Morgunblaðið - 23.04.2020, Blaðsíða 35
UMRÆÐAN 35
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 2020
Fögnum sumri!
20% afsláttur af sólgleraugum
Þann 17. apríl sl.
sendi stjórn Eyþings/
SSNE frá sér yfirlýs-
ingu í tilefni af viðtali
við mig sem birtist í
Morgunblaðinu daginn
áður og varð að frétta-
efni í öðrum miðlum.
Grunnurinn að þessari
umfjöllun er mál sem
ég höfðaði gegn Ey-
þingi, mál nr. E-59/2019
við Héraðsdóm Norðurlands eystra. Í
málinu var gerð dómsátt að loknum
vitnaleiðslum við aðalmeðferð málsins
27. janúar sl. Með dómsáttinni var
rekstri málsins fyrir dómi lokið og
mér greiddar 14,8 m.kr. í bætur
(skaðabætur, miskabætur og máls-
kostnaður). Það er grundvallaratriði
málsins. Ástæða þess að ég opnaði á
umræðu um málið með bréfi til sveit-
arstjórna 9. mars sl. og með viðtali í
Morgunblaðinu 16. apríl var sú þögg-
un sem var um málið eftir að niður-
staða dómsáttar lá fyrir. Þetta er mál
um mistök í stjórnsýslu sem mik-
ilvægt er að draga lærdóm af. Það
verður ekki gert með þögninni.
Stjórnin setur í yfirlýsingu sinni
fram athugasemdir í sjö liðum sem að
miklu leyti eru órökstuddar ávirð-
ingar á hendur undirrituðum. Óhjá-
kvæmilegt er að ég geri alvarlegar at-
hugasemdir við þá fullyrðingu að
stjórn Eyþings hafi aldrei sakað mig
um kynferðislega áreitni á vinnustað
og orðið kynferðisleg áreitni sé frá
mér sjálfum komið. Hverjum í ósköp-
unum dettur það í hug að ég hafi fund-
ið það upp hjá sjálfum mér að halda
því fram að ég hafi verið sakaður um
kynferðislega áreitni? Það er mesti
viðbjóður sem á mig hefur verið bor-
inn. Stjórnin í heild ber ábyrgð á þeim
orðum sem formaður og
varaformaður láta falla í
umboði stjórnar.
Það sem fram kom í
áðurnefndu viðtali bygg-
ist á því sem kom fram í
opnu réttarhaldi fyrir
Héraðsdómi Norður-
lands eystra þann 27.
janúar sl. Vitnaleiðsla er
mikilvægur hluti af rétt-
arkerfi í lýðræðissam-
félagi. Dómari áminnir
vitnið um að segja satt
og rétt frá og draga ekk-
ert undan sem máli skiptir. Rangur
framburður fyrir dómi er mjög alvar-
legur hlutur og tekið hart á slíku ef
upp kemst. Meðal þess sem kom fram
í framburði vitna var að formaður og
varaformaður stjórnar Eyþings hefðu
haldið því fram að þær ásakanir sem á
mig voru bornar fælu í sér kynferðis-
lega áreitni og alvarlegt MeToo-mál.
Um þetta vitnaði ég einnig sjálfur.
Einnig kom fram í vitnaleiðslu að
önnur af tveimur samstarfskonum
mínum var beðin um að senda stjórn-
inni skriflega kvörtun vegna sam-
skipta við mig svo stjórnin hefði eitt-
hvað til að koma mér frá. Fyrir liggur
að hún varð við þessari beiðni en lík-
lega reyndist umbunin rýrari en
vænst hafði verið.
Hvað felst í undirskriftum þess
fólks sem skrifar undir yfirlýsingu
stjórnar? Hvað er það að staðfesta?
Aðeins hluta af þessu fólki hef ég
kynnst og við suma aldrei átt samtal.
Aðeins formaður og varaformaður
voru á þeim fundi þar sem mér og
trúnaðarmanni mínum voru kynntar
ávirðingar á hendur mér. Aðeins Hilda
Jana Gísladóttir formaður var við að-
almeðferð málsins fyrir Héraðsdómi
Norðurlands eystra, auk þess sem
varaformaður og fyrri formaður voru
leiddir fram sem vitni af hálfu Ey-
þings. Þetta er sérkennilegt. Að mínu
viti felur undirskrift í sér mikla
ábyrgð og það hjá opinberu stjórn-
valdi.
Vegna þess sem fram kemur í yfir-
lýsingu stjórnar um að ekki hafi tek-
ist að gera við mig starfslokasamning
vil ég taka fram að samningar strönd-
uðu ekki á peningum. Samningar
strönduðu á kröfu minni um afsök-
unarbeiðni vegna þeirra ávirðinga
sem á mig höfðu verið bornar. Æran
er mér dýrmæt.
