Morgunblaðið - 23.04.2020, Blaðsíða 16
16 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 2020
Tjarnargata 4, 3. hæð | Sími 546 1100 | investis@investis.is | www.investis.is
Umsjón með samningaviðræðum og gerð kaupsamninga.
Við greinum fjárhag og rekstur fyrirtækja og önnumst
fjármögnun og fjárhagslega endurskipulagningu þeirra.
Haukur Þór Hauksson – haukur@investis.is – Gsm. 893 9855
Thomas Möller – thomas@investis.is – Gsm. 893 9370
Steinn Haukur Hauksson – steinn@investis.is – Gsm. 849 8360
Í-MAT ehf.
JG ehf.
Hér eru nokkur dæmi um verkefni þar sem Investis hefur annast ráðgjöf við sölu, sameiningar eða aðkomu fjárfesta á undanförnum árum:
KAUP, SALA OG
SAMEINING FYRIRTÆKJA
aðeins þriðjungur hópsins skilaði
sér þá, fjórtán menn. Nils segir að
þeir vinni að því að koma efninu á
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Þótt veturinn hafi verið erfiður til
verklegra framkvæmda stendur
lagning Kröflulínu 3 ágætlega.
Kórónuveirufaraldurinn hefur ekki
haft teljandi áhrif á vinnuna. Enn er
stefnt að því að taka línuna í rekstur
fyrir lok ársins. Þá er unnið að loka-
undirbúningi framkvæmda við Hóla-
sandslínu 3 og verið að bjóða út
fyrstu verkþætti.
Framkvæmdir hófust við Kröflu-
línu 3 á síðasta ári en hún liggur frá
Kröflu að Fljótsdalsstöð og er liður í
endurnýjun byggðalínunnar á milli
Norðurlands og Austurlands.
Jarðvinna og undirstöður mastra
voru boðin út í þrennu lagi og er því
unnið á þremur framkvæmdasvæð-
um. Vinnan er aðeins á eftir áætlun,
að sögn Nils Gústavssonar, fram-
kvæmdastjóra framkvæmda- og
rekstrarsviðs Landsnets. Ástæðan
er fyrst og fremst erfiður vetur.
Mikil snjóalög og hörð veður voru í
vetur og nú eru komnar vorleysing-
ar. Þá var einn verktakinn með er-
lenda starfsmenn sem þurftu að fara
heim vegna kórónuveirufaraldurs-
ins.
Byrjað að reisa möstrin
Bosníska fyrirtækið Elnos sem
tók að sér að setja saman möstrin,
reisa þau og strengja vírana, hóf
sína vinnu í haust og reisti þá nokk-
ur möstur. Fyrirtækið hugðist koma
með mannskapinn um páskana en
rétta staði og setja möstrin saman.
Ekki sé þörf á fleirum núna en von
sé á þrjátíu manns til viðbótar eftir
mánaðamótin. Erlendu verkamenn-
irnir fara í læknisskoðun og sóttkví,
samkvæmt reglum yfirvalda. Þeir
búa og starfa á afskekktum stöðum
og fengu að ljúka sóttkví sinni á
vinnustaðnum. Mikið verk er fram-
undan hjá þessum hópi því 330
möstur eru í línunni.
„Við stefnum enn að því að koma
línunni í rekstur í lok árs,“ segir
Nils.
Vinna boðin út með fyrirvara
Landsnet auglýsti um síðustu
helgi útboð á jarðvinnu við lagningu
Hólasandslínu 3 sem liggur frá
Akureyri að tengivirki á Hólasandi.
Nils segir að það sé gert með þeim
fyrirvörum að öll leyfi fáist í tíma.
Mikilvægt sé að hefja jarðvinnu í
sumar ef takast eigi að ljúka lagn-
ingu línunnar í lok næsta árs.
Unnið er að hönnun línunnar,
skipulags- og leyfismálum og samn-
ingum við landeigendur. Segir Nils
að öll þessi vinna gangi ágætlega
enda almenn sátt um framkvæmd-
ina.
