Morgunblaðið - 23.04.2020, Blaðsíða 45
Dóra Júlía
dorajulia@k100.is
Á tímum sem þessum getur verið upp-
byggilegt að grípa í speki frá vitrum ein-
staklingum í þeim tilgangi að láta hana hjálpa
sér í gegnum erfiðleika. Erfiðleikarnir geta
þroskað okkur svakalega, dýpkað okkur sem
einstaklinga og fengið okkur til þess að
kunna betur að meta allt það sem í kringum
okkur er. Í gær hitti ég besta vin minn í
göngutúr og ég hef ekki séð hann í tæpan
mánuð, en áður en allt skall á hittumst við á
hverjum einasta degi. Það var svo ótrúlega
skemmtilegt að hitta hann og ræða um lífið
og tilveruna og eitthvað sem áður var hvers-
dagslegt, eins og að hitta besta vin sinn, varð
að algjörum forréttindum og að einhverju
sem mér þykir alveg ómetanlega verðmætt.
Við ræddum meðal annars um
það hvað litlu hlutirnir séu allt í
einu orðnir magnaðir, og að þeir
hafi líklega alltaf verið frekar
magnaðir en við gáfum okkur
kannski aldrei almennilega tíma til
þess að staldra við og átta okkur á
þeim. Ég læri svo ótrúlega mikið
af fólki í kringum mig og það
mótar mig svo ofboðslega
mikið sem einstakling. Mig
langar að deila með ykkur smá tilvitnun í
engan annan en Dalai Lama, en ég rakst á
hana á Facebook um daginn.
Þar skrifar hann að tilgangur lífsins sé að
vera hamingjusamur og að það sé það sem
allar manneskjur eigi sameiginlegt, óskin um
að lifa hamingjusömu lífi. Margir telja að
hamingjuna sé að finna utan við okkur ein-
staklingana í veraldlegum hlutum en að mati
Dalai Lama er hún í raun eitthvað sem kem-
ur að innan, frá hjartahlýju og umhyggju í
garð annarra. Þannig að heilræði mitt, eða
í raun heilræði Dalai Lama, fyrir daginn í
dag er að leita ekki langt yfir skammt,
gefum okkur smátíma til þess að finna
fyrir hamingjunni innan frá og leyfum
henni að gera daginn okkar betri.
Annars óska ég ykkur gleðilegs
sumars, farið vel með ykkur, knúsið
ykkur sjálf þar sem þið megið ekki
knúsa aðra og munið að vonin er
alltaf með okkur!
Ljósi punkturinn með Dj Dóru Júlíu
Litlu hlutirnir verða stærri
AFP
Hamingja Dalai Lama segir tilgang lífsins
vera að lifa hamingjusömu lífi og að það að
vera hamingjusamur sé sameiginleg ósk
alls mannkyns.
Dj Dóra Júlía finnur ljósa punkt-
inn í tilverunni og flytur góðar
fréttir reglulega yfir daginn í
útvarpinu og á vefnum. Fylgstu
með á K100 og á k100.is.
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 2020
Lækjargata 34a / 220 Hafnarfjörður
- Við erum hér til að aðstoða þig! -
• Sérsmíðaðir skór
• Skóbreytingar
• Göngugreiningar
• Innleggjasmíði
• Skóviðgerðir
Erum með samning við
sjúkratryggingar Íslands
Tímapantanir
í síma 533 1314
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
Einar Bárðarson er einn skipuleggjenda
stóra plokkdagsins sem verður haldinn á
laugardaginn kemur en hann segist sér-
staklega hafa leitað ráða hjá þríeykinu;
Ölmu Möller landlækni, Víði Reynissyni yf-
irlögregluþjóni og Þórólfi Guðnasyni sótt-
varnalækni, um það hvort ráðlegt væri að
halda slíkan dag í núverandi ástandi. Hann
staðfestir að margir hafi verið hikandi yfir
því hvort verkefnið væri brot á samkomu-
banni sem er í gildi hér á
landi.
Fékk samþykki
þríeykisins
„Ég endaði bara á því að
hringja í Víði og bað hann
um að bera þetta undir
þremenningana og taka
þetta inn á fund. Við feng-
um þau svör að svo lengi
sem fólk virðir 20 manna regluna og tveggja
metra bilið þá væri þetta ekkert mál,“ sagði
Einar í samtali við Ísland vaknar á dög-
unum. Vildi hann hvetja sem flesta til að
taka þátt í deginum.
Sagði Einar að plokkarar fyndu töluverð-
an mun eftir að löggjöf var sett hér á landi í
fyrra sem bannar afhendingu plastpoka í
verslunum án endurgjalds.
„Fullt af fólki talaði um að þetta væri
hreinlega frelsissvipting og mannréttinda-
brot að hafa afskipti af því hvaða poka fólk
ætti að nota. En bara á einni nóttu fóru allir
að nota fjölnota poka,“ sagði Einar. „Feg-
urðin er fólgin í því að þetta rusl og þessir
pokar eru bara farnir og það er stórkost-
legt,“ sagði hann.
Hægt er að nálgast allar upplýsingar um
stóra plokkdaginn á Facebook-hópnum
„Plokk á Íslandi“.
Fegurðin er fólgin í
brotthvarfi plastpokanna
Ljósmynd: Samsett Arnold Bj
Plokkari Einar Bárðarson er einn
skipuleggjenda stóra plokkdagsins
sem haldinn verður á laugardaginn.
Stóri plokkdagurinn verður haldinn næstkomandi laugardag, 25. apríl,
á degi umhverfisins og munu þá plokkarar landsins taka sig saman og
tína rusl af götum landsins, en þó með tveggja metra millibili.