Morgunblaðið - 23.04.2020, Blaðsíða 22
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 2020
ALVÖRU
VERKFÆRI
VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • DALSBRAUT 1, AKUREYRI • S: 560 8888 • vfs.is
145
EITTRAFHLÖÐUKERFI
YFIR VERKFÆRI
vfs.is
Guðni Einarsson
gudni@mbl.is
SARA er heitið á fisléttu og fyrir-
ferðarlitlu hylki sem ætlað er til
sjóbjörgunar og flutnings á sjúk-
lingum með smitandi sjúkdóma.
Framleiðandi er RØST Kayaks í
Sandefjord í Noregi. Stofnandi og
framkvæmdatjóri er Baldvin Krist-
jánsson. Hann er frá Njarðvík en
hefur einnig verið mikið á Ísafirði í
gegnum tíðina.
„SARA er björgunartæki sem
norski herinn og norska sjóbjörg-
unarfélagið (Redningselskapet)
nota. Það er líka hægt að nota
SÖRU til að flytja veirusmitað fólk
á landi,“ segir Baldvin. Hann segir
að SARA hafi verið hönnuð til
notkunar við sjávarsíðuna að beiðni
björgunarfélagsins. Síðan spurði
herinn hvort ekki væri hægt að að-
laga tækið að flutningum sjúkra og
slasaðra á landi. Þannig væri hægt
að flytja t.d. mun fleiri veirusmit-
aða í einu með ýmsum farar-
tækjum en með öðrum hylkjum
vegna þess hvað SARA er létt og
fyrirferðarlítil. Þá bað kanadískt
björgunarfélag um að hylkið yrði
lagað að fjallabjörgun og var það
gert.
Ofurdúkurinn Ballistic Skin
Baldvin segir að hylkið sé svipað í
laginu og grunnt baðkar með loki.
Ytra byrðið er úr Ballistic Skin,
sem er léttasti og sterkasti vatns-
og loftþétti dúkur sem til er. Hann
er úr sterkasta manngerða trefja-
efni sem til er og var fundinn upp
hjá RØST Kayaks árið 2006.
Dúkinn er hægt að húða með mis-
munandi efnum sem hafa mismun-
andi eiginleika. Hægt er að lita og
prenta á hann eftir þörfum. Dúkur-
inn var upphaflega gerður til að
smíða létta kajaka. Hann er einnig
hægt að nota í eiturefnabúninga,
geyma fyrir margs konar innihald
og björgunarbakpoka fyrir heri og
björgunarsveitir. Björgunarbakpok-
ar úr Ballistic Skin eru 2 kg og
koma í stað 6,4 kg poka.
Sjúkrabörur eru hluti af burðar-
virki SÖRU og eins innrabyrði
hylkisins sem er úr gerviefni.
SARA vegur um 5 kg. Þegar hylk-
inu er pakkað saman er það minna
en 10 sentimetra þykkt. Því er hægt
að flytja 30-40 hylki í einu í venju-
legum skutbíl og þyrla getur auð-
veldlega flutt 100 hylki í einu út í
olíuborpall eða skemmtiferðaskip.
Hægt er að fleyta hylkinu yfir vatn
eða sjó, setja það á hjólagrind til
flutnings á þurru landi eða hífa og
hengja upp.
Loftþétt og vatnshelt hylki
Loftþéttur rennilás lokar hylkinu
svo það er alveg loftþétt. Baldvin
segir að nóg loft sé í því um
skamma stund, t.d. ef bjarga þarf
manni af skeri eða ef fólk veikist á
eyju þar sem ekki er hægt að lenda
björgunarbáti eða þyrlu. Þá syndir
björgunarmaður í land með hylkið
og er einnig með vatnsheldan björg-
unarbakpoka úr sama efni. Sjúk-
lingurinn er settur á börurnar og
þær dregnar yfir SÖRU sem dregin
er upp á brúnir baranna og hylkinu
lokað. Á lokinu er plastgluggi svo sá
sem er í hylkinu sér út.