Fyrstu 10 kílómetrar línunnar
verða í jarðstreng undir þveran
Eyjafjörð. Byrjað er að undirbúa þá
framkvæmd sem er nokkuð flókin,
enda um 220 kílóvolta jarðstreng
að ræða. Hver lína er með þrjá fasa
og lagt er tvöfalt strengsett sem
þýðir að Landsnet þarf að kaupa 60
km streng. Er verið að undirbúa út-
boð á strengnum. Þá er fyrirtækið
að flytja inn stál í undirstöður og
semja um smíði á öðru efni til þess
að ekki strandi á því ef hægt verður
að hefjast handa í sumar eins og
Landsnet stefnir að.
Tafir vegna vetrarveðra
Lagningu Kröflulínu 3 miðar vel þrátt fyrir erfiðan vetur og kórónuveiru Enn er stefnt að því að
taka hana í notkun í lok ársins Reynt að hefja framkvæmdir við Hólasandslínu 3 í sumar
Ljósmynd/Aðsend
Framkvæmdir Unnið við undirstöður tveggja háspennumastra við þjóðveginn um Víðidal, við Vegaskarð.
Sigtryggur Sigtryggsson
sisi@mbl.is
Óvissa ríkir um það hve margir kjósa
að standa fyrir götu- og torgsölu í
Reykjavík á komandi sumri. Aðstæður
eru gjörbreyttar frá í fyrra. Takmark-
anir hafa verið í gildi vegna kórónu-
veirunnar og útlit fyrir stórfækkun er-
lendra ferðamanna.
Opnað var fyrir umsóknir fyrir
götu- og torgsölu í febrúar. Sam-
kvæmt upplýsingum Jóns Halldórs
Jónassonar, upplýsingafulltrúa hjá
Reykjavíkurborg, liggja fyrir 11 um-
sóknir um tímabilið 1. maí til 1. júlí
vegna markaðssölu einyrkja. Lág-
markstími er tveir mánuðir. Allt árið í
fyrra voru gefin út leyfi til 25 söluaðila.
Yfirleitt er aukning umsókna yfir há-
sumarið og fram á haust, að sögn Jóns
Halldórs.
Sölutjöldin í Austurstræti, sem eru
hugsuð fyrir markaðssölu einyrkja,
verða sett upp fljótlega eftir 4. maí og
þá skapist betri aðstæður fyrir sölu-
aðila í miðbænum.
Umsóknir vegna dag- og nætur-
sölu á matvælum eru nú níu talsins, en
í ár er sótt um til tveggja mánaða að
lágmarki í senn. Í fyrra var tímabilið
lengra og fengu 12 söluaðilar ársleyfi.
Þar af voru sex vagnar með leyfi til
dagsölu og sex til nætursölu. Opið er
fyrir umsóknir á reykjavik.is/torgsala.
Fyrirkomulag á úthlutun leyfa hef-
ur breyst samkvæmt nýjum reglum
sem samþykktar voru í borgarráði
fyrr á þessu ári. Nú ræðst ekki lengur
eingöngu af því hvenær sótt er um
heldur verður tekið tillit til nokkurra
þátta sem eru: Fjölbreytni framboðs
vöru og þjónustu, útlit á söluaðstöðu
og að góð reynsla sé af sambærilegri
starfsemi umsækjanda.
Götusala er leyfisskyld og tekur til
hvers kyns sölustarfsemi sem fer fram
á almannafæri utanhúss svo sem á
torgum, gangstéttum og í almennings-
görðum. Minniháttar góðgerðarsölur,
líkt og tombólur barna og ungmenna,
eru ekki leyfisskyldar. Minnt er á að
öll matsala er leyfisskyld hjá Heil-
brigðiseftirliti Reykjavíkur.
Ljósmynd/Reykjavíkurborg
Miðbakki Matarvagnar voru starfandi við gömlu höfnina í fyrrasumar.
Fyrstu sölutjöldin
sett upp fljótlega
Óvissa um umfang götu- og torgsölu