Með því að setja fram að Eyþing
hafi lengi glímt við stjórnunar- og
rekstrarvanda er væntanlega verið
að láta í það skína að sá vandi hafi
verið af mínum völdum. Þetta atriði
hefur þó ekkert með lögmæti upp-
sagnar og málsmeðferð að gera í máli
mínu. Sama á því við um dómsáttina.
Þær aðdróttanir sem felast í þessari
athugasemd stjórnar eru í raun efni í
ítarlega úttekt og greiningu. Þá er ég
að tala um viðameiri úttekt en spjall
við stjórnarmenn. Stjórn Eyþings
ætti að fara sér varlega í að álykta að
niðurstaða af slíkri úttekt yrði öll
henni í hag.
Þetta mál sem snýr að mér og hef-
ur verið til umfjöllunar er í heildina
efni í heila bók. Eðlilegt er að fólk
spyrji fyrir hvað stjórn Eyþings er að
greiða fyrrverandi framkvæmda-
stjóra bætur?
Æran er mér dýrmæt
Eftir Pétur Þór
Jónasson » Þetta er mál um mis-
tök í stjórnsýslu sem
mikilvægt er að draga
lærdóm af. Það verður
ekki gert með þögninni.
Pétur Þór Jónasson
Höfundur er fyrrverandi
framkvæmdastjóri Eyþings –
sambands sveitarfélaga í Eyjafirði
og Þingeyjarsýslum.
Bænin gerir okkur
meðvitaðri um okkur
sjálf, samferðafólk okk-
ar og umhverfi. Hún
fær okkur til að átta
okkur á hver við erum
og hvert við raunveru-
lega viljum stefna.
Um leið og bænin
skerpir á núvitund fær-
ir hún okkur von og ei-
lífa lífssýn. Málið er
nefnilega að lifa í núinu en njóta þess í
ljósi eilífðarinnar.
Bæn til Guðs er ekki einhver veru-
leikafirring. Bænin er að koma hugð-
arefnum sínum, áhyggjum og van-
mætti út úr sjálfum sér og leggja það
sem á okkur hvílir hverju sinni á
herðar Jesú Krists, frelsara okkar,
samkvæmt hans tilboði.
Hans sem léttir byrðar og gefur frið
sem fæst hvorki keyptur né seldur en
er raunverulegur hjartafriður æðri öll-
um mannlegum skilningi.
Með bæninni gerum við okkur betur
grein fyrir ástandi okkar. Komum orð-
um að því og fáum sjálfan höfund og
fullkomnara lífsins, kærleikans og frið-
arins í lið með okkur. Hann sem elskar
okkur út af lífinu.
Bænin er dýrmætur og dásamlegur
lykill að friði og jafnvægi í huga og
hjarta. Því að læra að njóta í þakklæti.
Hún er bæði kvíðastillandi og streitu-
losandi.
Máttur bænarinnar
Bænin kallar eftir og eflir samstöðu.
Reynslan sýnir að það verður allt eitt-
hvað svo miklu betra með bæninni.
Bænin er nefnilega magnað undra-
tæki sem vekur einhvern óskiljanlegan
undrakraft sem líknar og læknar með
ófyrirséðum hætti, þrátt fyrir allt. Og
gefur himneskan frið í
hjarta þegar allt virðist
jafnvel ætla að fara á
verri veg.
Biðjum fyrir:
Þeim sem nýlega eða
einhvern tíma hafa misst
og vita því af eigin raun
hvað það er að syrgja og
sakna.
Biðjum einnig fyrir
þeim sem orðið hafa fyrir
hvers kyns vonbrigðum
eða hafa upplifað áföll og gengið í gegn-
um erfiða tíma. Biðjum Guð að vera
þeim nálægur, umvefja þau, uppörva
og styrkja.
Biðjum fyrir samstarfsfólki okkar og
samferðafólki almennt. Heimsbyggð-
inni allri og ástandinu í heiminum og
þeim sem við þurfum að eiga samskipti
við.
Gleymum svo ekki að biðja daglega
fyrir okkar nánustu fjölskyldu og vin-
um og hvað þá okkur sjálfum.
Biðjum ekki síst fyrir þeim sem dag-
lega ganga til sinna hversdagslegu
verka, jafnvel í breyttu ástandi, og
heyja þannig sína stöðugu lífsbaráttu.
Já, biðjum fyrir öllum þeim sem
elska lífið, þrá að höndla það, fá að vera
með, halda í það og njóta þess með ein-
hverjum ásættanlegum hætti án þess
að missa sig í eitthvað.
Með kærleiks-, samstöðu- og frið-
arkveðju.
– Lifi lífið!
Bænin eflir samstöðu
Eftir Sigurbjörn
Þorkelsson
Sigurbjörn Þorkelsson
» Bænin er bæði
kvíðastillandi og
streitulosandi.
Höfundur er ljóðskáld og rithöfundur
og aðdáandi lífsins.