Þurfi að flytja sjúkling eða slas-
aðan um lengri veg er pláss fyrir
súrefniskút í SÖRU. Unnið er að
því í samvinnu við herinn að SARA
verði búin barka fyrir utanáliggj-
andi súrefnisgjöf og eins utanað-
komandi æðalegg. Einnig að hægt
verði að fá hylkið með „hönskum“
þannig að t.d. hjúkrunarfólk geti
fengist við þann sjúka eða slasaða
án þess að hylkið sé opnað. Þá er
verið að útbúa hylki með festingum
svo hægt sé að hífa það. „Það er
spurning hvort SARA er eitthvað
sem Íslendingar geta notað,“ segir
Baldvin. Verksmiðjan ræður við að
smíða tíu SÖRUR á dag.
RØST Kayaks er nú að hefja
framleiðslu á tveggja manna far-
kosti fyrir norska herinn. Það er
blanda af kajak og báti. Þessi far-
kostur getur flutt tvo menn með
mikinn búnað t.d. fimm kílómetra
leið í land og kemur að gagni við
sjúkraflutninga. Væntanlega verður
báturinn einnig gerður fyrir al-
mennan markað. Auk þess fram-
leiðir fyrirtækið sjálfstýrða rann-
sóknarbáta til hafrannsókna.
Fyrirtækið var stofnað til að fram-
leiða fislétta kajaka eftir græn-
lenskri fyrirmynd. Grindin er úr
ofurléttu koltrefjaefni og dúkurinn
Ballistic Skin. Framleiddar eru
nokkrar gerðir og vega kajakarnir
aðeins 6-10 kg eftir gerð.
Ævintýramaður og ræðari
Baldvin fæddist 1970 og hefur
lengi stundað kajakróður og er við-
urkenndur leiðbeinandi í kajakróðri.
Hann er ævintýramaður og hefur
róið kajökum víða um heim, meðal
annars við austurströnd Rússlands,
Suðurskautslandið og Eldland.
Hann fór til Grænlands, kynntist
þar konu sinni og bjó í Qaqortoq í
nokkur ár. Baldvin á að baki 55-60
leiðangra með ströndum Grænlands
þar sem hann kynntist vel kostum
norðurslóðakajaksins, lipurð hans
og sjóhæfni. Fræg var ferð sem
hann fór við annan mann sem fylgd-
armaður tveggja blindra kajak-
ræðara sumarið 2004 við Grænland.
Baldvin fór að fikra sig áfram við
kajaksmíði. Hann komst fljótt að
því að finna þyrfti efni og aðferð til
að geta smíðað báta sem hefðu
sömu eiginleika og upprunalegu
norðurslóðabátarnir hafa. Baldvin
flutti til Noregs og setti upp RØST
Kayaks-verksmiðjuna. Hann hefur
nú búið þar í tíu ár.
Sömu fjárfestar standa að baki
RØST Kayaks og Jøtun-málningar-
verksmiðjunum. Nú starfa sjö
manns að framleiðslunni hjá RØST
Kayaks auk skrifstofufólks. Verk-
smiðjan var stækkuð nýlega, bætt
við vélum og mannskap og fram-
leiðslugetan tvöfölduð. „Þetta var
ströggl í mörg ár en nú er þetta
orðið mjög gaman,“ segir Baldvin.
SARA Gott pláss er fyrir sjúka eða slasaða í björgunarhylkinu.
Svo er hægt að fella það saman og þá tekur það lítið pláss.
Gluggi Björgunarhylkinu er lokað með loft- og vatnsþéttum
rennilás. Sá sem í hylkinu liggur getur séð út um plastglugga.
Ljósmynd/RØST Kayaks
Á floti SARA flýtur og er hægt að ferja með henni sjúka og
slasaða t.d. úr skerjum þar sem ekki er hægt að lenda.
SARA góð fyrir smitaða og slasaða
Baldvin Kristjánsson er stofnandi RØST Kayaks Framleiða björgunarbúnað, báta og kajaka
Ballistic Skin-dúkurinn er vatnsþéttur, fisléttur og níðsterkur Björgunarhylkið SARA er nýjung
Ljósmynd/Jan-Erik de Lange Gullaksen
Öflugur Baldvin Kristjánsson, stofnandi RØST Kayaks, og Heidi Grimnes
sölustjóri prófa nýjan tveggja manna bát sem getur borið meira en 700 kg.
Ljósmynd/RØST Kayaks
Sjúkraflutningar Hylkið hentar t.d.
til að flytja smitandi sjúklinga.