda fyrir 4. maí. „Þótt mikið hafi áunnist í baráttunni gegn Covid-19 erum við ekki komin í höfn og sýna þarf ýtr- ustu varkárni og virða sóttvarna- ráðstafanir í heimsóknum,“ segir meðal annars í tilkynningu Sóltúns. Gestir eru hvattir til að gæta vel að sóttvörnum. Anna Birna telur að erfiðast verði fyrir fólk að halda tveggja metra regluna því íbúar hjúkrunarheimila vilji gjarnan halda í hendur gesta sinna. Hún hvetur fólk til að njóta stundarinnar saman. Jafnframt verður opnað fyrir ein- staklingsmeðferð í iðjuþjálfun og sjúkraþjálfun og hársnyrtingu og fótsnyrtingu, með ákveðnum reglum. Meðal annars má fólk ekki koma utan úr bæ til að sækja þessa þjónustu á heimilunum. Fjöldi eftir landshlutum Óstaðsett 2 78 Útlönd 1 0 Austurland 8 21 Höfuðborgarsvæði 1.303 550 Suðurnes 77 31 Norðurland vestra 35 4 Norðurland eystra 46 28 Suðurland 177 67 Vestfirðir 94 92 Vesturland 42 27 Smit Sóttkví Uppruni smits Innanlands Óþekktur Erlendis 44.468 sýni hafa verið tekin 1.462 einstaklingar hafa náð bata 10 einstaklingar eru látnir 19 eru á sjúkrahúsi 5 á gjör-gæslu 313 eru í einangrun Fjöldi smita frá 28. febrúar til 20. apríl Heimild: covid.is 1.785 smit voru staðfest í gær kl. 13.00 1.785 313 feb. 1.650 1.375 1.100 825 550 275 þeirra sem hafa greinst voru í sóttkví 81% 54% 9,7% sýna tekin hjá LSH voru jákvæð og 0,6% sýna tekin hjá ÍE 18.425 hafa lokið sóttkví898 manns eru í sóttkví Staðfest smit Virk smit mars apríl Mega fá einn gest í fyrstu viku  Varfærin opnun á hjúkrunarheimilum tekur gildi 4. maí  Aðeins einn aðstandandi má koma og þarf að bóka tíma fyrir fram  Opnað fyrir sjúkraþjálfun og iðjuþjálfun og hársnyrtingu með takmörkunum Afmæliskaka „Maður fær bara tár í augun,“ sagði Víðir Reynisson á blaðamannafundi almannavarna í gær þegar Anna Birna Jensdóttir afhenti honum köku frá starfsfólki hjúkrunarheimilanna, í tilefni afmælis hans. Stefnt er að því að fjöldatak- markanir verði miðaðar við 100 manns í stað 50 við næsta þrep sem gæti orðið undir lok maí. Þá verði einnig sundlaugar og líkamsræktar- stöðvar opnaðar fyrir al- menning með vissum tak- mörkunum og að fjöldi gesta á kappleikjum og íþróttamót- um miðist við 100 einstak- linga. Kemur þetta fram í minnis- blaði sóttvarnalæknis til heil- brigðisráðherra. Tekið er fram að þessar ráðstafanir muni þó þurfa að miðast við stöðu faraldursins hér á landi. Endanleg ákvörð- un verður ekki tekin fyrr en reynsla er komin á þær breytingar sem taka gildi 4. maí næstkomandi, það er að segja undir lok maímánaðar. Þórólfur Guðnason sótt- varnalæknir sagði á blaða- mannafundi almannavarna í gær að með þessu vildi hann gefa fólki innsýn í hvað væri fram undan. 100 manns í næsta þrepi AFLÉTTING Í LOK MAÍ Þeir sem koma hingað til lands frá útlöndum næstu vikur, og eiga að vera í sóttkví, verða undir eftirliti. Þetta kom fram í máli Víðis Reynissonar og Þórólfs Guðna- sonar á upplýsingafundi almanna- varna vegna kórónuveirunnar í gær. Heilbrigðisráðherra auglýsti í gær breyttar reglur um sóttkví, að tillögu sóttvarnalæknis. Öllum sem koma til landsins er skylt að fara í fjórtán daga sóttkví. Gildir þetta um erlenda ferðamenn, ekki aðeins um fólk sem búsett er hér á landi eins og var í fyrri reglum. Til að framfylgja breyttum reglum verður tekið upp tímabund- ið landamæraeftirlit á innri landa- mærum. Reglurnar koma til fram- kvæmda á morgun, föstudag, og falla að óbreyttu úr gildi 15. maí. Sóttvarnalæknir telur eitt mikil- vægasta atriðið til að viðhalda góðri stöðu í baráttunni við kórónuveiru- faraldurinn hér og koma í veg fyrir frekari faraldur að tryggja að smit berist ekki frá öðrum löndum. Þeir sem hingað koma þurfa að framvísa alþjóðlegu heilbrigðisvott- orði og fylla út eyðublað með ýmsum upplýsingum, meðal annars um það hvar þeir hyggist taka út sóttkví. Sagði Víðir að þeir yrðu undir eftirliti og þau mál væru í skoðun. Verklag í tengslum við svona lagað væri til hjá lögreglunni, svo sem í kringum fólk sem sætir farbanni og er tilkynningarskylt og líklegast væri að eitthvað slíkt yrði notað við eftirlit með fólki í sóttkví. Hægt er að sækja um undan- þágur vegna sóttkvíar og geta er- lendir sérfræðingar sem hingað koma til að sinna sérstökum verk- efnum sem dæmi fengið að sæta sóttkví B með öðru fólki. Þórólfur segir fólki að hugsa sig tvisvar um áður en undanþágu er óskað, enda sé tilgangurinn að hindra að veiran komist aftur inn í landið. Tímabundið eftirlit á innri landamærum  Eftirlit verður haft með þeim sem eiga að vera í sóttkví Morgunblaðið/Eggert Flugstöð Ekki verður álagið mikið á lögreglumenn og tollverði sem fram- fylgja landamæraeftirliti gagnvart ríkjum í Schengen-landamærasamstarfinu.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.