Morgunblaðið - 23.04.2020, Blaðsíða 30
30 FRÉTTIRErlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 2020
Nýbýlavegur 8 – Portið, sími 847 1660, www.bambus.is, bambus@bambus.is
bambus.is bambus.is • Opið mánudaga og fimmtudaga frá kl. 10-14
úr silki
LEIKFÖNG
Enn „langt í land“ í baráttunni
WHO segir flest ríki enn vera á byrjunarstigi Önnur „bylgja“ mögulega skæðari en sú fyrri
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Alþjóðaheilbrigðisstofnunin, WHO,
varaði við því í gær að enn væri langt
í land í baráttunni gegn kórónuveir-
unni, jafnvel þótt nokkur ríki í Evr-
ópu séu þegar farin að létta á að-
gerðum sínum gegn henni.
„Ekki fara í neinar grafgötur: Það
er enn langur vegur fram undan.
Þessi veira verður meðal okkar í
langan tíma,“ sagði Tedros Adha-
nom Ghebreyesus, framkvæmda-
stjóri WHO, á blaðamannafundi sín-
um í gær. Tedros benti einnig á að
faraldurinn væri rétt að byrja í Afr-
íku og Suður-Ameríku, auk þess sem
nokkur ríki sem töldu sig hafa náð
stjórn á faraldrinum væru nú að sjá
aukningu tilfella á ný.
Rúmlega 2,6 milljónir manna hafa
nú smitast af kórónuveirunni svo vit-
að sé og meira en 180.000 manns dáið
af völdum hennar. Ghebreyesus
sagði á fundinum að hann teldi að
WHO hefði brugðist nógu hratt við,
en stofnunin lýsti yfir neyðarástandi
30. janúar. Vísaði Ghebreyesus því
gagnrýni um hægagang stofnunar-
innar á bug og hafnaði því að hann
ætti að segja af sér, en stjórnvöld í
Bandaríkjunum hafa verið sérstak-
lega gagnrýnin á stjórnarhætti Ghe-
breyesus.
Seinni bylgjan skæðari?
Bandaríkin hafa orðið einna verst
úti af ríkjum heimsins, en rúmlega
830.000 tilfelli hafa greinst þar og
meira en 45.000 manns hafa dáið í
Bandaríkjunum. Robert Redfield,
framkvæmdastjóri bandarísku sótt-
varnastofnunarinnar CDC, sagði í
samtali við Washington Post í gær
að Bandaríkjamenn þyrftu að búa
sig undir að kórónuveiran myndi
snúa aftur í haust.
„Sá möguleiki er fyrir hendi að
árás veirunnar á þjóð okkar næsta
vetur verði jafnvel enn erfiðari en sú
sem við vorum nú að ganga í
gegnum,“ sagði Redfield, en hann
óttast meðal annars hverjar afleið-
ingar þess verði ef kórónuveirufar-
aldur skelli á meðan aðrir öndunar-
færasjúkdómar eins og inflúensa séu
í hámarki.
Missouri-ríki ákvað í gær að höfða
skaðabótamál á hendur kínverskum
stjórnvöldum þar sem þau hefðu vilj-
andi reynt að villa um fyrir fólki og
ekki gripið til nægilegra aðgerða til
að koma í veg fyrir faraldurinn. Kín-
versk stjórnvöld brugðust illa við og
sögðu málshöfðunina „fáránlega“.
AFP
Grímur Tískuhönnuðurinn Wolfgang Schinke mátar „tískugrímu“ á gínu,
en hann hyggst selja grímur sínar og ánafna 10% ágóða til góðgerðarmála.
Bandaríkjastjórn hét því í gær að
írönskum stjórnvöldum yrði refsað,
eftir að byltingarverðirnir, úrvals-
sveitir íranska hersins, tilkynntu að
þeir hefðu skotið njósnahnetti á spor-
baug um jörðu. Hossein Salami, yfir-
maður byltingarvarðarins, sagði í
gær að eldflaugaskotið markaði upp-
haf Írans sem heimsveldis.
Spennan milli Bandaríkjanna og
Írans hafði svo aftur áhrif á olíuverð,
sem hækkaði á ný eftir að hafa hrapað
gríðarlega fyrri hluta vikunnar. Var
ein ástæða hækkunarinnar rakin til
þess að Donald Trump Bandaríkja-
forseti heimilaði í gær bandaríska
flotanum að sökkva írönskum hrað-
bátum ef þeir kæmu of nálægt banda-
rískum herskipum, en Bandaríkja-
menn kvörtuðu í síðustu viku yfir því
að hraðbátarnir væru að trufla störf
flotans í og við Persaflóa.
Sýni að ekki sé þörf á láni
Mike Pompeo, utanríkisráðherra
Bandaríkjanna, sagði að eldflauga-
skot Írana sannaði einungis að geim-
ferðaáætlun þeirra væri ekki hugsuð í
vísindalegum tilgangi, heldur væri
henni ætlað að þróa langdrægar eld-
flaugar sem meðal annars gætu borið
kjarnorkuvopn.
„Ég tel að Íranar verði að bera
ábyrgð á gjörðum sínum,“ sagði
Pompeo í gær. Hann bætti við að eld-
flaugaskotið sýndi svo um munaði að
Íranar hefðu ekki komið fram af heil-
indum þegar þeir sóttu um neyðarlán
til Alþjóðagjaldeyrissjóðsins upp á
fimm milljarða bandaríkjadala vegna
kórónuveirufaraldursins. Um 86.000
manns hafa smitast af veirunni í Íran
samkvæmt opinberum tölum og rúm-
lega 5.400 látist, en talið er að stjórn-
völd í Teheran hafi ekki greint frá öll-
um tilfellum eða andlátum.
„Ég vona að írönsk stjórnvöld
hlusti á kröfur írönsku þjóðarinnar
um að forgangsraða fjármunum sín-
um rétt, fjármunum sem stjórnvöld
ráða greinilega yfir.“
Hótanir hækka olíuverðið
Íranar skjóta
njósnahnetti á loft
og auka á spennu
AFP
Skot Eldflaugaskot Írana jók á
spennuna við Persaflóa.
Kórónuveirufaraldurinn hefur sett
mikinn svip á flestar stórborgir
heimsins í vor. Götur og torg sem
áður iðuðu af lífi og mannfjölda
standa nú auð og yfirgefin, og varla
er hræðu að sjá.
AFP-fréttastofan reiknaði út fyrr
í mánuðinum að rúmlega helm-
ingur mannkyns byggi nú við ein-
hvers konar takmarkanir vegna
kórónuveirunnar, hvort sem um
væri að ræða strangt útgöngubann
eða einföld tilmæli til fólks um að
það héldi sig sem mest heima fyrir
og forðaðist mannamót.
Áhrifin eru hins vegar víðast
hvar hin sömu. Það skiptir litlu
hvort horft er til Lundúna, Moskvu,
New York eða Parísar, alls staðar
bíða strætin tóm, og líklega verður
vorsins 2020 minnst sem vors hinna
auðu stræta og torga.
AFP
London Nelson flotaforingi hefur sjaldan verið jafn einmana á Trafalgartorgi og í vor.
AFP
París Þessi feðgin voru meðal örfárra sem gengu um Trocadero-torgið í París á mánudaginn.
AFP
Istanbúl Þessi kisi vappaði einn um götur Istanbúl-
borgar í vikunni þegar útgöngubann tók þar gildi.
Vor hinna tómu
stræta og torga
AFP
Róm Frans páfi messaði yfir og blessaði þá fáu sem
lögðu leið sína á Péturstorgið í Róm á annan í páskum.