Morgunblaðið - 23.04.2020, Blaðsíða 58
58 ÍÞRÓTTIR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 23. APRÍL 2020
23. apríl 1977
Guðmundur Sigurðsson og
Gústaf Agnarsson verða
Norðurlanda-
meistarar full-
orðinna í ólymp-
ískum lyfting-
um, fyrstir
Íslendinga, á
Norðurlanda-
mótinu í
Laugardalshöll. Guðmundur
sigrar í 100 kg flokki og Gúst-
af í 110 kg flokki en meðal
annarra sem komast á verð-
launapall er kúluvarparinn
Hreinn Halldórsson sem
krækir í bronsverðlaun í
þyngsta flokknum.
23. apríl 1978
Ísland tryggir sér brons-
verðlaunin á Norðurlanda-
móti karla í körfuknattleik
með því að sigra Norðmenn,
96:84, í úrslitaleik í Laugar-
dalshöllinni. Pétur Guð-
mundsson skorar 20 stig fyrir
Ísland og er bæði stigahæsti
maður mótsins og tekur flest
fráköst. Kristján Ágústsson
skorar 18 stig og Jón Sigurðs-
son 14.
23. apríl 1982
Íslenska karlalandsliðið í
körfuknattleik vinnur auð-
veldan sigur á Austurríkis-
mönnum, 107:76, í vináttu-
landsleik í Grindavík. Teitur
Örlygsson er atkvæðamestur í
íslenska liðinu með 18 stig og
Páll Kolbeinsson skorar 16.
23. apríl 1988
Fjóla Ólafsdóttir er fyrst Ís-
lendinga til að vinna gull-
verðlaun á Norðurlandamóti í
fimleikum. Hún sigrar í
keppni á tvíslá á mótinu sem
fram fer í Finnlandi.
23. apríl 1994
Evrópumeistarinn í þolfimi,
Magnús Scheving, fær silfur-
verðlaunin í
greininni á
heimsmeistara-
mótinu í Japan,
eftir mikið ein-
vígi við heima-
manninn Keni-
chiro Momura.
Magnús fær hæstu einkunn
allra í undankeppninni en
Japaninn nær að skáka hon-
um í úrslitunum. Magnús var í
kjölfarið á þessum árangri á
EM og HM útnefndur íþrótta-
maður ársins 1994.
23. apríl 2007
„Ég er smám saman að
komast í mitt besta form en
það sem skiptir
mestu máli er
að liðið hefur
farið vel af
stað, við erum
með níu stig af
níu mögulegum
og liðið hefur
bætt sig talvert síðan í fyrra,“
segir Ásthildur Helgadóttir við
Morgunblaðið en hún er
markahæst í sænsku úrvals-
deildinni í knattspyrnu með
fimm mörk fyrir Malmö í
fyrstu þremur umferðunum.
23. apríl 2014
Morgunblaðið fjallar ítarlega
um Ólaf H. Kristjánsson sem
hefur verið ráðinn þjálfari
Nordsjælland í Danmörku og
verður þar með fyrstur Ís-
lendinga til að stjórna liði í
dönsku úrvalsdeildinni í
knattspyrnu. Ólafur kveður
Breiðablik í júnímánuði til að
taka við danska liðinu, eftir
að hafa stjórnað Kópavogs-
liðinu í tæp níu ár.
Á ÞESSUM DEGI
KÖRFUBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Óvíst er hvaða verkefni bíða kvenna-
landsliðsins í körfuknattleik í sumar.
Segja má að þar sé landslið þar sem
dagskráin virðist ætla að raskast lítið
vegna kórónuveirunnar. Er þá átt við
að næstu mótsleikir íslenska liðsins
eiga ekki að vera fyrr en í nóvember.
Morgunblaðið spurði landsliðsþjálf-
arann, Benedikt
Guðmundsson, út
í þetta og hvort til
hefði staðið að
nota sumarið til
að undirbúa liðið.
„Til stóð að
spila einhverja
vináttulandsleiki.
Áður en sam-
komubannið var
sett á þá var
möguleiki að spila
við danska landsliðið um mán-
aðamótin maí/júní eða á svipuðum
árstíma og Smáþjóðaleikarnir eru
annað hvert ár. Ég vildi frekar spila
síðsumars eða um haustið vegna þess
að slík tímasetning er mun nær móts-
leikjunum í nóvember. Ég taldi að
það myndi nýtast betur en við höfð-
um ekki útilokað hinn möguleikann.
