Morgunblaðið - 23.04.2020, Blaðsíða 1
F I M M T U D A G U R 2 3. A P R Í L 2 0 2 0
Stofnað 1913 95. tölublað 108. árgangur
GERÐU GÓÐ KAUP FYRIR HELGINA Í NÆSTU VERSLUN NETTÓ!
Marineraðar
lambakótilettur
Kjötsel
1.679KR/KG
ÁÐUR: 2.799 KR/KG
Grísagrillsneiðar
Marineraðar - Kjötsel
893KR/KG
ÁÐUR: 1.489 KR/KG
-40% -40% -50%
Lægra verð - léttari innkaup Tilboðin gilda 23. - 26. apríl
Kiwi
249KR/KG
ÁÐUR: 498 KR/KG
VALDÍS ÆFIR
PÚTTIN HEIMA
Í STOFUNNI MUSTERIÐ ORÐIÐ 70 ÁRA
LÆTUR SÉR
EKKI LEIÐAST
HEIMA
VÍGVÖLLUR HUGMYNDA 60 FERÐAST INNANDYRA 12ÍÞRÓTTIR 59
Helgi Bjarnason
helgi@mbl.is
Staðan er þung hjá mörgum sveitar-
félögum, sérstaklega þar sem algert
hrun er að verða í atvinnulífinu, að
mati Aldísar Hafsteinsdóttur, for-
manns Sambands íslenskra sveitar-
félaga. Hún segir að klæðskerasníða
þurfi lausnir miðað við stöðu sveitar-
félaga.
Þingmenn úr stjórnarandstöðunni
gagnrýndu lítinn hlut sveitarfélaga í
efnahagsaðgerðum ríkisstjórnarinn-
ar sem kynntar voru í fyrradag. Logi
Einarsson, formaður Samfylkingar-
innar, sagði að ríkisstjórnin yrði að
stíga miklu fastar til jarðar í stuðningi
við sveitarfélögin í ljósi mikilvægrar
þjónustu þeirra við nærsamfélagið.
Sigurður Ingi Jóhannsson, ráðherra
sveitarstjórnarmála, lagði á það
áherslu að staða sveitarfélaganna
væri misjöfn. Nefndi hann að unnið
væri að verkefni varðandi Suðurnesin
og Byggðastofnun hefði verið falið að
greina stöðu annarra sveitarfélaga.
Sveitarfélögin á höfuðborgarsvæð-
inu hafa lagt til að 50 milljarðar verði
veittir til sveitarfélaganna til þjón-
ustu og framkvæmda og þeim verði
dreift jafnt miðað við fjölda íbúa. Ráð-
herra sagði að þetta þýddi að sveitar-
félög sem skilað hefðu milljörðum í
hagnað á undanförnum árum treystu
sér ekki til að fara í gegnum hugs-
anlegan eins milljarðs taprekstur á
næsta ári á meðan algert tekjuhrun
væri hjá öðrum.
Krefjast aðkomu
Aldís Hafsteinsdóttir segir að
sveitarfélögin krefjist þess að koma
að borðinu þegar ráðstafanir eru
gerðir vegna ástandsins í þjóðfélag-
inu. Í gær hafi verið ákveðið að víkka
út og efla samráðsnefnd um opinber
fjármál, meðal annars til að meta í
sameiningu hvaða kostnaður bætist á
sveitarfélögin og hvert yrði tekjufall
þeirra.
Þung staða sveitarfélaga
Afar erfið staða sveitarfélaga þar sem hrun er í atvinnulífinu Unnið að grein-
ingu á stöðunni Ráðherra veltir fyrir sér þörf þeirra sem hafa mikinn hagnað
Ekki lofað upp í ermina
» Sveitarfélögin hafa ákveðið
að fresta innheimtu fasteigna-
gjalda og grípa til fleiri ráðstaf-
ana. Þá minnka tekjur þeirra.
» Aldís Hafsteinsdóttir vill
ekki taka undir þau orð að
sveitarfélögin hafi lofað upp í
ermina á sér en viðurkennir að
reksturinn verði þungur, sér-
staklega þar sem erfiðleikarnir
eru mestir í atvinnulífinu.
Vegna óvissunnar af völdum kór-
ónuveirunnar hafa fulltrúar Sjó-
mannasambands Íslands og Sam-
taka fyrirtækja í sjávarútvegi
sammælst óformlega um að setja
viðræður um endurnýjun kjara-
samninga til hliðar. Valmundur Val-
mundsson, formaður Sjómanna-
sambandsins, á ekki von á að við-
ræðurnar verði teknar upp á nýjan
leik fyrr en í haust. „Ástandið er
þannig og óvissan mikil. Það gengur
erfiðlega að selja afurðir og við vit-
um ekkert hvernig þetta fer. Það er
ekki skriflegt samkomulag um það
en allir eru þokkalega sammála um
að við gerum ekkert í þessum málum
á meðan ástandið er svona,“ segir
hann. Unnið er sameiginlega að ýms-
um ráðstöfunum vegna faraldursins,
m.a. er mælst til að skipverjar séu
um borð milli túra svo ekki komi upp
smit um borð í fiskiskipum. »18
Morgunblaðið/Ófeigur
Smitgát Skipverjar eiga að vera um
borð á milli túra til að forðast smit.
Viðræður
sjómanna
settar á ís
Erfiðum vetri er lokið, að minnsta kosti ef miða á
við síðasta vetrardag sem var í gær, samkvæmt
dagatalinu. Sumardagurinn fyrsti er fyrsti
dagur Hörpu, sem er fyrstur af sex sumarmán-
uðum í gamla norræna tímatalinu. Veðurstofan
spáir ágætu veðri um allt land næstu daga. Hætt
er við skúrum vestanlands en bjart og þurrt á
Norðausturlandi. Börnin á leikskólanum
Tjarnarborg eru búin undir hvaða veður sem er.
Morgunblaðið/Eggert
Gleðilegt sumar!
Dr. Carl
Baudenbacher,
fyrrverandi for-
seti EFTA-
dómstólsins,
gagnrýnir
Norðmenn
harðlega fyrir
framgöngu í
EES-samstarf-
inu í grein í
Morgunblaðinu
í dag. Segir Baudenbacher að
norsk stjórnvöld hafi staðið í vegi
fyrir því að endurbætur yrðu
gerðar á dómarkipan EFTA-
dómstólsins. Það hafi þeir gert til
að þeim væri kleift að koma að
fólki sem búast megi við að standi
vörð um hagsmuni Noregs í dóm-
störfum.
„Þetta verður að breytast,“
segir hann í greininni. »36
Gagnrýnir Norð-
menn harðlega
Carl
Baudenbacher