Morgunblaðið - 23.04.2020, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 23.04.2020, Blaðsíða 33
33 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 2020 Laugavegur Í fjarveru ferðamannanna er mannlífið óneitanlega fábreyttara á aðalverslunargötu höfuðborgarinnar. Verslunareigendur fagna sérhverjum sem þangað leggur leið sína. Árni Sæberg Það er undarlegt að senda Þjóðleikhúsinu afmæliskveðju á und- arlegum tímum. Þetta er þó ekki í fyrsta skipti að leikhúsum er lokað vegna pestar- innar og alltaf rís leik- húsið upp aftur og opnar sín gullnu hlið. Í dag eru sjötíu ár frá því að fyrsta leik- konan stóð á sviðinu og sagði: Komi þeir sem koma vilja. En lengra er þó frá því að hug- myndin fæddist; að koma hér upp fastri senu til að efla vitundina um að við værum Íslendingar og til að mennta þjóðina með göfugri list. Þar stóð upp Sigurður Guð- mundsson málari í hópi félaga sinna í menningarfélaginu Kvöldfélaginu, sem lét sér engin framfaramál vera óviðkomandi. Hann hafði vísað á brautina með leiksýn- ingum þar sem fyrstu íslensku leikmynd- irnar birtust. Leikstarfsemin efldist, ekki síst úti um allt land. Og meðan aðeins örfáir spreyttu sig á skáldsöguforminu, þá voru tugir manna sem sömdu fyrir þá tíma frambærilega sjónleiki, jafnvel fyr- ir okkar tíma. Þannig leið öldin. Snemma á tuttugustu öld kvaddi sér hljóðs einn lærisveina mál- arans, Indriði Einarsson. Sagði kominn tíma á umrætt Þjóðleikhús og benti á dæmi annarra siðmennt- aðra þjóða. Er leið á annan áratug- inn og íslensk skáld voru jafnvel farin að skrifa fyrir leiksvið heims- ins sögðu þeir sem um leikina fjöll- uðu í blöðunum að nú væri listræn geta íslenskra leikara komin á það stig að þeim væru ekki bjóðandi þær aðstæður sem þeir byggju við. Aftur skrifaði Indriði og nú hlýddu margir eftir þessari hugsun. Árið 1923 voru samþykkt lög á alþingi um Þjóðleikhús. Allt tók sinn tíma og til dæmis var mikil senna um staðarval fyrir leikhúsið; ýmsum þótti þröngt um það þarna á Hverfisgötunni. Þó kom þar að húsið var steypt upp, síðan kom kreppan og þá fór byggingarféð í annað, síðan kom stríð og her og loks, 20. apríl á sumardaginn fyrsta 1950, stóð álfaborgin tilbúin og hliðin voru opnuð. Ég man þennan dag. Hann var óvenju hreinn og bjartur. Ég var að rísa úr langvarandi pest og í aftur- batanum er maður minntur á hvað dagurinn getur verið fagur. Ragnar í Smára hentist inn úr dyrunum hjá foreldrum mínum með áritað ein- tak af Snæfríði Íslandssól. leik- verkinu sem átti að sýna nokkrum dögum síðar og hefur fylgt leikhús- inu allar götur í þessi sjötíu ár. En um kvöldið voru það álfarnir hans Indriða Einarssonar, álfarnir sem eru draumar okkar mannanna. Ég sat efst í tröppunum á efstu svölum, einhverjir búálfar hússins höfðu laumað mér þangað inn. Komi þeir sem koma vilja, fari þeir sem fara vilja, mér og mínum að meinalausu, sagði álfkonan og breiddi mót okkur faðminn. Og það hafa margir komið. Við bíðum í ofvæni að koma aftur. Eftir Svein Einarsson »Komi þeir sem koma vilja, fari þeir sem fara vilja, mér og mín- um að meinalausu, sagði álfkonan og breiddi mót okkur faðminn. Sveinn Einarsson Höfundur er fv. Þjóðleikhússtjóri. Afmæliskveðja til Þjóðleikhússins Aðgerðir til að hemja COVID-19 kosta samfélagið mik- ið. Atvinnuleysi vex hratt. Um allan heim. Aðgerðir til að hemja kreppuna kosta líka. En það er dýrara að gera of lítið. Öllu skipt- ir að efla viðspyrnuna. Ná tökum á veirunni og fara upp á ný. Öflug uppsveifla eftir djúpa niðursveiflu er ekki sjálfgefin. Án aðgerða er hætta á að kreppan verði óþarflega löng. Ákvarðanir í dag munu án efa hafa áhrif næstu tíu árin. Ríkið hefur kynnt aðgerðapakka í tvígang og hefur verið leiðandi í að verja störfin í gegnum djúpan dalinn. Það skiptir miklu máli. Sveitarfélögin hafa jafnframt miklu hlut- verki að gegna. Ekki síst Reykjavíkurborg. Háar álögur borgar- innar voru íþyngjandi þegar vel áraði. Þær eru núna sem myllu- steinn um háls hjá mörgum. Borgin nýtti ekki góðærið til að lækka skuldir sínar. Því miður hafa þær hækkað um meira en milljarð á mánuði þrátt fyrir mettekjur í góð- æri. Tekjugrunnur borgarinnar er fólginn í atvinnulífinu. Störfin skapa verðmæti og skila sér sem útsvars- tekjur til borgarinnar. Það er því grundvallaratriði hjá borginni að beita sér fyrir því að störfin tapist ekki. Samhliða þarf að nútímavæða starfsemi borgarinnar. Hagræða. Nota tæknina betur. Selja eignir sem eru ekki hluti af kjarna- starfsemi borgarinnar. Þetta höfum við allt lagt til. Nú síðast í borgar- stjórn á þriðjudag þar sem við lögð- um til að nettæknin yrði innleidd markvisst á öllum sviðum borgar- innar sem mun spara tíma, ferðir og peninga. Við þurfum nýtt upphaf. Nýja uppsveiflu. Hagvöxtur síðustu tíu ára kom fyrst og fremst með ferða- þjónustunni. Aukinn kaupmáttur byggist á ferðamönnum. Innviðir ferðaþjónustunnar eru enn óskadd- aðir, enda erum við að fást við manngerða lokun. Landið er víð- feðmt og strjálbýlt. Hreint og öruggt. Ætti að vera fyrsti valkostur fyrir marga þegar ferðir hefjast á ný. Það eru því allar forsendur fyrir því að uppbyggingin geti verið öflug ef við stöndum áfram saman. Um- svifin geta aukist á ný án nýrra fjár- festinga. Það byggist á því að við séum tilbúin að byrja af krafti upp á nýtt hvort sem það verður í sumar eða í vetur. Á sama hátt og við stóðum saman í að uppræta veiruna eigum við að standa saman í að uppræta atvinnu- leysið sem nú hefur breiðst út á ör- skömmum tíma. Um það eigum við að standa öll saman. Eftir Eyþór Arnalds » Það eru því allar forsendur fyrir því að uppbyggingin geti verið öflug ef við stöndum áfram saman. Eyþór Arnalds Höfundur er oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjórn. Upp á ný
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.