Þegar allt var sett á ís vegna veir-
unnar þá var farið í að vinna í að
skoða þann möguleika að spila til
dæmis seint í ágúst. En svo hafa hlut-
irnir þróast eins og þeir hafa gert.
Fyrir vikið er í raun ekki hægt að
gera neinar áætlanir varðandi sum-
arið vegna ástandsins. Alla vega ekki
varðandi það að skipuleggja lands-
leiki,“ sagði Benedikt þegar Morgun-
blaðið spjallaði við hann.
Þurfum leiki gegn
sterkum þjóðum
Til stóð hins vegar að sögn Bene-
dikts að nýta sumarið til æfinga og
hann vonast til þess að það verði
hægt.
„Nú liggur fyrir að börn mega æfa
eftir 4. maí og því standa vonir til
þess að fullorðnir geti æft körfubolta
í sumar. Ég býst ekki við landsliðs-
æfingum í júní en vonandi verður
hægt að taka einhverja æfingatörn í
sumar. Vonandi verður einnig hægt
að ferðast og spila þegar líður á sum-
arið því okkur vantar fleiri leiki gegn
töluvert sterkum þjóðum eins og
þeim sem við mætum í Evrópu-
keppni til að aðlagast þeim gæða-
flokki. Veiran hefur hins vegar sett
strik í reikninginn hjá ansi mörgum.
Þegar maður er nýbyrjaður í starf-
inu og er að reyna að koma sínum
áherslum inn þá er sá tími mikil-
vægur. Landsliðsþjálfari hefur ekki
mikinn tíma með hópnum öfugt við
félagsliðin. Það tekur tíma að koma
sínum áherslum að. Í síðasta lands-
leikjaglugga voru þetta ekki nema
þrjár til fjórar æfingar sem við feng-
um sem dæmi en ég fékk meiri tíma í
kringum Smáþjóðaleikana. Leik-
menn æfa þess á milli önnur kerfi
með sínum félagsliðum og því þarf að
rifja upp hluti þegar landsliðið kemur
saman. Maður er alltaf að læra betur
inn á þetta.“
Fyrstu tveir leikirnir
í reynslubankann
Landsliðið á eftir að spila fjóra
leiki í undankeppninni. Liðið tapaði
fyrstu tveimur síðasta vetur gegn
Búlgaríu heima og Grikklandi ytra. Í
nóvember og febrúar á liðið eftir að
mæta Búlgaríu úti, Slóveníu heima,
Grikklandi heima og Slóveníu úti.
„Það er alltaf hægt að tína eitthvað
jákvætt til. Þessir fyrstu tveir leikir
fóru alla vega í reynslubankann.
Sjálfur lærði ég betur inn á liðið og
leikmennina. Væntanlega lærðu þær
einnig inn á mig. Auðvitað var nei-
kvætt að tapa báðum leikjunum enda
snýst þetta um að vinna leiki. Við
stefnum á að gera betur í næsta
glugga en vitum að það verður ekki
auðvelt enda eru bæði Grikkland og
Slóvenía topplið í Evrópu. Frammi-
staðan gegn Grikkjum þarf alla vega
að vera betri en hún var síðast.“
Kynslóðaskiptin eru hafin
Systurnar Berglind og Gunnhildur
Gunnarsdætur voru báðar í landslið-
inu hjá Benedikt en nú nýtur þeirra
ekki við. Berglind slasaðist í bílslysi
eins og fram hefur komið og Gunn-
hildur ákvað að leggja skóna á hill-
una.
„Berglind var með á Smáþjóða-
leikunum í fyrra en fór í axlaraðgerð
nánast strax eftir að við komum til
landsins. Hún var því inni í öllum
plönum hjá mér. Ég myndi segja að
það séu hafin kynslóðaskipti í lands-
liðinu. Meðalaldurinn lækkar nánast
í hvert skipti sem liðið kemur saman.
Maður sá ekki alveg fyrir að Gunn-
hildur væri að hætta því hún er enn
það góður leikmaður. Þetta er því
skellur fyrir landsliðið en ég virði
hennar ákvörðun og skil hana eftir að
hafa rætt við Gunnhildi. Karfan er
bara einn hluti af stóru myndinni í líf-
inu.“
Daniella í landsliðið?
Varðandi endurnýjun í landsliðinu
horfir Benedikt einnig til þess að
leikmaður eins og Danielle Victoria
Rodriguez geti orðið lögleg með
landsliðinu en hún hefur verið einn
albesti leikmaður deildarinnar hér
heima síðustu árin.
„Ég væri til í að sjá leikmann eins
og Daniellu fá ríkisfang. Hún býr
hérna allan ársins hring, sækir ís-
lenskunámskeið, er að þjálfa hérna
og borgar skatta. Hún er nánast orð-
in Íslendingur eftir fjögur ár á land-
inu. Hún er frábær persóna og ekki
annað fyrirsjáanlegt en að hún verði
hérna. Hana langar til þess að verða
íslenskur ríkisborgari veit ég. Hún er
að vinna í því að sækja um ríkis-
borgararéttinn eftir því sem ég best
veit.
Kristen McCarthy í Stykkishólmi
er önnur sem hefur verið hérna lengi
og talar við mann á íslensku. Er einn-
ig mjög snjall leikmaður en hún fékk
höfuðáverka og spilaði ekki á nýaf-
stöðnu tímabili af þeim sökum.
Framhaldið hjá henni er væntanlega
óljóst. Þarna eru tvö dæmi um leik-
menn sem myndu styrkja liðið en eru
einnig sterkir persónuleikar.
Er þetta allt annað dæmi en hjá
sumum bandarískum leikmönnum í
karlaflokki sem hafa fengið ríkis-
borgararétt og flutt í kjölfarið annað
í Evrópu,“ sagði Benedikt Guð-
mundsson ennfremur.
Vonast eftir
æfingatörn
í sumar
Benedikt er með kvennalandsliðið
í körfubolta í miðri undankeppni EM
Morgunblaðið/Hari
EM 2021 Hallveig Jónsdóttir sækir að körfu Búlgara í fyrsta heimaleik
Íslands í undankeppninni sem fram fór í Laugardalshöll í nóvember.
Gróttumenn halda áfram að safna
liði fyrir keppnina í úrvalsdeild
karla í handknattleik næsta vetur,
þar sem þeir verða nýliðar, og hafa
nú fengið til sín markvörðinn Stef-
án Huldar Stefánsson frá Haukum.
Stefán sem er þrítugur kemur sem
lánsmaður frá Hafnarfjarðarliðinu
en hann kom þangað í vor frá HK
eftir að hafa leikið með Kópavogs-
liðinu í úrvalsdeildinni í vetur.
Stefán kannast við sig á Seltjarn-
arnesi en hann lék áður með Gróttu
2014-15 og tók þá þátt í að koma
liðinu upp í úrvalsdeildina.
Grótta krækir í
markvörð
Ljósmynd/Grótta
Markvörður Stefán Huldar Stefáns-
son lék með HK í vetur.
Kristín Þorleifsdóttir, landsliðs-
kona Svía í handknattleik, mun
færa sig um set í sumar og leika
með Randers í Danmörku. Kristín
er 22 ára gömul og yfirgefur her-
búðir sænska meistaraliðsins H 65
Höör. Hún var í sænska landsliðs-
hópnum á HM í Japan fyrir hálfu
ári. Kristín á íslenska foreldra en er
hins vegar fædd í Svíþjóð og hefur
búið þar alla tíð. Hún æfði á sínum
tíma með yngri landsliðum Íslands.
Randers hafnaði í 8. sæti dönsku
úrvalsdeildarinnar í vetur og varð
danskur meistari árið 2012.
Kristín fer til
Danmerkur
Ljósmynd/aðsend
Sænsk Kristín Þorleifsdóttir leikur
með sænska landsliðinu.
Íslenska kvennalandsliðið í körfubolta er í undankeppni EM 2021 en
lokakeppnina á að leika í Frakklandi og á Spáni í júní 2021.
Ísland er í A-riðli ásamt Slóveníu, Grikklandi og Búlgaríu.
Ísland tapaði 69:84 fyrir Búlgaríu á heimavelli og 54:89 fyrir Grikk-
landi á útivelli í fyrstu tveimur leikjunum í nóvember 2019.
Liðið leikur við Slóveníu á heimavelli og Búlgaríu á útivelli í nóvember
2020.
Ísland lýkur undankeppninni með heimaleik gegn Grikklandi og útileik
gegn Slóveníu í febrúar 2021.
Eftir tvær umferðir er Slóvenía í efsta sæti riðilsins með tvo sigurleiki,
gegn Grikklandi, 70:64, og Búlgaríu, 72:64.
Sigurlið riðilsins kemst á EM og þá fara fimm lið af níu sem enda í öðru
sæti undanriðlanna í lokakeppnina.
Næstu leikir eru í nóvember
UNDANKEPPNI EM KVENNA Í KÖRFUKNATTLEIK
Benedikt
Guðmundsson